Skessuhorn - 03.07.2013, Qupperneq 11
11MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013
Nýr fjórhjóladrifinn Mitsubishi Outlander er ríkulega búinn staðal- og þæginda búnaði
sem ásamt nýrri tækni eykur öryggi og veitir þér nýja aksturs upplifun. Má þar nefna
hraðastilli með fjarlægðarskynjara, akreinavara og árekstrarvörn sem allt er
staðalbúnaður í grunngerðinni Intense.
Outlander kostar frá
5.990.000 kr.
Intense 4x4, bensín, sjálfskiptur
MITSUBISHI OUTLANDER
Rúmbetri, sparneytnari og betur búinn
mitsubishi.is
Eyðir aðeins frá 5,5 l/100 km.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.isSmiðjuvöllum 17 · Akranesi · Sími 431 2622 · bilas.is
Undirbúningur er hafinn að bygg-
ingu eldsmiðju á Safnasvæðinu í
Görðum á Akranesi. Það er fé-
lagið Íslenskir eldsmiðir sem sér
um byggingu smiðjunnar í sam-
starfi við Byggðasafnið að Görð-
um. Málið er í deiliskipulagsferli
og mun húsið standa við bryggj-
una þar sem gömlu smábátarnir
eru á Safnasvæðinu. Húsið verður
í gömlum pakkhússtíl og á að falla
vel að skipulagi og bryggjumynd-
inni á staðnum. Í þessu húsi verður
aðstaða fyrir félagið sem telur 162
félagsmenn, samkvæmt Facebo-
okhópi Íslenskra eldsmiða. Eld-
smiðjuhúsið verður sérstakt að því
leyti að það verður byggt í göml-
um stíl og mun nýtast þeim sem
vilja nota það við eldsmíðar og þá
verða námskeið í eldsmíði haldin
þar í framtíðinni.
Eins og fram hefur komið í
Skessuhorni verður Norðurlanda-
mót eldsmiða haldið á Safnasvæð-
inu dagana 14. til 18. ágúst í sum-
ar. Eins og fram kemur hér á und-
an þá er byggingin í skipulagsferli
en til að nýta tímann var ákveðið að
byggja húsið í einingum á öðrum
stað á Safnasvæðinu og verður það
síðan flutt á grunn þess þegar end-
anlegt byggingarleyfi verður feng-
ið, að sögn Guðmundar Sigurðs-
sonar formanns Íslenskra eldsmiða,
en hann er jafnframt starfsmaður
Byggðasafnsins.
jsb
Þegar sumarlokun leikskóladeild-
ar Auðarskóla í Búðardal verður af-
staðin um næstu mánaðamót verð-
ur tekin í notkun stækkun við leik-
skólann. Framkvæmdum við við-
byggingu leikskólans er að ljúka
þessa dagana. Nýi leikskólinn, sem
byggður var fyrir um fimm árum,
er 314 fermetra bygging og varð
fljótlega of lítill fyrir starfsemina.
Um síðustu áramót var hafist handa
við stækkun á 50 fermetra viðbygg-
ingu.
Það var fyrirtækið Framsmíði
sem var með lægsta tilboðið í við-
bygginguna. Grjetar Andri Rík-
harðsson byggingameistari stend-
ur fyrir því fyrirtæki. Þegar blaða-
maður Skessuhorns var á ferðinni
í Búðardal fyrir helgina stóðu yfir
framkvæmdir utan húss. Smiðirn-
ir voru að koma fyrir klæðningu
og bjuggust við að því verki lyki að
mestu í þessari viku. Frágangi inn-
anhúss er lokið nema að koma fyrir
snögum og öðru minniháttar áður
en leikskólabörnin koma í skól-
ann eftir sumarfríið. Grjetar sagði
að framkvæmdirnar hefðu gengið
ágætlega, ef undan eru skildar frá-
tafir sem m.a urðu vegna tafa á af-
greiðslu byggingarefnis. þá
Netsamband í uppsveitum Borgar-
fjarðar og víðar í dreifðum byggð-
um á Vesturlandi hefur lengi ver-
ið ábótavant og íbúar þessara
svæði hafa oft lent í vandræð-
um af þeim sökum. Nú vinna
fjarskiptafyrirtæki að uppsetn-
ingu nýs farsímakerfis, svokall-
aðs 4G kerfis sem býður upp
á þráðlausa háhraða Internet-
tenginu bæði fyrir farsíma og
tölvur. Það gæti reynst farsæl
lausn fyrir íbúa umræddra svæða í
landshlutanum.
Fjarskiptafyrirtækið Nova er
nú sem stendur í fararbroddi á Ís-
landi í uppsetningu 4G kerfisins, en
enn sem komið er hefur kerfið ein-
göngu verið sett upp á höfuðborg-
arsvæðinu. „Nú erum við lögð af
stað í næsta áfanga sem er að koma
Skorradal og Grímsnesi í 4G sam-
band og við vonumst til að komast
fljótt í loftið á þessum stöðum,“ seg-
ir Jóakim Reynisson framkvæmda-
stjóri tæknisviðs Nova í samtali við
Skessuhorn. Tímasetningar fyr-
ir uppsetningu 4G kerfis á öðrum
svæðum liggja ekki fyrir
en auk þeirrar uppbygg-
ingar er Nova að upp-
færa fjölmarga 3G staði í
svokallað 3G+, sem styð-
ur um 50% meiri hraða
en hefðbundin 3G þjón-
usta gerir. „Við erum að
reyna að koma sem best
til móts við þarfirnar um háhraða
Internet alltaf og allsstaðar og von-
umst til að ná inn fleiri 4G svæðum
á Vesturlandi síðar á árinu,“ segir
Jóakim. sko/ Ljósm. Kristín Jónsd.
Hér má sjá húshluta í væntanlega eldsmiðju en beðið er eftir endanlegu bygg-
ingarleyfi til að reisa húsið á Safnasvæðinu.
Gamaldags eldsmiðja mun rísa
á Safnasvæðinu í Görðum
Skorradalur fær 4G Internettengingu
Grjetar Andri Ríkharðsson byggingameistari til hægri og Benedikt Guðmundsson
iðnverkamaður.
Viðbygging leikskólans
í Búðardal á lokastigi