Skessuhorn


Skessuhorn - 03.07.2013, Page 14

Skessuhorn - 03.07.2013, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013 Um 12-15 bátar frá Akranesi eru þessa dagana að hefja markrílveið- ar en lítið hefur orðið vart við mak- ríl á færaslóð Akranesbáta að und- anförnu. Nokkrir hafa þó veiðst af bryggjunum síðustu daga. Tals- verður og dýr búnaður fylgir mak- rílveiðunum þannig að útgerðar- menn þeirra leggja mikið undir til að geta veitt þennan vinsæla mat- fisk. Reynslan hefur sýnt að mik- ill markaður er fyrir makríl, veidd- an af smábátum, enda verður hann fyrir mun minna hnjaski en um borð í stóru bátunum. Síðustu daga hefur hver bátur- inn á fætur öðrum verið undirbú- inn til veiðanna og því nóg að gera hjá iðnaðarmönnum og útgerðar- mönnum þessara báta. Það eru ekki eingöngu heimabátar sem hafa ver- ið útbúnir á Akranesi til veiðanna því nokkrir aðkomubátar eru þeirra á meðal. hb Síðastliðinn fimmtudag var lokið við gerð nýrrar skábrautar til sjó- setningar og upptöku á bátum í Borgarneshöfn. Með skábrautinni er komin góð aðstaða fyrir báts- eigendur í Borgarneshöfn og ör- yggi björgunarsveita og viðbragðs- aðila eykst um leið er þeir þurfa að sjósetja báta sína á sjó í fljótheitum. Með auknum skemmtisiglingum í Borgarfirði og á Faxaflóa er mikil- vægt að auðvelt sé að koma báti út ef á þarf að halda. Í tilkynningu frá Faxaflóahöfnum sf. segir að þó svo að umsvif þeirra séu víðar meiri en í Borgarnesi, skipti ný aðstaða máli fyrir þá sem þar eru með báta og ekki síður er skábrautin mikið ör- yggisatriði fyrir björgunarsveit- ir sem starfa á svæðinu. Skábraut- in var hönnuð og gerð í góðu sam- starfi við notendur og tillit tekið til ábendinga um hvernig legu hans yrði best háttað. Björgunarsveitin Brák er í hópi öflugra björgunarsveita á starfs- svæði Faxaflóahafna sf. sem starfar í Borgarfjarðarhéraði og mun nýja skábrautin koma til með að nýtast henni vel. Sveitin sinnir ekki síður sjóbjörgun en björgun upp til fjalla og jökla. Faxaflóahafnir sf. styrkja starfsemi björgunarsveitanna á starfssvæði fyrirtækisins og þar með talið Björgunarsveitina Brák. jsb Nýtt tímabil strandveiða hófst síðastliðinn mánudag með fjölg- un báta á sjó og auknu hafnarlífi. Einnig urðu krókaveiðar á mak- ríl leyfilegar og er mikil fjölg- un á útgefnum veiðileyfum milli ára. Frést hefur af vaðandi mak- ríl á Breiðafirðinum en þó er hann seinna á ferðinni en á síðasta ári. Sjávarhiti hefur verið lægri en á sama tímabili undanfarið og er það talið vera skýringin á seink- un makrílsins. Um hádegi á mánu- daginn voru nærri 800 bátar á sjó í kringum Ísland samkvæmt tölum frá Vaktstöð siglinga. Á A-svæði strandveiða, sem nær frá Borgar- nesi norður að Súðavík í Ísafjarð- ardjúpi, hófust veiðar aftur eftir að þær voru stöðvaðar 19. júlí sl. Í júlí lönduðu 228 bátar alls 1.524 sinn- um og rúmum 840 tonnum. Á D- svæði, sem nær frá Hornafirði til og með Borgarbyggð, kláraðist potturinn ekki og veiðar héldu því áfram eftir helgarhlé. Þar lönduðu 123 bátar alls 817 sinnum og rúm- um 408 tonnum, en alls voru 525 tonn í pottinum fyrir júní. Í maí veiddust einungis tæp 400 tonn af 600 tonna potti, en óveiddur afli færist á milli mánaða og þrátt fyr- ir að einungis séu 125 tonn í júlí- potti D-svæðis eru því í raun 541 eftir í pottinum. A-svæðið er það eina þar sem potturinn hefur alltaf klárast í sumar. Mikil fjölgun krókabáta á makrílveiðum Áhugi á krókaveiðum á makríl þetta árið var langt umfram væntingum, eins og áður hefur verið sagt frá í Skessuhorni, en sótt var um leyfi fyrir 239 báta. Síðasta sumar voru krókaveiðar á makríl stundaðar á 17 bátum. Þó er ekki víst hve marg- ir munu í raun fara krókaveiðarn- ar, því t.d. voru 23 af bátunum sem sótt var um á með strandveiðileyfi og því fá þeir ekki makrílleyfi fyrr en 1. september. Einnig voru ein- hverjir bátanna ekki með haffæri. Alls er potturinn fyrir makrílveið- arnar 3.200 tonn, en hann skiptist í tvennt. Í júlí má veiða allt að 1.300 tonn og frá 1. ágúst fram til vertíð- aloka má veiða 1.900 tonn. Síðastliðinn fimmtudag var sá afli sem áætlaður var til línuíviln- unar í þorski uppurinn, eða 3.375 tonn. Tæpir tveir mánuðir eru nú eftir að fiskveiðiárinu og á þeim tíma mun línuívilnun ekki reikn- ast á þorsk. Línuívilnun virkar á þann veg að dagróðrabátar á línu- veiðum geta landað umframafla í þorski, ýsu og steinbít. Ef línan er beitt í landi má landa 20% umfram kvótaeign og ef línan er stokkuð upp í landi má landa 15% umfram kvótamagn. Línuívilnun var sett á 1. september 2004 til að fjölga störfum í landi og er þetta í fyrsta sinn sem 3.375 tonna viðmiðunin í þorski dugar ekki á þessum níu árum, en 199 bátar á 52 stöðum víðsvegar um landið hafa nýtt sér línuívilnun á þessu fiskveiðiári. sko Þriðjudaginn 25. júní sl. undirrit- uðu Illugi Gunnarsson mennta- málaráðherra og Vilhjálmur Eg- ilsson rektor Háskólans á Bifröst samning um tilraunaverkefni um hækkað menntunarstig í Norðvest- urkjördæmi. Skessuhorn greindi frá verkefninu í nýliðnum mánuði, en það er liður í átaki stjórnvalda og hagsmunasamtaka vinnumarkað- arins að hækka menntunarstig í ís- lensku atvinnulífi. Meginmark- mið samningsins er að kanna þörf fyrir menntun meðal einstaklinga og fyrirtækja í kjördæminu, stuðla að auknu samstarfi fræðsluaðila, kanna þörf fyrir námsstyrki og þróa aðferðir við mat á fyrra námi og reynslu inn í hið hefðbundna skóla- kerfi. Háskólinn á Bifröst mun annast umsýslu um verkefnið en því stjórnar sérstök verkefnisstjórn sem Vilhjálmur Egilsson veitir for- stöðu. Í verkefnisstjórn sitja fulltrú- ar atvinnulífs, stéttarfélaga, sveitar- félaga og skóla- og fræðslustofnana í Norðvesturkjördæmi. Átakið er eitt af nokkrum verkefnum sem sett voru af stað í framhaldi af kjara- samningum aðila vinnumarkaðar- ins í maí 2011. Auk Norðvestur- kjördæmis fer átakið fram í Breið- holti í Reykjavík. Vinna er hafin Næstu skref í verkefninu er að gera viðamiklar kannanir á þörf og eftirspurn eftir námi hjá fyrirtækj- um, stofnunum og einstaklingum. Annars vegar verða gerðar hefð- bundnar formlegar kannanir og hins vegar er leitað beint til stjórn- enda og starfsfólks fyrirtækja og stofnana í kjördæminu. Unnið verð- ur að gerð kannana fram í ágúst og er nú þegar byrjað að hafa samband við þátttakendur. Á vegum verkefn- isins hefur verið ráðið fólk til þess að sjá um framkvæmdina, taka við- töl og vinna úr þeim. Verkefnis- stjóri er Geirlaug Jóhannsdóttir en aðrir starfsmenn eru Birna Gunn- laugsdóttir, Daníel Glad Sigurðs- son, Helga Björk Bjarnadóttir og Hrafnhildur Árnadóttir. Áætlað er að niðurstöður verði kynntar á sér- stakri ráðstefnu sem áætlað er að halda í nóvember. hlh Að fenginni reynslu um síðustu helgi þegar mikil umferð var á þjóð- veginum í gegnum Borgarfjörð, veltir Theodór Þórðarson yfirlög- regluþjónn því upp hvort brýnt sé orðið að tvöfalda vegina út frá höf- uðborgarsvæðinu til að umferðin gangi betur fyrir sig. „Í stað þess að ýta þessu alltaf á undan sér vegna mikils kostnaðar finnst mörgum atvinnubílstjórum það tilvalið að byrja frekar smátt og smátt á þess- ari framkvæmd sem gæti þá hafist fyrr. Til dæmis með því að breikka vegina í völdum brekkum þar sem þá er hægt að fara fram úr hægfara bílalestum á öruggan hátt. Enn- fremur mætti velja góða beina kafla til tvöföldunar,“ segir Theodór. Hann bendir á að í Borgarfirði mætti hugsa sér slíkar breikkanir aðallega til að greiða fyrir umferð til norðurs. Það yrði gert á eftir- töldum stöðum, svo nokkur dæmi séu tekin; í brekkunni frá Hval- fjarðargöngunum að Kúludalsá, frá Urriðaá við Akranesvegamót- in að Hagamel, Skorholtsbrekkan frá beygjunni við Skipanes og upp fyrir Geldingaá, á beinum köfl- um frá Fiskilæk og á Hafnarmel- um, frá Hvítárvallavegi við Gufuá og upp undir Eskiholtssneiðina, frá Daníelslundi að Svignaskarði, upp Kolásinn hjá Munaðarnesi, við Hvamm í Norðurárdal, við Sveina- tungu og upp frá Fornahvammi upp undir Krókalækina. þá Nú stendur yfir vinna við göngu- stíga í Súgandisey í Stykkishólmi. Eyjan er vinsæll áningarstaður ferðamanna og mikill fjöldi þeirra gengur upp á eyjuna á hverju sumri og nýtur útsýnisins þaðan. Þá hef- ur talsverð aukning orðið í komu ferðamanna yfir vetrartímann. Kallar þessi aukna umferð á end- urbætur í stígagerð til að vernda gróður efst á eyjunni. sá Samningar um tilraunaverkefni til að hækka menntunarstig Vilhjálmur Egilsson og Illugi Gunn- arsson takast í hendur að undirritun lokinni. Theódór Kr. Þórðarson yfirlögreglu- þjón hjá LBD í Borgarnesi að taka út nýja mannvirkið við höfnina. Ný og betri aðstaða í Borgarneshöfn Saltpokar með efni sem notað verður í göngustígana voru hífðir upp á Súgandisey en mikið verk væri að bera allt efnið þaðan og upp á topp. Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson. Unnið við göngustígagerð í Súgandisey Segir að breikka þurfi hringveginn Iðnaðarmenn frá Héðni við vinnu sína um borð í Stakkavík frá Grindavík á sunnudagskvöldið. Makríllinn er málið Myndarlegur rúlluskógur er nú á bátunum í Akraneshöfn. Nýtt tímabil strandveiða og krókaveiðar á makríl hafnar Viðmiðunarafli í línuívilnun á þorski er uppurinn í fyrsta sinn síðan línuívilnun var sett á fyrir níu árum.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.