Skessuhorn - 03.07.2013, Page 39
39MIÐVIKUDAGUR 3. JÚLÍ 2013
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Við seljum allar gerðir
bíla, nýja og notaða
FÓLKSBÍLA – ATVINNUBÍLA
FERÐABÍLA OG VAGNA
Gott úrval ávallt á staðnum
Frábært úrval á
söluskránni bilas.is
Söluaðilar á Vesturlandi
fyrir þrjú af stærstu
bílaumboðum landsins
Sýningabílar á staðnum
Örugg viðskipti í 30 ár
Smiðjuvellir 17, Akranesi
Sími 431-2622
Þarft ekki að fara langt
www.bilas.is
bilas@bilas.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Káramenn unnu sinn fyrsta sig-
ur í 3. deildinni í sumar þegar þeir
sóttu Magnamenn heim norður á
Grenivík sl. laugardag. Leikurinn
var í sjöundU umferð mótsins og
Kári bar sigur úr býtum 2:1 og fékk
þar með sín fyrstu stig í deildinni í
sumar. Mikil barátta og jafnræði var
með liðunum í leiknum, en Magna-
menn náðu forystu í leiknum á 26.
mínútu eftir að aukaspyrna þeirra
fór á fjærstöng þar sem Ívar Guð-
laugur Ívarsson potaði boltanum í
markið. Káramenn settu þá mik-
inn kraft í að jafna leikinn og á
34. mínútu leiksins kom jöfnunar-
markið. Bjarki Sigmundsson sendi
þá laglegan bolta inn á teig þar sem
Gísli Freyr Brynjarsson skoraði af
stuttu færi. Staðan var jöfn í hálf-
leik og Káramenn pressuðu síðan
meira þegar leið á seinni hálfleik-
inn. Á 68. mín. kom svo sigurmark-
ið. Aukaspyrna Káramanna rataði
í fæturnar á varnarmanni Magna
sem mistókst herfilega og skaut í
eigið mark. Í gærkvöldi, þriðju-
dagskvöld, var mjög mikilvægur
leikur á Akranesvelli þar sem Kári
tók á móti hinu Vesturlandsliðinu í
deildinni Grundarfirði. Grundfirð-
ingar voru fyrir leikinn með þrem-
ur stigum meira en Kári.
þá/sgh
Grundarfjörður og Augnablik átt-
ust við á Grundarfjarðarvelli föstu-
dagskvöldið 28. júní sl. Gengi þess-
ara liða hafði verið æði misjafnt í
síðustu umferðum en Augnablik fór
illa með Magna frá Grenivík 6-1 á
meðan Grundfirðingar steinlágu
gegn ÍH 6-0. En leikmenn Grund-
arfjarðar voru lítið að velta sér upp
úr því þegar leikurinn hófst því að
það voru ekki liðnar nema fjór-
ar mínútur þegar Heimir Þór Ás-
geirsson var búinn að koma heima-
mönnum yfir með laglegu marki.
Eftir það héldu heimamenn upp-
teknum hætti og komust í nokkur
ákjósanleg færi en náðu ekki að nýta
þau. Heimamenn voru með tögl og
hagldir í leiknum þegar gestirnir
fengu hornspyrnu sem virtist fara
í hendi eins leikmanna Grundar-
fjarðar og dómarinn dæmdi víta-
spyrnu. Gestirnir nýttu hana og
jöfnuðu metin og þannig var stað-
an í leikhléi.
Í síðari hálfleik mættu heima-
menn ákveðnir til leiks og geystust
í sókn á 49. mínútu. Þar var Ing-
ólfi Erni Kristjánssyni brugðið inn-
an vítateigs og önnur vítaspyrna
dæmd. Hana nýtti Heimir Þór Ás-
geirsson vel og skoraði annað mark
sitt og kom Grundfirðingum í 2-1.
Eftir þetta var aldrei spurning um
hvoru megin sigurinn myndi enda
því Grundfirðingar voru allan tím-
ann með þennan leik í hendi sér.
Áður en yfir lauk voru þeir Dali-
bor Lazic og Nwadike Ugochukwu
Vincent búnir að bæta við tveim-
ur mörkum og sanngjarn 4-1 sigur
heimamanna staðreynd. Það var því
létt brúnin á áhorfendum í leikslok
þar sem að fimm leikja taphrinu
Grundfirðinga var lokið.
tfk
Lið Skallagríms laut í gras gegn liði
KB frá Breiðholti á Skallagrímsvelli
í Borgarnesi á þriðjudaginn í síðustu
viku, 1-2. Fyrri hálfleikur var frem-
ur tíðindalítill og var markalaust í
hálfleik. Breiðhyltingar voru fyrri til
að skora í seinni hálfleik og komust
yfir á 65. mínútu. Ekki leið á löngu
þar til heimamenn jöfnuðu leikinn og
skoraði Viktor Ingi Jakobsson jöfn-
unarmarkið á 68. mínútu. Í kjölfar
marksins hresstist leikur Borgnes-
inga nokkuð og fengu þeir góð færi á
næstu mínútum. Ólánið elti hins veg-
ar Skallagrímsmenn því fimm mínút-
um síðar varð varnarmaðurinn Svein-
björn Guðlaugsson fyrir því óhappi
að skora sjálfsmark sem kom KB í
1-2. Ekki urðu fleiri mörk í leiknum
og því hlotnuðust Breiðhyltingum öll
stigin þrjú sem í boði voru.
Skallagrímur féll niður í 5. sæti B-
riðils 4. deildar karla eftir tapið en lið-
ið er með átta stig. Næsti leikur Borg-
nesinga er í Stykkishólmi á þriðjudag-
inn þegar þeir mæta sameiginlegu liði
Snæfells/Geislans.
hlh
Víkingur Ólafsvík og Skagamenn
áttust við í sannkölluðum Vest-
urlandsslag sl. sunnudagskvöld í
Pepsídeild karla. Lauk leiknum með
1:0 sigri Víkings. Þessi úrslit þýða
að Víkingur eru nú komnir úr falls-
æti, eru í því 10. með fjögur stig, en
ÍA færist í 11. sætið og er áfram með
sín þrjú stig. Í botnsætinu eru Fylk-
ismenn með tvö stig. Vel var mætt
á leikinn, heimamenn fylltu stærstan
hluta áhorfendastúkunnar en mik-
ið var einnig af Skagamönnum sem
höfðu gert sér ferð vestur. Leikurinn
var frekar bragðdaufur framan af og
áttu hvort liðið sitt hvort færið í fyrri
hálfleiknum. Skagamenn skalla á
mark sem bjargað var á línu og hinu
megin áttu Víkingsmenn sömuleið-
is skalla þar sem boltinn skoppaði í
þverslána.
Víkingsmenn byrjuðu seinni hálf-
leik af meiri krafti en Skagamenn
og uppskáru vítaspyrnu á 78. mín-
útu. Páll Gísli markvörður Skaga-
manna varði spyrnuna frá Guð-
mundi Magnússyni en hann fylgdi
vel eftir og skoraði. Eftir markið
datt leikurinn enn meira niður en
Skagamenn færðu sig aðeins fram
á völlinn. Þeir uppskáru þó ein-
ungis eitt færi og það kom í blálok-
in. Garðar Bergmann Gunnlaugs-
son átti hörkuskot sem endaði efst
í stönginni. Þar með var fyrsti sigur
Víkings Ólafsvík í efstu deild stað-
festur og braust út mikill fögnuður
á Ólafsvíkurvelli.
Skammt er stórra högga á milli
hjá Vesturlandsliðunum. Strax á
miðvikudagskvöldið verða þau aft-
ur í eldlínunni í Pepsídeildinni og
eiga þá mjög mikilvæga leiki í botn-
baráttunni. Víkingar fá þá botnlið
Fylkis í heimsókn og á sama tíma
mætast á Akranesvelli ÍA og Þór frá
Akureyri, sem gerði sér lítið fyrir og
sigraði Keflvíkinga suður með sjó á
sunnudag. jsb/ Ljósm. af.
Guðmundur Lúther Hallgrímsson með boltann fyrir Skallagrím. Skúli Pálsson
fylgist með.
Skallagrímur tapaði fyrir KB
Víkingar sigruðu
í Vesturlandsslagnum
Ragnar Gunnarsson í baráttu við Magnamenn í leiknum.
Fyrsti sigur Káramanna
Loksins sigur
Grundfirðinga