Skessuhorn - 28.08.2013, Blaðsíða 27
27MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Við seljum bíla frá BL
nýja og notaða
HYUNDAI – RENAULT
OPEL – DACIA – SUBARU
NISSAN – BMW LAND
ROVER/RANGE ROVER
Fólksbílar – jeppar
pallbílar – sendibílar
Hvergi meira úrval
glæsilegra bifreiða
Sýningabílar á staðnum
Örugg viðskipti í 30 ár
Smiðjuvellir 17, Akranesi
Sími 431-2622
www.bilas.is
bilas@bilas.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Síðastliðinn sunnudag syntu félagar
í Sundfélagi Akraness sitt árlega
Faxaflóasund frá Reykjavíkurhöfn
yfir á Langasand á Akranesi, alls
um 22 kílómetra leið. Sundið fer
jafnan þannig fram að einn sund-
maður syndir í einu í fylgd hafn-
sögubáts frá Faxaflóahöfnum og
björgunarbáts frá Björgunarfélagi
Akraness. Sundið er áheitasund og
höfðu bæði einstaklingar og fyrir-
tæki heitið duglega á sundmennina.
Faxaflóasund er meira þrekvirki en
margir gera sér grein fyrir. Vindur,
alda og kuldi geta tekið á á leiðinni.
Að þessu sinni syntu 15 yfir flóann,
sá yngsti 14 ára. Sterk alda varð til
þess að nokkrir urðu sjóveikir og
reyndi sundið því talsvert á unga
fólkið að þessu sinni. Sökum sjó-
veiki treystu nokkrir sér ekki til að
synda síðasta spölinn í land. Þá var
heitu sturtunni á Langasandi sleppt
að þessu sinni og dreif sundfólkið
sig beint til búningsklefa að land-
töku lokinni réttum sex klukkutím-
um eftir að sundið hófst.
mm
Ungmennafélagið Íslending-
ur, í samstarfi við hlaupahópinn
Flandra, hélt í fyrsta sinn Hrepps-
laugarhlaup 15. ágúst sl. Í boði var
að hlaupa 3, 7 eða 14,2 km. Þátttak-
endur voru 45 og skemmtu allir sér
vel. Þátttakendum var boðið frítt í
sund í Hreppslaug að hlaupi loknu
og hægt var að kaupa súpu á góðu
verði. Hlaupið tókst afar vel og má
búast við að félögin endurtaki leik-
inn að ári.
Helstu úrslit:
3 km
14:59 Einar Ágúst Helgason 2002 -
1. verðlaun KK 18 ára og yngri
18:09 Ásdís Lilja Arnarsdóttir 2002
- 1. verðlaun Kvk 18 ára og yngri
25:16 Una Harðardóttir 1989 - 1.
verðlaun Kvk 19-39 ára
20:26 Inga Vildís Bjarnadóttir 1964
- 1. verðlaun Kvk 40 ára og eldri.
7 km
36:06 Björk Lárusdóttir 1995 - 1.
verðlaun Kvk 18 ára og yngri
36:02 Marvin Logi Nindel Har-
aldsson 2002 - 1. verðlaun KK 18
ára og yngri
37:31 Petra Baumruk 1986 - 1.
verðlaun Kvk 19-39 ára
33:39 Ragnar Snorrason 1981 - 1.
verðlaun KK 19-39 ára
40:19 Ása Hólmarsdóttir 1969 - 1.
verðlaun Kvk 40 ára og eldri
31:54 Jóhannes Guðjónsson 1950 -
1. verðlaun KK 40 ára og eldri
14,2 km
1:04:54 Kristján Bohra 1997 - 1.
verðlaun KK 18 ára og yngri
1:10:17 Ragnheiður Sveinbjörns-
dóttir 1981 - 1. verðlaun Kvk 19-
39 ára
1:00:54 Valþór Ásgrímsson 1980 -
1. verðlaun KK 19-39 ára
1:05:46 Jóhanna Arnórsdóttir 1969
- 1. verðlaun Kvk 40 ára og eldri
59:01 Sigurjón Sigurbjörnsson
1955 - 1. verðlaun KK 40 ára og
eldri
Ármót í frjálsum
Hið árlega Ármót í frjálum íþrótt-
um var haldið 20. ágúst á Sverr-
isvelli á Hvanneyri. Ungmenna-
félögin Dagrenning og Íslending-
ur sáu um mótshaldið. Um 80 börn
og unglingar tóku þátt. Umf. Staf-
holtstungna var stigahæst með 313
stig, Umf. Íslendingur fékk 305 stig
en Umf. Reykdæla 166 stig. Veðrið
lék með þátttakendur og áhorfend-
ur. Texti og ljósmynd:
Ulla R. Pedersen.
Riðill Víkings Ólafsvík í UEFA
Futsal cup, eða Evrópukeppni
félagsliða í Futsal, er um þess-
ar mundir spilaður í Snæ-
fellsbæ. Hófust leikar í gær-
kvöldi, þriðjudag, með leik Vík-
ings gegn Anzhi Tallinn frá Eist-
landi. Í kvöld, miðvikudag, spilar
Anzhi Tallinn gegn Athina 90 frá
Grikklandi og annað kvöld spil-
ar Víkingur gegn Athina 90. All-
ir leikirnir eru spilaðir í Íþrótta-
húsi Snæfellsbæjar í Ólafsvík og
hefjast klukkan 20:00. Fyrr á
þessu ári tryggði Víkingur sér
þátttökurétt á mótinu þegar lið-
ið varð Íslandsmeistari í Fut-
sal og í byrjun sumars sóttu for-
svarsmenn Víkings um að rið-
ill Víkings yrði spilaður í Snæ-
fellsbæ.
sko
Búið er að ákveða
úrslitaleikina um
laus sæti í Pepsí-
deild kvenna á næstu
leiktíð. Skagastúlkur
sem enduðu í öðru sæti A-riðils
fyrstu deildarinnar mæta topp-
liði B-riðils sem að þessu sinni
var KR. Leiknir verða tveir leik-
ir sem spilast á heimavelli hjá
hvoru liði. Fyrri leikurinn verð-
ur á laugardaginn 31. ágúst á
Akranesvelli og hefst klukkan
14. Seinni leikur liðanna verð-
ur svo á þriðjudaginn 3. septem-
ber í Vesturbænum á KR-vellin-
um klukkan 17:30.
jsb
Sverrismótið í knattspyrnu verð-
ur haldið á Sverrisvelli á Hvann-
eyri sunnudaginn 1. september
og hefjast leikar stundvíslega kl.
10:00. Fimm leikmenn verða inn
á í einu í hverju liði. Spilað verð-
ur á þremur völlum, 2 x 7 mín-
útna leikir og verður hálfleikur
í eina mínútu. Almennar knatt-
spyrnureglur verða við lýði nema
sú breyting gerð að þegar ann-
að liðið kemst tveimur mörkum
yfir verður það lið manni færra
og fækkar í liðinu eftir því sem
munurinn eykst og jafnast í lið-
um eftir því sem leikurinn jafnast.
Skipt verður í eftirfarandi aldurs-
flokka og miðað við fæðingarár: 9
ára og yngri, 10-14 ára og 15 ára
og eldri. Innheimt verður keppn-
isgjald: 500 kr. fyrir hvern leik-
mann. Skráning fer fram á net-
fangið: allakr89@gmail.com og
er skráningarfrestur til kl. 23:59,
laugardagskvöldið 31. ágúst. Vin-
samlegast tilgreinið fjölda leik-
manna í liði við skráningu.
„Við hvetjum öll lið til að mæta
í skemmtilegum búningum því
veitt verða verðlaun fyrir flottustu
búningana. Endilega komið og
takið þátt í skemmtilegu fótbolta-
móti og minnist þannig Sverris
Heiðars Júlíussonar knattspyrnu-
þjálfara og Hvanneyrings. Með
von um góða þátttöku, Stjórn og
íþróttanefnd Umf. Íslendings.“
-fréttatilkynning
Þriðji flokkur karla hjá Snæfells-
nesi varð Íslandsmeistari í sjö
manna bolta um síðustu helgi. Úr-
slitakeppnin fór fram á KA vellin-
um á Akureyri og gistu strákarnir
í KA heimilinu. Fyrsti leikur Snæ-
fellinga var við Sindra frá Horna-
firði. Strákarnir unnu hann 6 – 4 en
seinna um daginn spiluðu þeir við
Tindastól frá Sauðárkróki og unnu
þann leik 4 – 1. Á sunnudeginum
spilað Snæfellsnes við Fjarðabyggð/
Leikni og vann 3 – 0 í hörkuleik.
Strákarnir unnu því alla leiki sína
í sumar utan einn. Það voru því
stoltir og glaðir strákar og foreldrar
sem lögðu af stað heim á sunnudeg-
inum og stefnan tekin á að ná heim
fyrir hálfleik hjá Víkingi Ólafsvík
og Breiðabliki, en þá voru strákarn-
ir kallaðir inn á völlinn og fagnað
vel og innilega af stuðningsmönn-
um Víkings Ó.
þa
Skagastúlkur
mæta KR
Keppt í
Futsal í
Ólafsvík
Svipmynd frá Sverrismóti.
Sverrismót í knattspyrnu
verður á sunnudaginn
Aftari röð frá vinstri: Vilberg Kristjánsson, Leó Örn Þrastarson, Elvar Smári
Arnarson, Helgi Sigtryggsson, Kristófer James Eggertsson, Kristófer Reyes Jacobs-
son og Guðbjörn Ásgeirsson. Fremri röð frá vinstri: Sigurjón Kristinsson, Sanjin
Horoz, Andri Már Magnason, Konráð Ragnarsson, Ármann Örn Guðbjörnsson og
Sumarliði Kristmundsson. Á myndina vantar Svanlaug Atla Jónsson.
Þriðji flokkur
Snæfellsness Íslandsmeistarar
í sjö manna bolta
Hreppslaugarmót
og ármót í frjálsum
Réttum sex klukkutímum eftir að sundið hófst kom hópurinn að landi. Nokkrir
fóru með bátunum í land á bryggjunni. Ljósm. mm.
Faxaflóasund var
þreytt á sunnudaginn
Stungið sér til sunds í Reykjavíkurhöfn um morguninn.
Ljósm. Sundfélag Akraness.