Skessuhorn - 28.08.2013, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013
Eftir tíðarfarinu að dæma virðist
ekki vera eftir neinu að bíða með
að huga að berjatínslunni þetta
haustið, fyrir þá sem hafa tök á
því. Þá gæti verið ráð í tíma tekið
að byrja á að taka upp kartöflurn-
ar hjá þeim sem settu mikið nið-
ur síðasta vor. Bæði þessi atriði eru
þó háð því að eitthvað dragi úr úr-
komu.
Á fimmtudag er spáð suðlægri átt
með dálítilli rigningu sunnan til en
annars þurru. Á föstudag lítur út
fyrir að gangi í hvassa norðvestan
átt, með snjókomu til fjalla norðan
til á landinu, en rigningu syðra og
svipað veður verði fram eftir laug-
ardegi. Á sunnudag er spáð hæg-
um vindi, bjartviðri og svölu veðri.
Á mánudag er síðan útlit fyrir
sunnan- og suðaustanátt og rign-
ingu víða um land, hiti 5 til 10 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Á að stytta nám til
stúdentsprófs um 2 ár?“ Flest-
ir eru þeirrar skoðunar, því „já tví-
mælalaust“ sögðu 40,56% og
„já líklega“ 13,12%. „Nei alls ekki“
sögðu 23,46% og „nei líklega ekki“
13,92%. 8,95% höfðu ekki skoðun
á málinu.
Í þessari viku er spurt:
Hvert eftirtalinna atriða kæmi
þér best: Lækka vexti, lækka
höfuðstól lána, lækka skattpró-
sentu, hækka húsaleigubætur
eða hækka barnabætur?
Unglingarnir í þriðja flokki karla
í knattspyrnu sem urðu Íslands-
meistarar í sjö manna bolta um
liðna helgi eru Vestlendingar vik-
unnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Fólk slasaðist í
tveimur óhöppum
LBD: Erlendur ökumaður á
jeppa beygði þvert í veg fyr-
ir ökumann sem kom úr gagn-
stæðri átt skammt neðan Bif-
rastar í Norðurárdal sl. föstu-
dag. Ökumaður fólksbíls-
ins hlaut höfuðhögg og hef-
ur verið á gjörgæslu síðan. Far-
þegi úr fólksbílnum var einn-
ig fluttur á sjúkrahús og mun
hann hafa handleggsbrotnað.
Ástæða óhappsins er að öku-
manni jeppans datt skyndilega
í hug að beygja niður að foss-
inum Glanna við Norðurá, en
tók ekki eftir bílnum sem kom
á móti. Þá urðu einnig meiðsli á
fólki í aftanákeyrslu við Svigna-
skarð um miðja síðustu viku og
voru tveir fluttir með sjúkrabíl
til Reykjavíkur. Þrjú önnur um-
ferðaróhöpp urðu í umdæminu
í síðustu viku en engin meiðsli á
fólki hlutust í þeim.
–þá
Áskrift
SKESSUHORN: Áskriftarverð
fyrir Skessuhorn verður frá og
með 1. september 2.150 krónur
fyrir eldri borgara og öryrkja en
almennt verð er 2.480 kr. Verð-
breyting nú er með hliðsjón af
breytingu á vísitölu.
–mm
Á sama tíma
í útkall
DALIR: Sú staða kom upp
sl. mánudagsmorgun að báð-
ar sjúkrabifreiðar sem staðsett-
ar eru í Búðardal voru kallaðar
út á sama tíma og var því engin
sjúkrabifreið til taks þá stund-
ina. Frá þessu er greint á vefn-
um budardalur.is en þar segir
að nokkur umræða hafi spunn-
ist í kjölfar boðaðra breytinga
og fækkunar sjúkrabíla á svæð-
inu. Sú staða sem upp kom um-
ræddan morgun renni enn frek-
ari stoðum undir þá kröfu íbúa
og ábendingar þeirra, sem að
sjúkraflutningum koma í Döl-
um, að vera þessara tveggja bif-
reiða sé í raun lífsnauðsynleg.
–þá
Tafir í göngunum
HVALFJ: Síðdegis í gær varð
árekstur í Hvalfjarðargöngun-
um og þurfti að loka þeim fyr-
ir umferð í tæpan klukkutíma
vegna þess. Dráttarvél með aft-
anívagni og jepplingur rákust
saman. Ökumenn voru báðir
fluttir til aðhlynningar á sjúkra-
hús, en eru lítið slasaðir. Degin-
um áður bilaði bíll í göngunum
og þurfti þá að loka þeim um
tíma undir kvöld meðan bíll-
inn var dreginn í hliðarinnskot.
–mm
Ráðherra of
upptekinn
RVK: Kynnt var í Skessuhorni
í síðustu viku að birt yrði viðtal
við Illuga Gunnarsson mennta-
málaráðherra þar sem rætt
yrði um ýmis mál sem tengj-
ast menntastofnunum á Vestur-
landi. Þetta var kynnt í trausti
loforðs aðstoðarmanns ráðherra
aðra vikuna í röð um að viðtalið
yrði veitt. Þrátt fyrir fögur orð
og fyrirheit hefur ekkert orð-
ið af viðtali þrátt fyrir ítrekan-
ir og eftirgangssemi af hálfu rit-
stjórnar. Vafalaust hefur ráð-
herra haft í mörg horn að líta
og síminn ekki verið við hönd-
ina. -mm
Slökkvilið Grundarfjarðar var
kallað út rétt eftir miðnætti að-
fararnótt síðastliðins mánudags.
Þá hafði eldur kviknað í íbúðar-
húsinu á bænum Nýjubúð í Eyr-
arsveit. Ábúendur á jörðinni voru
í fjósi þegar eldurinn kom upp og
fóru að gæta að húsinu þegar raf-
magni í fjósi sló út. Hjónin til-
kynntu þegar um eldinn. Mikl-
ar skemmdir urðu á íbúðarhúsinu,
sem byggt var 1974, vegna hita
og reyks. Þá hefur allt innbú ver-
ið dæmt ónýtt en verið er að meta
skemmdir á húsinu sjálfu. Slökkvi-
starf gekk vel að sögn slökkviliðs-
manna, en eldurinn hafði kafnað
áður en slökkviliðsmenn komu á
vettvang, en mikill hiti og reykur
mætti þeim. Talið er að eldurinn
hafi komið upp í eldhúsi.
Opnaður hefur verið söfnunar-
reikningur fyrir Sigríði Dilja og
Kjartan Jósepsson í Nýjubúð. Íbú-
ar í Grundarfirði sem standa fyrir
söfnuninni vonast til að sem flest-
ir sjái sé fært að leggja eitthvað
inn á reikninginn, þar sem margt
smátt gerir eitt stórt. Bankareikn-
ingsnúmer er: 0321-13-110016 og
kennitalan: 170455-3639.
tfk
Kjarasamningar á almennum
vinnumarkaði renna út 1. nóvem-
ber næstkomandi. Í ljósi þess
ákvað stjórn Verkalýðsfélags Snæ-
fellinga að framkvæma spurninga-
könnun meðal félagsmanna til að
gefa þeim kost á að hafa áhrif á
þær áherslur sem lagðar verða í
komandi kjaraviðræðum. Þátttak-
endur í könnuninni voru beðn-
ir um að merkja við átta af 20 at-
riðum og raða þeim um leið eft-
ir mikilvægi. Svarendur vilja helst
leggja áherslu á þrjú atriði. Þau
eru að tryggja kaupmátt, hækka
skattleysismörk og leggja sérstaka
áherslu á hækkun lægstu launa.
Hækkun á vakta- og yfirvinnuálagi
eru einnig ofarlega í huga svarenda
og þá sérstaklega hjá afgreiðslu- og
skrifstofufólki, enda er yfirvinnu-
álag þess lægra en hjá verkafólki.
Þá vilja félagsmenn í Verkalýðs-
félagi Snæfellinga leggja sérstaka
áherslu á hækkun launa svokallaðra
kvennastétta og að bæta veikinda-
og slysarétt. Eining töldu margir
að nauðsynlegt væri að tryggja bet-
ur flutning á áunnum réttindum á
milli fyrirtækja og fjölga starfsald-
ursþrepum í launatöflu.
Áherslur eru ólíkar á milli hópa
þó efstu þrjú atriðin séu nokk-
uð ofarlega á baugi hjá flestum.
Nefnt er að karlar leggi minni
áherslu á sérstaka hækkun lægstu
launa og hafa engan áhuga á að
hækka laun kvennastétta sérstak-
lega. Að jafnaði voru þeir karlar
sem svöruðu með hærri laun en
konurnar. Fiskvinnslufólk leggur
mikla áherslu á að færa hluta af
bónusgreiðslum inn í tímakaup-
ið og ungt fólk hefur mun meiri
áhuga en þeir sem eldri eru að
færa fimmtudagsfrídaga að helg-
um. Elsti aldurshópurinn legg-
ur áherslu á bætt lífeyrisréttindi
og hækkun á bótum í almanna-
tryggingakerfinu. Fram kemur að
félagsmenn vilji leggja áherslu á
kjarasamning til skamms tíma sem
byggi á þjóðarsátt.
sko
Heilbrigðiseftirlit Vesturlands og
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
hafa um nokkurt skeið unnið að því
að fá umsjón með tilteknum verkefn-
um á sviði eftirlits með fyrirtækjum á
Vesturlandi. Um er að ræða verkefni
sem nú eru einkum í höndum Mat-
vælastofnunar og Umhverfisstofnun-
ar, en heimild er fyrir í lögum að séu
framseld til heilbrigðisnefnda eins og
gert hefur verið á nokkrum öðrum
svæðum landsins. SSV kom þessu er-
indi á framfæri bréflega til bæði um-
hverfisráðherra og sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra síðla árs 2011
án þess að niðurstaða hafi fengist. Nú
hefur SSV beint erindinu til starfs-
hóps ríkisstjórnarinnar, sem leggja
skal til aðgerðir til að hagræða, for-
gangsraða og auka skilvirkni í rekstri
stofnana hins opinbera. Erindinu
hefur einnig verið beint til viðkom-
andi ráðherra og er athygli vakin á
því að auðveldlega mætti flytja til
Heilbrigðiseftirlits Vesturlands eftir-
lit með grænu bókhaldi og mengandi
atvinnurekstri á Vesturlandi enda sé
þar um að ræða eftirlit sem er mjög
sambærilegt því sem Heilbrigðiseft-
irlitið er nú þegar að sinna. Að auki
telur stjórn SSV eðlilegt að hluti af
því eftirliti sem nú er hýst hjá Vinnu-
eftirliti ríkisins færist til Heilbrigðis-
eftirlits Vesturlands, en nú þegar er
mjög gott samstarf HeV og Vinnu-
eftirlitsins. Það sama eigi við um
hluta af því eftirliti sem nú er á veg-
um Matvælastofnunar.
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi bendir á að flutning-
ur afmarkaðra verkefna af þessu tagi
myndi fjölga atvinnutækifærum á
Vesturlandi og væri í anda yfirlýstrar
stefnu stjórnvalda um flutning opin-
berra starfa út á landsbyggðina. Þá
telur stjórnin að með þessu næðist
fram hagræðing í opinberum rekstri
og öflugra eftirlit með starfsemi fyr-
irtækja. Stjórn SSV lýsir yfir fullum
vilja til samstarfs um útfærslu og fyr-
irkomulag verkefnisins.
Heimildin í lögunum
Stjórn SSV og HeV telur að fram
komi í áðurnefndum lögum það
meginsjónarmið að beint eftir-
lit með fyrirtækjum sé í hönd-
um heilbrigðisnefnda en að yfir-
umsjón, samræming og fræðsla sé
á vettvangi Umhverfisstofnunar.
Lögin eru nr. 7/1998 og fjalla um
verkaskiptingu milli Umhverfis-
stofnunar og heilbrigðisnefnda. Í
18. grein er tiltekið það megin-
hlutverk Umhverfisstofnunar að:
„...annast eftirlit með framkvæmd
laga þessara og [vera] stjórnvöld-
um til ráðuneytis um málefni er
undir lögin falla.“
Þá er fjallað um hlutverk Um-
hverfisstofnunar við yfirum-
sjón og samræmingu heilbrigð-
iseftirlits. Um beint eftirlitshlut-
verk Umhverfisstofnunar seg-
ir: „Stofnunin fer því aðeins með
beint eftirlit að lög mæli svo fyr-
ir eða ráðherra ákveði það með
reglugerð að höfðu samráði við
stofnunina þegar um landið allt
er að ræða og við heilbrigðis-
nefndir þegar um einstök svæði
er að ræða.“
þá
Mikið tjón eftir að eldur
kom upp í Nýjubúð í Grundarfirði
Húsið í Nýjubúð er mjög illa farið.
Frá slökkvistörfum um nóttina. Sigríður Diljá Guðmundsdóttir ábúandi í Nýjubúð skoðar verksummerki.
SSV telur að fjölga eigi verkefnum
Heilbrigðiseftirlits Vesturlands
Kortleggja helstu áherslur í
komandi kjaraviðræðum
Félagsmenn VS leggja helst áherslu á að tryggja
kaupmátt, hækka skattleysismörk og hækkun
lægstu launa.