Skessuhorn


Skessuhorn - 28.08.2013, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 28.08.2013, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013 Sylvía Björk Jónsdóttir er 18 ára stúlka frá Akranesi sem tekur að sér að þrífa og bóna bíla. Sylvía Björk hefur sett upp Facebook-síðunna Bílaþvottur Sylvíu þar hægt er að nálgast upplýsingar um þvottinn, meðal annars verð og aðrar upp- lýsingar fyrir bíleigendur. Einnig kemur þar fram að boðið er upp á að sækja og skila bílum eftir óskum. Dugnaður þessarar ungu kjarn- orkukonu vakti athygli Skessu- horns og því ákveðið að kynnast henni betur. Þolir ekki skítuga bíla Sylvía Björk byrjaði með þessa þjónustu í endaðan júlí í sumar og hefur fengið að nota aðstöðu sem faðir hennar á við Ægisbraut. Hug- myndin var lengi í smíðum en eftir að hún fór loks af stað hefur henni gengið afar vel. „Það voru eiginlega bræður mínir sem áttu þessa hug- mynd og voru þeir alltaf á leiðinni að byrja með einhvers konar bíla- þvottaþjónustu. Það endaði svo með því að ég tók við þeirra hug- mynd og bara dreif í þessu.“ Að hennar sögn er þetta mikil vinna en meðfæddur áhugi hennar fyr- ir bílum og stuðningur frá fjöl- skyldunni hjálpuðu mikið til. „Ég hef verið með bíladellu frá fæð- ingu og er hún eiginlega ættgeng. Afi minn var með mikla bíladellu og pabbi minn og bræður eru líka áhugasamir. Ég er því alin upp við bíla og hef lært mikið um hvernig eigi að annast þá af fólkinu í kring- um mig. Skítugir bílar er eitthvað sem ég þoli ekki og var mér eigin- lega kennt það strax sem barni að bílar ættu alls ekki að vera óhreinir. Þeir bílar sem ég er að fá til mín eru oft verulega óhreinir og það getur því oft tekið langan tíma að þrífa þá svo þeir standist mínar kröfur,“ segir Sylvía Björk. Ætlar að halda áfram í vetur Sylvía Björk er nú að hefja sitt þriðja ár við nám í Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi en ætlar að bjóða áfram upp á bíla- þvott í vetur. Hún segist aðallega nota samfélagsmiðla til að koma sér á framfæri og virðist sem það hafi skilað góðum árangri. „Ég hef aðallega notað Facebook og er með síðu þar sem heitir Bílaþvott- ur Sylvíu sem hundrað manns hafa „líkað við“ á þeim stutta tíma sem hún hefur verið uppi. Ég hef mjög gaman að því að dunda mér við að bóna bílana og gera þá fína. Ég reyni alltaf að gefa mér góð- an tíma til verkanna og gera þetta eins vel og hægt er. Ég bjóst þó aldrei við svona góðum viðbrögð- um og hef ég haft nóg að gera síð- an ég byrjaði. Þetta er svona vinna sem fer oft fram þegar fólk er í fríum og þarf þá ekki nauðsyn- lega á bílunum sínum að halda, eins og á kvöldin og um helgar. Það verður því fínt að hafa þetta sem vinnu meðfram skólanaum í vetur. Fólk getur pantað hjá mér í gegnum Facebook eða hringt og sent skilaboð í númerið mitt og við finnum svo þann tíma sem hentar best,“ segir Sylvía Björk og bætir við að hún er líka með nokkur tilboð. „Ég býð til dæmis upp á afslátt fyrir öryrkja og eldri- borgara. Þá býð ég einnig öllum að láta sækja bílinn sinn og skutla honum aftur heim í hlað án nokk- urs auka kostnaðar. Mér datt í hug að fólki þætti það þægilegra en að þurfa að verða sér úti um far til baka eftir að það skilur bílinn eft- ir hjá mér.“ Bjartsýn á framhaldið Sylvía Björk segir að ekki séu margar stelpur á hennar aldri sem hafi jafn brennandi áhuga fyrir bílum eins og hún, eða láti sér detta eitthvað svona í hug. „Ég held að fólki finnist kannski skrýtið að það sé stelpa sem er í þessu. Þessi hugmynd mín er þó enn bara á byrjunarstigi en þetta er eitthvað sem mér finnst virkilega skemmtilegt að gera. Hver veit svo hvað framtíðin ber í skauti sér, sér- staklega ef reksturinn heldur áfram að ganga vel,“ segir Sylvía bjartsýn um framtíðina. jsb Fresta þurfti Skessuhornsmótinu í knattspyrnu snemma í sumar vegna vallarframkvæmda á Skalla- grímsvelli í Borgarnesi, en mótið var endurvakið í fyrra eftir nokk- urra ára hlé. Nú hefur stjórn knattspyrnudeildar Skallagríms ákveðið að blása til mótsins og það verði á Skallagrímsvelli laugardag- inn 7. september nk., en mótið er haldið í samvinnu deildarinnar og Vesturlandsblaðsins Skessuhorns. Sem fyrr er fyrirkomulag móts- ins, keppni sjö manna liða og leik- tíminn 2x10 mínútur. Um blönd- uð lið af báðum kynjum getur ver- ið að ræða og m.a. höfðað til fyr- irtækja og vina- og kunningjahópa að senda lið til mótsins. Aldurs- lágmark er 16 ár. Skráning á mót- ið ber að senda á neffangið knatt- spyrna@skallagrimur.is og er síð- ustu forvöð til þess 5. september nk. Þátttökugjald er 15.000 krónur á lið en í boði verða vegleg verð- laun, veitingar, sundferð og heit- ir pottar, auk heiðursins „Vestur- landsmeistarar 2013.“ Búist er við harðri keppni og í tilkynningu seg- ir að sjúkrabifreið verði á staðn- um. þá Valdís Þóra Jónsdóttir, sem ver- ið hefur fremsti kylfingur Leynis mörg síðustu árin, segist fara inn í haustið og veturinn full keppnis- skaps og áhuga fyrir íþróttinni. Hún hefur sett stefnuna á úrtökumót fyrir Evrópumótaröðina sem hald- ið verður í Marokkó í desember. Í samtali við Skessuhorn segist Valdís Þóra reyndar stefna ákveðið að því að verða atvinnumaður í golfi og þar með fórna áhugamannaréttind- um um tíma. Verkefni þessu tengdu sé mjög kostnaðarsamt en hún hafi sterkt bakland sem hennar klúbbur Leynir er og fjölskyldan, auk þess sem hún treysti á stuðning fyrir- tækja. Sunnudaginn 8. september verður haldið styrktarmót á Garða- velli til stuðnings Valdísi Þóru. Guðmundur Sigvaldason fram- kvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis segir að klúbburinn og klúbbfélag- ar standi heilshugar að baki Valdísi Þóru og hún verði studd eins og mögulegt er, enda Valdís einn mesti afreksmaður klúbbsins til margra ára, fjórum sinnum hafi hún ver- ið kjörin íþróttamaður Akraness og sé margfaldur Íslandsmeistari í sinni íþrótt. Vandað verður mjög til styrktarmótsins, að sögn Guð- mundar, verðlaun vegleg og þessa dagana er aflað styrkja hjá fyrir- tækjum vegna mótsins. Frjáls fram- lög eru vel þegin en allur hagnaður af mótinu rennur óskiptur til Val- dísar Þóru vegna þeirra verkefna sem hún er að ráðast í. Mesta áskorun kven- kylfings á Íslandi Þau verkefni sem Valdís Þóra hefur ákveðið að ráðast í er mesta áskor- un kvenkylfings á Íslandi um þessar mundir. Rúmlega 300 kvenkylfing- ar munu á úrtökumótunum í Mar- okkó í desember berjast um 30 sæti sem gefa beinan rétt til þátttöku í Evrópumótaröðinni á næsta ári, en nokkrum sem þar koma næst veit- ist réttur til að keppa á einstökum mótum í mótaröðinni. Valdís segist hafa fulla trúa á því að henni takist að komast í gegnum úrtökuna og á lokahring úrtökumótsins, en kepp- endur þurfa að fara í gegnum þrjár síur áður. Valdís Þóra segist vera í góðu formi um þessar mundir og hún eigi mikið inni. „Leikskipulag- ið hefur brugðist mér aðeins á mót- unum hér heima í sumar, en heilt yfir hef ég verið að spila vel. Nú er bara að æfa vel í haust,“ segir Val- dís Þóra. Aðspurð segir hún að það verði þó ekki gott að æfa hérna heima og því ætli hún að fara til Florida og æfa þar í tvo mánuði. Guðmundur Sigvaldason fram- kvæmdastjóri Leynis segir að allt kapp verði lagt á að styðja við Val- dísi Þóru, enda vitað að henni er fjárvant eftir að hafa nýlokið há- skólanámi, en Valdís hefur numið í Texas síðustu fjóra vetur auk þess að æfa og keppa í háskólagolfinu. Guðmundur segir að vonir standi til að styrktarmótið fari langt með að skapa þann bakhjarl fyrir hana sem þarf, en lágmarkskostnaður vegna Marokkó í desember er ein milljón króna, auk þess sem pen- inga vantar fyrir hana til uppihalds við æfingar á Florida fyrir mótið í Marokkó. Valdís Þóra segir að þeg- ar ráðist sé í svona verkefni verði það eins og að reka fyrirtæki, en hún stefni einbeitt að því að kom- ast í atvinnumennskuna og sé tilbú- in með áætlun í því sambandi. þá Skessuhorns- og Vesturlandsmeistarar 2012. Skessuhornsmótið í knatt- spyrnu viku af september Styrktarmót fyrir Valdísi Þóru sem stefnir á Evrópumótaröðina Sylvía Björk vinnur hörðum höndum að gera alla þá bíla sem koma til hennar tandurhreina og glansandi fína. Átján ára með bíladellu og þvottastöð

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.