Skessuhorn


Skessuhorn - 28.08.2013, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 28.08.2013, Blaðsíða 13
13MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013 Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466 Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00. ODORITE ÖRVERUHREINSIR MILDEX-Q MYGLUEYÐIR WIPE OUT OFNA OG GRILLHREINSIR NOVADAN KLÓRTÖFLUR - Í POTTINN SEPT-O-AID ÖRVERUR FYRIR ROTÞRÆR HÁÞRÝSTIDÆLUR ERTU Á LEIÐ Í BÚSTAÐINN ÚRVALS VÖRUR FYRIR VIÐHALDIÐ OG VERKIN Í BÚSTAÐNUM. KÍKTU Í KEMI BÚÐINA OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ! ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA BLIKKSMIÐJA Loftræstingar – Reykrör Klæðningar – Nýsmíði Viðhald – Efnissala JÁRNSMIÐJA Gjafagrindur – Nýsmíði Viðhald – Þjónusta Hesthúsinnréttingar RAFMAGNS- VERKSTÆÐI Nýlagnir – Viðhald Viðgerðaþjónusta Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is Akranesvöllur ÍA – KR Sunnudaginn 1. september kl. 18.00 Allir á völlinn Haustfagnaður Kaupfélags Borg- firðinga verður haldinn í sjötta sinn á laugardaginn klukkan 12-16 á planinu hjá Kaupfélaginu. Áður hefur hátíðin gengið undir nafninu Sumarhátíð KB en ákveðið var að breyta því í ár sökum veðurfars og árstímans. Gestum á hátíðina hef- ur farið fjölgandi samkvæmt Mar- gréti Katrínu Guðnadóttur versl- unarstjóra KB. „Í fyrra komu um þúsund manns til okkar og aðsókn- in er alltaf að aukast,“ segir hún. Margrét segir hátíðina verða með svipuðu sniði og áður en margt er á dagskrá og má þar nefna bændaþríþrautina þar sem keppt er í kerlingadrætti, hornstaurakasti og keppt verður um Íslandsmeist- aratitilinn í reiptogi og enn er opið fyrir skráningar liða. Einnig verður skeggjaðasti bóndinn krýndur. „Í fyrra var keppt í bestu bændabrún- kunni en við ákváðum af praktísk- um ástæðum að það myndi ekki henta í ár,“ segir Margrét. Búnað- arfélag Mýramanna stendur vakt- ina við grillið, Freyjukórinn mun bjóða upp á vöfflur og sölubás- ar verða á staðnum. Einnig verður ýmislegt í boði fyrir börn og munu þau geta veitt fiska upp úr kör- um sem verða á staðnum, en þeim stendur einnig til boða að koma með dýrin sín og sýna þau. „Ég vil hvetja börn til að koma og sýna dýrin sín, það verða ýmis verðlaun í boði og svo verð ég þarna sem dýralæknir og skoða dýrin, tennur og klippi jafnvel klær. Allir eru vel- komnir á hátíðina og ég hvet fólk til að tryggja sér sölubás,“ segir Margrét að endingu. sko Hátíðin Hvalfjarðar- dagurinn verður haldin næstkomandi laugardag í Hvalfjarðarsveit. Hún er að þessu sinni haldin á fimm stöðum í sveitinni: Á Bjarteyjarsandi, á Hót- el Glym, í Ferstikluskála, á Þórisstöðum og í Her- námssetrinu á Hlöðum. Hljómsveitin Sveitin, sem skipuð er af ungu og efni- legu tónlistarfólk úr Hval- fjarðarsveit, mun flakka á milli staða og leika fyrir gesti. Á laug- ardaginn klukkan níu um morg- uninn verður golfmót á Þórisstöð- um og meðal annarra við- burða má nefna gönguferð á Akrafjall, sveitamarkað á Þórisstöðum og drátt- arvélasýningu, óvenjulegt uppboð á Hótel Glym, kvöldvöku á Bjarteyjar- sandi, sveitaball að Hlöð- um með Sálinni, ókeypis ís og pylsur við Ferstiklus- kála og margt fleira. Nán- ar má skoða dagskrána og aðrar upplýsingar á Fa- cebook síðu Hvalfjarðardagsins. sko Sunnudaginn 1. september er boð- að til íbúaþings í Heiðarskóla á veg- um Hvalfjarðarsveitar. Yfirskrift þingsins er „Hugsað til framtíðar,“ þar sem íbúar horfa til framtíðar og „Hugsa um það helst og fremst, sem heiðurinn má næra“ svo vitn- að sé í orð Hallgríms Pétursson- ar fyrrum sveitunga þeirra. „Mark- miðið með íbúaþinginu er að hvetja til samræðu um málefni þeirra sem búa í Hvalfjarðarsveit og horfa til framtíðar. Sveitarstjórn hyggst hlusta á skilaboð íbúa og hafa þau til hliðsjónar við sína ákvarðana- töku. Gefnar verða upplýsingar eft- ir þingið um hvernig unnið var úr skilaboðum,“ segir í tilkynningu frá Hvalfjarðarsveit. Kallað verður eftir hugmynd- um og ábendingum íbúa og er allt undir sem fólk vill ræða; atvinnu- mál, umhverfis- og skipulagsmál, skólamál og önnur málefni sam- félagsins. Spurt verður um hvað hefur tekist vel og hvað megi betur fara. Áherslan verður lögð á sam- ræðu, sem fer fram í litlum hóp- um, enginn þarf að standa upp og halda ræður og allir geta tekið þátt. Umsjón með þinginu er í höndum Sigurborgar Kr. Hannesdóttur hjá ILDI, þjónustu og ráðgjöf, en hún hefur sérhæft sig í þátttöku almenn- ings og samráðsverkefnum. Stýri- hóp skipa sveitarstjórnarfulltúrarn- ir Sævar Ari Finnbogason og Arn- heiður Hjörleifsdóttir, ásamt Lauf- eyju Jóhannsdóttur sveitarstjóra. Þingið verður haldið í Heiðarskóla og stendur frá kl. 11 – 14.30. Boðið verður upp á barnagæslu. Húsið verður opnað kl. 10.45 og þá verður kaffi á könnunni – og reyndar allan tímann. Þingið verð- ur sett kl. 11:00 og síðan hefst sam- ræða í litlum hópum. Boðið verð- ur upp á súpu í hádeginu og kl. 13.15. Verður horft til framtíðar með framsækni að leiðarljósi. Jafn- framt verður leitað svara við spurn- ingunni „Hvert er best varðveitta leyndarmál Hvalfjarðarsveitar?“ Stýrihópur væntir góðrar þátttöku og lofar lifandi og skemmtilegum degi, þar sem verið er að sækja í þekkingarbrunn og kraft íbúa – því betur sjá augu en auga. lj/mm Mikið verður um að vera í Hvalfirðinum um helgina. Hvalfjarðardagurinn haldinn hátíðlegur á laugardaginn Íbúaþing í Hvalfjarðar- sveit á sunnudaginn Kerlingadráttur hefur notið mikilla vinsælda á hátíðinni. Hér er „kerlingin“ á brettinu stjórnarformaður Kaupfélagsins, Guðrún á Glitstöðum. Fagna haustinu í Kaup- félaginu í Borgarnesi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.