Skessuhorn - 28.08.2013, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013
Svandís Bára Steingrímsdóttir í
Borgarnesi varð 70 ára í liðinni viku
og hélt hún afmælisveislu af því til-
efni. Svandís Bára ákvað að end-
urtaka leikinn frá því að hún varð
60 ára og gefa þann pening sem
fólk gaf henni í stað hefðbundinna
gjafa, til góðs málefnis. „Ég ákvað
þegar ég varð sextug að afþakka all-
ar gjafir og blóm. Ég hugsaði að ef
ég fengi mikið meira dót þyrfti ég
að fara að stækka við mig húsnæð-
ið auk þess sem ég er með ofnæmi
fyrir blómum. Ég bað þess vegna
fólk að áætla hvað það myndi eyða
í gjafir og gefa frekar pening sem
rynni til góðs málefnis. Ég setti svo
upp söfnunarbauk sem fólk setti í
og allur sá peningur rann til Félags
langveikra barna.“
Söfnunin gekk vel en 113 gest-
ir voru skráðir í gestabók sem lá
frammi í afmælisveislunni. Eft-
ir að peningarnir voru taldir kom
í ljós að heildarupphæð sjóðsins
nam 157.674 krónum. „Ég er al-
veg í skýjunum yfir þessu öllu sam-
an. Þetta var alveg hreint yndis-
legur dagur með góðu fólki. Ég vil
koma á framfæri ástarþakklæti til
þeirra sem mættu og gáfu í söfn-
unina og vil að auki þakka Kven-
félagi Álftaneshrepps sem hjálpaði
mikið til. Þá hvet ég alla sem halda
upp á afmælin sín að gera svipað
og nýta slík tímamót til að safna til
góðra málefna,“ sagði Svandís Bára
þegar búið var að telja peningana
sl. föstudag að viðstöddum blaða-
manni.
Það var svo Torfi Lárus Karls-
son, vinur Svandísar Báru, sem tók
við peningunum fyrir hönd félags-
ins, en Torfi hefur sjálfur glímt við
langvarandi veikindi. „Torfi átti
heima í húsinu á móti og hefur allt-
af verið góður vinur,“ segir Svandís
Bára brosandi, eftir að hafa komið
þessu rausnarlega framlagi til Fé-
lags langveikra barna.
jsb
KM réttingar og sprautun er fyr-
irtæki sem starfrækt er í Stykkis-
hólmi. Það hefur þjónað bíleigend-
um á stóru svæði frá því um mitt
ár 2011. „Við erum eina verkstæð-
ið á Snæfellsnesi og á enn stærra
svæði sem sérhæfir sig í sprautun
og réttingum á bílum. Ég held að
næsta verkstæði sé í Borgarnesi. Við
fáum einnig til okkar talsvert af bíl-
um frá sunnanverðum Vestfjörðum.
Þar gerir flóabáturinn Baldur gæfu-
muninn og eru bílar fluttir á milli í
skipinu,“ segir Áskell Áskelsson eig-
andi KM í samtali við Skessuhorn.
Í sumar hefur fjölda verkefna þó
fækkað hjá fyrirtækinu. „Við hjá
KM réttingum og sprautun erum
réttingaverkstæði og sérhæfum okk-
ur í réttingum, sprautun, hjólastill-
ingum, rúðuskiptum og rúðuvið-
gerðum, svo sem á stjörnum í fram-
rúðum, auk plastviðgerða. Verk-
efnastaða okkar hefur verið nokk-
uð góð þar til nú í sumar. Einhvern
veginn virðist botninn hafa fallið
úr þessu en það er vonandi að það
fari að lagast,“ segir Áskell. KM er
þjónustuaðili fyrir tryggingafélög
og þaðan koma mörg verkefni. „Við
erum með samning við öll trygg-
ingafélögin; VÍS, Sjóvá, Vörð og
TM. Þá erum við mjög vel tækjum
búnir og erum tveir sem störfum
hérna eins og er,“ segir Áskell.
sko
Fyrirtækið Snæfellsnes Excur-
sions, eða Rútuferðir ehf., hef-
ur verið starfrækt í tæpt ár. Fyrir-
tækið er rekið af þeim Hjalta Allan
Sverrissyni og Lísu Ásgeirsdóttur.
Hjalti er fæddur í Ástralíu en hef-
ur búið stærstan hluta ævi sinnar í
Grindavík, en Lísa er fædd og upp-
alin í Grundarfirði. „Við erum með
lítið rútufyrirtæki og með frek-
ar litla bíla. Við erum með samn-
ing við Samtök sveitafélaga á Vest-
urlandi og sjáum um strætóferðir á
öllu Snæfellsnesi. Við sjáum einn-
ig um leiðina Borgarnes – Stykk-
ishólmur. Við ökum undir nafni
Strætó og förum eftir þeirra leiða-
kerfi, en vinnum fyrir sveitarfé-
lögin. Þetta er í fyrsta skipti sem
Strætó er í boði hér á Snæfellsnesi,“
segir Hjalti. Á vegum Snæfellsnes
Excursions er auk reglubundinna
áætlanaferða farið í leiðsöguferðir,
einkaferðir og norðurljósaferðir.
Draumastarfið
Fyrirtækið hefur nú verið starfrækt
í um ár. „Við byrjuðum árið 2012.
Þá var ég búinn að vita af þessu til-
boði Strætó um tíma og ég var bú-
inn að fylgjast vel með því. Okkur
langaði að búa hér í Grundarfirði
og koma á ferðþjónustufyrirtæki
með rútur og þjóna ferðamönnum
og heimafólki líka,“ segir Hjalti
og við það bætir Lísa: „Við grip-
um tækifærið þegar það gafst. Við
bjóðum upp á litla bíla, 17 manna
og smærri. Grunnskóli Grundar-
fjarðar hefur nýtt þá starfsemi fyr-
ir ferðir með árganga og slíkt.“
Á þessu eina ári hefur fyrirtæk-
ið stækkað talsvert. „Við erum að
byggja fyrirtækið upp og það hef-
ur verið að stækka. Upprunalega
vorum við bara með einn bíl en
núna erum við með þrjá. Þetta er
draumastarfið mitt og er ég búinn
að vinna við þetta í tíu ár. Að keyra
og veita um leið leiðsögn.“ Hjalti
hefur ekið vörubílum víða um Evr-
ópu og hefur af þeim sökum búið í
ýmsum löndum. „Ég var með smá
ævintýraþrá í nokkur ár og lang-
aði að prófa svona vinnu. Þetta var
ótrúlega skemmtilegt en var um
leið mikið sjómannslíf.“
Verða meira vör við
ánægjuraddir
Fyrirkomulag strætóferðanna um
Snæfellsnes verður með öðru sniði
næstkomandi vetur. „Við erum með
stóra drauma um þetta svæði í ferða-
þjónustu. Strætó verður alltaf þann-
ig að farnar verða fastar ferðir, en þó
verða færri ferðir farnar í vetur, það
verður ekki ekið á þriðjudögum og
fimmtudögum í vetur en það þarf
ekki lengur að panta í ferðirnar eins
og var síðasta vetur,“ segir Hjalti.
Þau Hjalti og Lísa segja að
ánægja hafi aukist með áætlana-
ferðir á milli Reykjavíkur og Snæ-
fellsness og einnig með ferðirnar
milli sveitarfélaga á Snæfellsnesi.
„Við verðum vör við fleiri ánægju-
raddir en óánægðar og fólk talar
um verðið og annað. Það er orðið
ódýrt að ferðast með strætó og sér-
staklega fyrir öryrkja, eldri borgara
og börn. Við vonum að fólk haldi
áfram að taka okkur vel og gerum
okkar besta og höfum því bjartar
vonir til framtíðarinnar.“ Ennfrem-
ur segja þau að mikilvægt sé að fólk
í ferðaþjónustu á Snæfellnesi hjálp-
ist að og vinni saman. Sem dæmi
um ávinning samstarfs munu þau
sinna stórum hópum ferðamanna
í vetur sem koma á vegum Hótel
Framness í Grundarfirði. „Veðrið
var ekki gott í sumar og það hafði
áhrif, en það liggur við að við mun-
um hafa meira að gera í vetur en í
sumar,“ segir Hjalti.
Gefa endurskinsmerki
Þegar skemmtiferðskip koma til
Grundarfjarðar er ferðamönnun-
um smalað saman í rútur á bryggj-
unni og þeim ekið í kynnisferðir.
Rúturnar sem notaðar eru til verks-
ins koma allar að sunnan og því
vilja þau breyta. „Það hefur gerst
einu sinni í sumar að við höfum far-
ið með fólk af skemmtiferðarskipi.
Þá voru það ferðamenn á skipi sem
höfðu samband við okkur og vildu
sérstaka ferð. Þetta fólk hafði séð
okkur á netinu og vildu breyta til.
Annars eru allar rúturnar sem fara
með þetta fólk fengnar að sunnan,“
segja þau.
Í tilefni af eins árs afmæli fyrir-
tækisins ætla Hjalti og Lísa að gefa
nemendum á svæðinu endurskins-
vesti. „Reksturinn hefur gengið vel
og okkur langar að gefa samfélaginu
til baka. Í byrjun september ætlum
við að gefa öllum fyrstubekking-
um á Snæfellsnesi endurskinsvesti
og öllum nemendum leikskólanna
endurskinsmerki frá Strætó,“ segja
þau að endingu.
sko
Hjalti Allan Sverrisson og Lísa Ásgeirsdóttir.
Mikilvægt að fólk í ferðaþjónustu vinni saman
Rætt við Hjalta Allan Sverrisson og Lísu Ásgeirsdóttur í Grundarfirði
Svandís Bára og Torfi Lárus með afmælissjóðinn á eldhúsborðinu.
Gaf Félagi langveikra
barna afmælissjóðinn
KM er starfrækt í húsnæði þar sem fyrirtækið Ásmegin var til húsa.
KM réttingar og sprautun
þjónar stóru landssvæði
Áskell Áskelsson eigandi KM réttinga og sprautunar í Stykkishólmi.