Skessuhorn


Skessuhorn - 28.08.2013, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 28.08.2013, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGÚST 2013 Hótelið boðið til sölu HELLISSANDUR: Með aug- lýsingu í Morgunblaðinu í síð- ustu viku var Hótel Hellissand- ur boðið til sölu. Hótelbygging- in er er nýleg og reisuleg, byggð 2001. Það er nú með 20 her- bergjum en við hönnun þess var hafður opinn sá möguleiki að byggja mætti hæð ofan á núver- andi hæðir og fjölga herbergj- um um 16-20. Að Hótel Hell- issandi stendur um tugur hlut- hafa. Byggðastofnun á stærstan hlut, tæpan fjórðung, en aðrir hluthafar eiga minna, en í hópi þeirra eru t.d. Júlíus Jónsson, Skúli Alexandersson, Magnús Sigurðsson auk fiskvinnslufyrir- tækjanna Hraðfrystihúss Hellis- sands, KG fiskverkunar, Sjávar- iðjunnar í Rifi og fleiri. Að sögn eins hluthafans sem Skessuhorn ræddi við er hugmyndin með auglýsingunni að kanna hvort áhugasamir kaupendur finnist að byggingum og rekstri og eru menn reiðubúnir að selja hluta- bréfin ef viðunandi tilboð fæst. –mm Helga í bæjarstjórn STYKKISH: Fyrir fundi bæj- arstjórnar Stykkishólms sl. þriðjudag lá bréf frá Agli Eg- ilssyni, einum af fjórum fulltrú- um L-lista, þar sem hann sagði sig úr bæjarstjórn vegna flutn- ings úr bænum, en Egill starfar nú og býr í Reykjavík. Á fundin- um var tilkynnt að Helga Guð- mundsdóttir myndi taka sæti Egils í bæjarstjórn, en hún hef- ur verið varabæjarfulltrúi L- lista sem við síðustu kosningar komst í meirihluta bæjarstjórn- ar Stykkishólms. Egill þakkaði í bréfinu bæjarstjórnarfólki sam- starfið. -þá Atvinnuleysi minnkar LANDIÐ: Samkvæmt Vinnu- markaðsrannsókn Hagstofu Ís- lands voru að jafnaði 192.400 manns á vinnumarkaði í júlí. Af þeim voru 186.400 starfandi og 5.900 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 85,2%, hlutfall starfandi 82,6% og at- vinnuleysi var 3,1%. Frá júlí 2012 hefur atvinnuleysi minnk- að um 1,3 prósentustig, en þá var það 4,4%. Atvinnuleysi í júlí 2013 var 3,6% á meðal karla miðað við 5,8% í júlí 2012 og meðal kvenna var atvinnuleysi 2,6% miðað við 2,9% frá fyrra ári. –sko Landsmót skóla- lúðraveita 2014 STYKKISHÓLMUR: Sam- tök íslenskra skólalúðrasveita, eða SÍSL, munu halda Lands- mót fyrir lúðrasveitir í Stykk- ishólmi helgina 4. – 6. apríl 2014. Um er að ræða mót fyr- ir B-sveitir svokallaðar, sem eru skipaðar nemendum í 6. – 8. bekk í grunnskóla og hafa spil- að í þrjú ár eða lengur. Um 300 börn munu sækja Stykkishólm heim og mun foreldrafélag Tónlistaskólans í Stykkishólmi vinna með SÍSL að undirbún- ingi landsmótsins. Þá má geta þess að haldið verður upp á 70 ára afmæli Lúðrasveitar Stykk- ishólms sumardaginn fyrsta á næsta ári. –sko Nýir eigendur að Meistaranum STYKKISH: Feðgarnir Aðal- geir Bjarki Þorsteinsson og Þor- steinn Jónasson frá Kóngsbakka hafa keypt Pulsuvagninn Meist- arann í Stykkishólmi. „Við ætl- um að breyta aðeins til og setja upp nýjan matseðil. Við höfum tekið inn nýja pylsu sem heitir Friðrik og hún hefur komið vel út,“ segir Aðalgeir í samtali við Skessuhorn. Meistarinn verður opinn um næstkomandi helgi og af og til í vetur. –sko Spá um mannfjölda LANDIÐ: Hagstofa Íslands gaf nýverið út spá um mann- fjöldaþróun hér á landi 2013- 2060 í ritröðinni Hagtíðindi. Þrjú afbrigði eru gerð af spánni; lágspá, miðspá og háspá og miða spárnar við ólíkar forsendur um fjölda barna á ævi hverrar konu og búferlaflutninga. Mannfjöldi á Íslandi er nú 323.810 og sam- kvæmt lágspánni verða Íslend- ingar 387.597 árið 2060, sam- kvæmt miðspánni verða þeir 430.545 og samkvæmt háspánni 490.976. Allt tímabilið er gert ráð fyrir jákvæðum flutnings- jöfnuði. Meðalævi mun halda áfram að lengjast hjá bæði körl- um og konum. Nú geta nýfædd- ir drengir vænst þess að verða 80,8 ára gamlir og stúlkur 83,9 ára. Við lok spátímabilsins mun meðalævi drengja vera 86,8 ár og stúlkna 88,2 ár. –sko Aflatölur fyrir Vesturland 17. - 23. ágúst. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 9 bátar. Heildarlöndun: 13.839 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 10.778 kg í tveimur löndunum. Strandveiði: Sæli AK: 478 kg í einni löndun. Arnarstapi 23 bátar. Heildarlöndun: 94.810 kg. Mestur afli: Mangi á Búðum SH: 17.377 kg í sex löndunum. Grundarfjörður 10 bátar. Heildarlöndun: 393.473 kg. Mestur afli: Klakkur SK: 84.206 kg í tveimur löndunum. Ólafsvík 32 bátar. Heildarlöndun: 198.749 kg. Mestur afli: Brynja SH: 35.000 kg í sjö löndunum. Rif 25 bátar. Heildarlöndun: 291.172 kg. Mestur afli: Tjaldur SH: 37.293 kg í einni löndun. Stykkishólmur 1 bátur. Heildarlöndun: 932 kg. Mestur afli: Hólmarinn SH: 932 kg í einni löndun. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Hringur SH – GRU: 68.676 kg. 20. ágúst. 2. Eyborg ST – GRU: 56.614 kg. 19. ágúst. 3. Klakkur SK – GRU: 53.597 kg. 18. ágúst. 4. Sóley SH – GRU: 42.218 kg. 21. ágúst. 5. Tjaldur SH – RIF: 37.293 kg. 19. ágúst. sko Um þessar mundir eru fyrirtæki í Samtökum aðila ferðaþjónustunnar (SAF) að fá bréf og upplýsingar frá Íslandsstofu vegna átaksins „Ísland allt árið,“ en undirbúningur fyrir þriðja og síðasta veturinn í þessari lotu átaksins stendur nú yfir. „Jafn- vel þótt menn kunni að greina á um hvað valdi því þá er það staðreynd að fjölgun ferðamanna yfir veturinn hefur verið gríðarleg síðastliðin tvö ár. Sem dæmi má nefna að fjölg- unin í febrúar og mars sl. var 43- 45%. Ákveðið hefur verið að halda fundi á nokkrum stöðum á landinu í september. Þar munu fulltrúar Ís- landsstofu kynna markaðsaðgerð- irnar en fulltrúar SAF á fundunum munu ennfremur fara yfir helstu hagsmunamál í ferðaþjónustu. Við hvetjum félagsmenn SAF til að mæta á þessa fundi og taka þátt í þessu mikilvæga verkefni,“ segir í tilkynningu frá SAF. Hér á Vesturlandi er ráðgert að halda fundi á Hótel Hamri í Borg- arnesi miðvikudaginn 18. sept- ember kl. 10.00-11.30 og á Hótel Framnesi í Grundarfirði sama dag frá klukkan 14.00-15.30. mm Í nýlegri skýrslu Ferðamálastofu um fjármögnun uppbyggingar og viðhalds ferðamannastaða sem verkfræðistofan ALTA vann fyrir skömmu kemur í ljós að skatttekjur af ferðamönnum eru sagðar verða u.þ.b. 27 milljarðar króna á þessu ári auk allskyns sérgjalda, vöru- gjalda og tolla. „Á sama tíma sitja innviðir ferðaþjónustannar á hak- anum. Viðhaldi ferðamannastaða hefur ekki verið sinnt sem skyldi, víða hefur skipulagi í sveitarfé- lögum ekki verið lokið og haml- ar það uppbyggingu ferðamanna- staða, ferðamannavegir fá lítið við- hald og lítið fé er til uppbygging- ar á forsendum ferðaþjónustunar. Ferðaþjónustan fær innan við 1% af öllu rannsóknarfé atvinnuveg- anna og svo mætti lengi telja,“ segir í tilkynningu frá Samtökum ferða- þjónustunnar. Þá segir að gríðar- legur vöxtur sé í ferðaþjónustunni, sem er ein stærsta gjaldeyrisskap- andi atvinnugrein landsins, og kalli það á vöxt nauðsynlegra innviða. „Samtök ferðaþjónustunnar hvetja stjórnvöld til að skoða hversu lít- ið brot af þessari háu skattgreiðslu þarf til þess að koma þessum mál- um í lag.“ mm Skagakonan Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Hún tekur við starfinu af Ingu Hrefnu Sveinbjarnardóttur sem starfar nú sem aðstoðarmaður Kristjáns Þórs Júlíussonar heil- brigðisráðherra. Þórdís Kolbrún er 26 ára lögfræðingur. Hún var kosningastjóri Sjálfstæðisflokks- ins í Norðvesturkjördæmi fyr- ir síðustu alþingiskosningar en áður starfaði hún m.a. hjá sýslu- manninum á Akranesi, Marel og úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Þórdís Kolbrún hefur verið virk í félagsstörfum og m.a. verið formaður ungra sjálfstæðismanna á Akranesi, set- ið í stjórn SUS og stjórn Lög- réttu, félags laganema við Há- skólann í Reykjavík. mm Í síðustu viku voru iðnaðarmenn í óða önn við að ljúka viðgerðum á byggingu Grunnskólans í Borgar- nesi. Lagfæringar þessar hafa stað- ið yfir í nokkurn tíma en að sögn Kristjáns Gíslasonar skólastjóra voru framkvæmdirnar nauðsynleg- ar vegna rakaskemmda sem komu upp í skólahúsinu og því tafðist upphaf skólahalds fram í þessa viku á meðan verið var að leggja loka- hönd á verkið. „Það var kominn mikil þörf á viðhald hjá skólanum. Það er allt- af eitthvað sem þarf að laga en þetta sumarið var það ögn meira en bú- ist var við. Það er verið að dúk- leggja og skipta um glugga núna en við höfum einnig verið að bæta að- stöðu nemenda og sett upp sjón- varpsskjái á gangana sem og nýja rennihurð við einn af inngöngum í skólann,“ segir Kristján. Síðastlið- inn mánudag var svo skólasetning og hófu þá nemendur og starfsfólk skólans nýtt skólaár í endurbættri byggingu. jsb Ný rennihurð sett við gamlan inngang skólans. Viðgerðir á Grunnskólanum í Borgarnesi Verið var að leggja lokahönd á framkvæmdir í skólanum á föstudaginn. Miklar skatttekjur af ferðaþjónustu Ráðin framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins Fundað verður 18. september um átakið Ísland allt árið

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.