Skessuhorn


Skessuhorn - 23.10.2013, Síða 10

Skessuhorn - 23.10.2013, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013 Bormenn komu síðdegis á fimmtu- dag niður á heitt vatn í landi Lyng- haga rétt vestan við Vegamót í Eyja- og Miklaholtshreppi. Fyrstu mæl- ingar bentu til að minnsta kosti sjö sekúndulítrar af tæplega 100 gráðu heitu vatni hefðu fundist á um 350 metra dýpi. Skessuhorn greindi frá því í síðustu viku að heitavatnsleit hófst á tveimur stöðum í hreppnum í byrjun október. Annars vegar var hún á vegum hreppsins og félags í eigu hjónanna Ólafs Ólafssonar (sem er kenndur við Samskip) og eiginkonu hans Ingibjargar Krist- jánsdóttur. Ólafur og Ingibjörg eiga jörðina Miðhraun I í sveitinni. Sú leit hefur staðið yfir með bor- un í land jarðarinnar Eiðhús sem er í eigu Ólafs og Ingibjargar. Hins vegar er heitavatnsleitin á vegum hjónanna Sigurðar Hreinssonar og Bryndísar Huldu Guðmundsdótt- ur. Þau eiga Miðhraun II þar sem þau reka stóra fiskþurrkunarverk- smiðju. Sigurður og Bryndís vildu láta reyna á að finna heitt vatn í sínu landi og réðu fyrirtækið Vatns- borun ehf. til að bora í Lynghaga. Tíðindi á fimmtudegi Á fimmtudaginn í liðinni viku átti blaðamaður Skessuhorns leið vest- ur í Stykkishólm til fréttaöflunar. Hann kom við laust eftir hádegi á borstaðnum í Lynghaga enda í al- faraleið við hliðina á þjóðvegin- um rétt vestan við veitingaskálann á Vegamótum. Þá unnu Árni Kóps- son og menn hans hjá Vatnsbor- un efh. að borun sem hafði staðið yfir síðan á föstudag án þess þó að hafa orðið varir við heitt vatn. Þeg- ar blaðamaður sneri aftur suður frá Stykkishólmi og nálgaðist Vega- mót um sex leytið að kvöldi sama dags var augljóst að eitthvað mik- ið hafði gerst. Hár gufustrókur reis til himins frá borstaðnum. Þeg- ar komið var að bornum ríkti þar mikil gleði. Heita vatnið var fund- ið og það fossaði upp úr holunni og streymdi meðfram þjóðveginum í átt að Vegamótum. „Þetta er bara að gerast. Klukk- an var um fjögur nú síðdegis þegar við stóðum hérna ég og rafvirkinn og vorum að velta fyrir okkur hvort vatnið væri að aukast sem kom upp. Ég segi við hann: „Já, þetta er eitt- hvað að aukast, þetta er að aukast.“ Það komu svona smá gusur og ég sagði við hann að um leið og við fyndum heitt vatn þarna niðri þá myndi hætta að seytla upp úr hol- unni. Um leið og ég hafði sagt þetta þá hvarf vatnið. Við trúð- um ekki okkar eigin augum og ég hélt að eitthvað hefði bilað. En svo bara stuttu seinna kom gusan. Þetta eru sjö sekúndulítrar sem koma úr henni nú, kannski meira. Þetta nægir fyrir okkar rekstur og meira til,“ sagði Sigurður Hreinsson og gat ekki leynt gleði sinni. Ætla að bora dýpra Ekki kom á óvart þótt léttis og kát- ínu gætti á borstaðnum þar sem lagt hafði verið út í þessa fram- kvæmd upp á von og óvon og mik- ið í húfi að heitt vatn fyndist. „Þetta er alveg magnað. Við erum komin niður á 360 metra dýpi núna en ég vil halda áfram og fara niður á 500 metra. Þeir eru enn að bora en það gengur mjög hægt því það kem- ur svo mikið vatn upp á móti born- um. Hamarinn nær ekkert að lemja fyrir vatninu. Hitinn á vatninu þeg- ar það kemur upp er um 70 gráð- ur. Það er þá sennilega 90 til 100 gráður niðri á 350 metrunum. Nú förum við bara í að leggja hitaveitu heim, sagði Sigurður fimmtudags- kvöldið 17. október þar sem hann gladdist með eiginkonu sinni, dótt- ur, tengdaforeldrum, vinum og bormönnum yfir því að hafa fundið þessa dýrmætu auðlind. Þegar haft var samband við Sig- urð nú á mánudaginn sagði hann að enn streymdi vatn úr borhol- unni og að menn gerðu sér vonir um að rennslið væri 10 til 15 sek- úndulítrar. „Það er svolítið erfitt að dæma um þetta því borinn er enn í holunni og virkar þannig eins og tappi og hamlar vatnsrennslinu upp á yfirborðið. Þar mælist vatnið nú 82 gráðu heitt. Það hefur ekki verið borað dýpra enn því við bíðum eft- ir borkrónu erlendis frá. Síðan ætl- um við að vatnsbora niður á meira dýpi,“ sagði Sigurður Hreinsson á Miðhrauni II. mþh Þessa dagana er kornuppskerunni náð af ökrum á Melum í Melasveit, en frá síðasta vori hafa þar verið stærstu kornakrar á Vesturlandi. Í vor var sáð byggi í 150 hektara og búið er að þurrka enn meira land sem áætlað er að sáð verði í næsta vor. Kornræktin á Melum er á veg- um svínabús Stjörnugríss sem þar er starfrækt. Geir Gunnar Geirs- son framkvæmdastjóri Stjörnugríss segir að stefna búsins og fyrirtæk- isins sé að vera sem mest sjálfbær með fóður. Hann segir að áætlað sé að allt að því tvöfalda kornræktina á Melum næsta sumar og innan fárra ára verði þar sáð korni í allt að 500 hektara. Gríðarlegt magn korns þurfi til að fóðra svínin árlega en Stjörnugrís elur um 24 þúsund grísi á ári. Til að minnka innflutninginn á korni segir Geir Gunnar að stefnt sé á að rækta og kaupa af bændum um 70% af því byggi sem þörf er á í fóður fyrir svínin. „Þetta er sú bú- grein sem kornið nýtist best til og þess vegna viljum við auka til muna byggræktina í landinu. Við keypt- um í haust korn af Haraldi bónda á Reyn og höfum fullan hug á korn- kaupum frá fleiri bændum,“ segir Geir Gunnar. Stjörnugríssbúið er byrjað að tækjavæðast í sambandi við korn- ræktina. Búið er að koma korn- þurrkara fyrir á hlaðinu og unnið að því að byggja í kringum hann. Tvær sláttu- og þreskivélar voru leigðar til að ná korninu á ökrunum á Mel- um. Þeir eru þurrir og þrifalegir á að líta núna í hauststillunum. Upp- skeran er hinsvegar ansi rýr eins og reyndar er um allt land þetta haust- ið eftir óhagstæða veðráttu í sumar til kornræktar. Þeir hefðu því getað verið heppnari kornbændur í Mela- sveit í upphafi sinnar kornræktar, en stundum er sagt að erfið byrjun sé vísir á fararheill. „Við erum þó að fá hátt í þrjú tonn af hektara þar sem best lætur og okkur finnst það bara jákvætt. Þarna voru bara móar áður,“ segir Gunnar Geir. Hálm- urinn af ökrunum er síðan notaður undir nautgripi. þá Kornakrarnir þresktir á Melum í Melasveit Kornþresking á Melum í Melasveit. Sláttumaðurinn Sigurður Hermannsson frá Barká í Hörgárdal með sýnishorn af akrinum, en oftast hafa kornakrarnir verið fallegri en núna í sumar. Búið er að koma fyrir kornþurrkara á hlaðinu á Melum. Fundu heitt vatn í Lynghaga í Eyja- og Miklaholtshreppi Hjónin Sigurður Hreinsson og Bryndís Hulda Guðmundsdóttir að Miðhrauni II standa kampakát í gufumekkinum við borholuna í Lynghaga rétt eftir að heita vatnið fannst síðdegis á fimmtudag. Bormenn Vatnsborunar ehf. glaðir í bragði í gufumekkinum eftir að hafa fundið heita vatnið. F.v. Sigurður Jónsson, Matthías Leó Árnason, Árni Kópsson og Konráð Haraldsson..

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.