Skessuhorn - 23.10.2013, Side 27
27MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013
Nú gefst þér tækifæri!
Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi býður upp á nám
sem heitir Skrifstofuskólinn.
Tilgangurinn með náminu í Skrifstofuskólanum er að auka sjálfstraust námsmanna til að
takast á við almenn skrifstofustörf og stuðla að jákvæðu viðhorfi þeirra til áframhaldandi náms.
Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, efli sjálfstraust sitt og lífsleikni.
Námsaðferðir eru aðallega byggðar á hagnýtum viðfangsefnum sem auðvelt er að yfirfæra á
almenn skrifstofustörf.
Skrifstofuskólinn verður í boði á tveimur stöðum á Vesturlandi nú í haust.
Snæfellsnes:
Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18:00 - 20:55.
Kennsla fer fram í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Námið hefst 5. nóvember og lýkur í apríl 2014.
Verð: 44.000
(Hægt er að sækja um styrk vegna námsgjalds til fræðslusjóða stéttarfélaga).
Borgarnes:
Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18:00 - 20:55.
Kennsla fer fram í húsnæði Símenntunar í Borgarnesi.
Námið hefst 29. október og lýkur í apríl 2014.
Verð: 44.000
(Hægt er að sækja um styrk vegna námsgjalds til fræðslusjóða stéttarfélaga).
Nánari upplýsingar veitir Helga Björk Bjarnadóttir á netfangið helga@simenntun.is
eða í síma 894 3061.
Námskrána má finna hér: http://frae.is/namsskrar/skrifstofuskolinn/
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Staða bókara/sérfræðings hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands
er laus til umsóknar. Um er að ræða 100% starf í langtíma
afleysingu, frá og með 1. janúar 2014 til og með 1. september
2015. Þó er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf fyrr sé þess
kostur.
Heilbrigðisstofnun Vesturlands saman stendur af átta starfsstöðvum,
Akranes, Borgarnes, Búðardalur, Grundarfjörður, Hólmavík,
Hvammstangi, Ólafsvík og Stykkishólmur. Starfsstöð viðkomandi
starfsmanns er á Akranesi.
Leitað er eftir sjálfstæðum og metnaðarfullum einstaklingi sem hefur
reynslu og menntun á sviði bókhalds og viðskipta. Kunnátta og
reynsla á Oracle e-business suite fjárhagskerfi ríkisins og Microsoft
Dynamics NAV (Navision) er æskileg, reynsla af launavinnslu er
einnig góður kostur. Gert er ráð fyrir að umsækjandi búi yfir almennri
og góðri tölvukunnáttu. Starfsmaður vinnur í nánu samstarfi við
framkvæmdastjóra fjármála, aðalbókara og aðra starfsmenn
skrifstofu. Störfin felast í skráningu fylgiskjala í bókhaldskerfi,
reglubundnar afstemmingar viðskiptamanna og reikninga, ásamt
ýmsum öðrum verkefnum er varða daglegan rekstur skrifstofu.
Umsóknum sem greina frá menntun, reynslu og fyrri störfum skal
skilað til framkvæmdastjóra fjármála í síðasta lagi þann 6. nóvember
2013. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Ásgeirsson framkvæmdastjóri
fjármála, netfang asgeir.asgeirsson@hve.is sími 432-1000
Bókari/sérfræðingur
Skógræktarfélag Borgarfjarðar efn-
ir til athafnar við skóglendi félags-
ins í Grímsstaðagirðingu í tilefni af
75 ára afmæli sínu um þessar mund-
ir og til heiðurs gefendum landsins
næstkomandi laugardag kl. 13. Að
lokinni stuttri athöfn verður farið
til bæjar og boðið upp á veitingar í
tilefni dagsins.
Hugmyndin um sérstakt skóg-
ræktarfélag í Borgarfirði kom upp
innan vébanda ungmennafélag-
anna í héraðinu á fjórða árarug lið-
innar aldar. Allt frá stofnun þeirra
upp úr aldamótunum hafði ver-
ið lögð rík áhersla á ræktun lands-
ins samfara annarri ræktunarstarf-
semi. En nú var orðið knýjandi að
mati ungmennafélaga að bindast
samtökum um þetta hugsjónamál-
efni og 5. nóvember 1938 var boð-
að til almenns fundar í Borgarfjarð-
ar- og Mýrasýslum í þeim tilgangi
að stofna Skógræktarfélag Borg-
arfjarðar. Héraðshöfðinginn Hall-
grímur Níelsson, bóndi og hrepps-
stjóri á Grímsstöðum á Mýrum,
færði félaginu í morgungjöf 10 ha
af skóglendi úr landi Grímsstaða og
var það fyrsta eignarland félagsins.
Frá þessum gjörningi og stofn-
un félagsins eru því 75 ár um þess-
ar mundir – og af því tilefni efnir fé-
lagið til athafnar á laugardaginn 26.
október kl. 13 við hlið Grímsstaða-
girðingarinnar. Vegurinn að girð-
ingunni frá þjóðveginum hefur ver-
ið lagfærður – og við þetta tækifæri
verður afhjúpaður minnisskjöldur til
heiðurs Hallgrími Níelssyni og Sig-
ríði Helgadóttur sem færðu Skóg-
ræktarfélagi Borgarfjarðar skóg-
lendið innan girðingar að gjöf í til-
efni af stofnun félagsins 5. nóvem-
ber 1938. Eftir stutta athöfn verður
boðið upp á súkkulaði og meðlæti í
gamla Grímsstaðabænum.
Fréttatilkynning frá Skógræktarfé-
lagi Borgarfjarðar
Elín Salóme Guðmundsdóttir, guð-
fræðingur og kennari, er ein átta
umsækjenda um stöðu sóknar-
prests á Staðarstað. Elín Salóme
lauk embættisprófi í guðfræði í júní
2012. Hennar kjörsvið innan guð-
fræðinnar er guðfræðileg siðfræði
með áherslu á fjölskyldusiðfræði þar
sem hún hefur lagt áherslu á börn í
erfiðum aðstæðum og sýn guðfræð-
innar á arfleið og umhverfi óvígðr-
ar sambúðar nútímans. Hún hefur
starfað við kennslu í tæpa þrjá ára-
tugi og hefur mikla reynslu af því að
starfa með börnum og unglingum.
Hún starfar nú við Lágafellsskóla í
Mosfellsbæ. Elín Salóme hefur jafn-
framt tekið virkan þátt í starfi kirkj-
unnar undanfarinn áratug m.a. sem
leiðbeinandi á Alfa námskeiðum,
leiðbeinandi í foreldra- og barna-
starfi kirkjunnar og sungið í kirkju-
kór. Elín Salóme segir að fyrir sér
sé manneskjan, í öllum sínum fjöl-
breytileika, mikilvægasta viðfangs-
efni prests á hverjum stað. „Prest-
urinn er þjónn, hann er þjónn Guðs
og kirkjunnar við Guð sjálfan, söfn-
uðinn og samferðarfólk. Hann er
þjónn mannsins og lífsins, lífs hans í
öryggi, kærleika, friði og sátt,“ seg-
ir Elín Salóme.
Elín Salóme heldur úti vefsíðunni
www.elinsalome.is þar sem hægt er
að kynnast betur sýn hennar á kirkju
og stafnaðarstarf á Staðastað.
-fréttatilkynning
Unnið var að viðhaldi girðingarinnar í skógarreitnum sl. sunnudag og hér er
svipmynd frá deginum. Ljósm. sjb.
Afmæli Skógræktarfélags
Borgarfjarðar
Elín Salóme sækir um sem
sóknarprestur á Staðarstað
tíma í fyrra og hitteðfyrra. Við höf-
um verið hérna vestur við eyjarn-
ar í grennd við Bjarnarhöfn. Síldin
þar er öll frekar á djúpu, hún hef-
ur ekki komið enn að minnsta kosti
upp á grunnið eins og hún gerði
síðustu tvö árin. Það er betra að
eiga við hana þar heldur en á djúp-
inu,“ segir Páll um leið og hann
sveiflar barmafullu kari af vænni
síld upp úr Fríðu SH og slakar því
á bryggjuna.
„Við erum með tvo báta á síld-
inni en erum búnir að veiða viku-
skammtinn á hinn bátinn. Því
þurftum við að skipta um bát.
Hver bátur má taka átta tonna afla
á viku. Nú á fimmtudegi erum við
búnir að veiða skammtana á báða
bátana og megum því ekki halda
áfram fyrr en eftir helgi. Það hefst
ný veiðivika á mánudag,“ útskýrir
Páll. Blaðamann fýsir að vita hvort
það sé sæmileg afkoma á þessu?
„Nei,“ svarar Páll ákveðið. „Það er
aldrei þannig til sjós,“ segir hann
svo og kímir. „Við leigjum heim-
ildirnar á 13 krónur kílóið frá rík-
inu og greiðum af þessu veiðigjald.
Það er 9,50 á kílóið. Síðan fáum
við 80 krónur fyrir kílóið þegar við
seljum. Það má því segja að það fari
um 14 krónur af. Við erum því að
fá 66.000 krónur fyrir tonnið. Þess
vegna erum við tveir að basla við
að róa með tvo báta til að hafa laun
við þetta. Veiðipotturinn er bara
allt of lítill og það er mjög mikið af
síld,“ segir Páll Aðalsteinsson sem
er að hefja sína síldarvertíð þriðja
árið í röð frá Stykkishólmi.
Hólmarar sjá fram á síldarhrotu
sem gæti varað fram á vordaga.
„Við ætlum að vera á þessu í vet-
ur. Í hitteðfyrra vorum við fram í
mars. Þetta er gaman á meðan það
stendur yfir, ekki síst í góða veðr-
inu,“ segir Páll Aðalsteinsson.
mþh
Páll Aðalsteinsson á Fríðu SH.