Skessuhorn - 23.10.2013, Blaðsíða 25
25MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013
HeilindiHagsýni Liðsheild nordural.is
DEILDARSTJÓRI
VERKEFNASTÝRINGA
Við leitum að metnaðarfullum og öflugum liðsmanni
í margþætt og krefjandi verkefni
STARFSSVIÐ:
• Stefnumótun við stjórnun fjárfestingaverkefna
• Umsjón með gerð og eftirfylgni fjárfestingaáætlana
• Framvindu/kostnaðareftirlit með fjárfestinga verkefnum
• Skýrslugerð, upplýsingagjöf og mannauðsmál
Við leggjum áherslu á jafna möguleika karla og
kvenna, endurmenntun og starfsþróun, frábæran
starfs anda og samstarfsfélaga. Starfinu fylgir góð
starfsaðstaða í lifandi umhverfi þar sem metnaður
og fagmennska er í fyrirrúmi.
Sótt er um á www.nordural.is til og með 27. október.
Upplýsingar veita Einar F. Björnsson, framkvæmdastjóri
Umhverfis- og verkfræðisviðs, og Valka Jónsdóttir
starfsmannastjóri í síma 430 1000. Öllum umsóknum
verður svarað og trúnaði heitið.
MENNTUNAR- OG HÆFNISKRÖFUR:
• Meistaragráða í verkfræði eða sambærileg menntun
• Reynsla af verkefnastjórnun, helst úr iðnaðarumhverfi
• Frumkvæði, drifkraftur og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Samstarfshæfileikar, öryggisvitund og ábyrgðarkennd
Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrir tækinu starfa rúmlega fimm hundruð manns með fjöl breytta
menntun og bakgrunn. Árleg framleiðslugeta er um 280 þúsund tonn af hágæða áli. Norðurál er í eigu Century Aluminum.
ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA
BLIKKSMIÐJA
Loftræstingar – Reykrör
Klæðningar – Nýsmíði
Viðhald – Efnissala
JÁRNSMIÐJA
Gjafagrindur – Nýsmíði
Viðhald – Þjónusta
Hesthúsinnréttingar
RAFMAGNS-
VERKSTÆÐI
Nýlagnir – Viðhald
Viðgerðaþjónusta
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
Síðastliðinn fimmtudag var skrif-
að undir samning þess efnis að
Menntaskóli Borgarfjarðar mun á
næstu tveimur árum bjóða nemend-
um sínum upp á kennslu í Björgun-
armanni 1, sem er grunnnám björg-
unarsveitafólks. Fjórar björgunar-
sveitir af svæðinu, Brák, Heiðar, Ok
og Elliði, auk Björgunarskóla Slysa-
varnafélagsins Landsbjargar, eru
aðilar að samningnum en markmið
hans er að auka nýliðun í sveitun-
um og styðja ungt fólk til að afla sér
þekkingar á útivist og slysavörnum.
Menntaskóli Borgarfjarðar legg-
ur til umsjónarkennara og aðstöðu
til bóklegs náms og Björgunarskól-
inn leiðbeinendur fyrir verklegan
hluta þess. Nemar þurfa svo að vera
skráðir og taka þátt í starfi einnar
af þeim björgunarsveitum sem þátt
taka í verkefninu. Nú þegar er svip-
að samkomulag í gildi við Mennta-
skólann á Tröllaskaga og fleiri
framhaldsskólar hafa sýnt áhuga á
að taka upp þetta nám.
Kolfinna Jóhannesdóttir skóla-
meistari MB segir þetta samstarf
mjög gott dæmi um hvað fram-
tak og frumkvæði heimaaðila get-
ur stutt skólann og hjálpað hon-
um að taka mið af þörfum nærsam-
félagsins. „Það er margt jákvætt í
kringum þetta verkefni. Það eyk-
ur fjölbreytni í námi og val nem-
enda. Frumkvæði björgunarsveit-
anna er frábært og þær afla stuðn-
ings við verkefnið hjá sveitarfé-
laginu Borgarbyggð og Norður-
áli sem standa straum að kostnaði
við verkefnið,“ segir Kolfinna. Hún
segir nemendurna hafa strax sýnt
náminu áhuga og fullt sé orðið í
það. Pétur Guðmundsson, formað-
ur björgunarsveitarinnar Brákar,
segir að björgunarsveitarmenn hafi
sýnt þessu mikinn áhuga og vilj-
að koma þessu inn í skólana, helst
Byrjað verður að kenna grunnnám
björgunarsveitafólks í MB
alla framhaldsskóla landsins, ekki
síst eftir að þetta nám byrjaði við
skólann á Tröllaskaga. „Við teljum
að þó svo að unglingarnir í náminu
ílengist ekki í starfi björgunarsveit-
anna, þá gagnist þetta þeim áfram í
lífinu. Vissulega vonumst við til að
verkefnið nýtist björgunarsveitun-
um og hjálpi til við nýliðun í fram-
tíðinni,“ segir Pétur í samtali við
Skessuhorn.
þá
Hluti bílaflota björgunarsveitanna í Borgarfirði var á bílastæði við mennta-
skólann í tilefni undirskriftar samningsins.
Frá undirskrift í Menntaskóla Borgarfjarðar sl. fimmtudag. Dagbjartur Kr.
Brynjarsson, skólastjóri Björgunarskóla Slysavarnafélagsins Landsbjargar
handsalaði samninginn við Kolfinnu Jóhannesdóttur, skólameistara Menntaskóla
Borgarfjarðar. Viðstaddir voru fulltrúar þeirra björgunarsveita sem aðild eiga að
samningnum og nemendur skólans.