Skessuhorn - 23.10.2013, Side 33
33MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013
Sunnudaginn 20. október sl. var
haldin hrútasýning að Lækjarbug
á Mýrum. Eigendur mættu með
31 lambhrút. Veitt voru verðlaun í
þremur flokkum; mislitir, kollóttir
og hvítir hyrndir, en auk þess voru
veitt verðlaun fyrir besta hrút sýn-
ingarinnar „Mýrahrútinn”. Í flokki
mislitra var talinn bestur Óli frá
Leirulæk númer 71, grár undan
Gaur 09-879. Í öðru sæti var einn-
ig grár hrútur, frá Brúarfossi núm-
er 91 undan Kál-Móra. Í þriðja sæti
var hrútur frá Leirulæk, númer 71
undan Streng 09-891. Af kollóttum
hrútum þótti af öðrum bera hrút-
ur númer 55 frá Lækjabug undan
Stera 07-855. Í öðru sæti var hrútur
númer 145 frá Rauðanesi III undan
Streng 09-891 og þriðji Hrói númer
10 frá Tröðum undan Hetti 09-887.
Af hvítum hyrndum hrútum var
dæmdur bestur hrútur númer 45 frá
Mel undan Hergli 08-870. Hann
hlaut einnig hinn eftirsótta verð-
launaskjöld og titilinn “Mýrahrút-
urinn 2013” og munu hjónin á Mel,
þau Þórey og Sigurjón, varðveita
skjöldinn næsta árið. Næstbestur
í þessum flokki var hrútur númer
151 frá Rauðanesi III undan Jaka frá
sama bæ. Þriðji var „Kristján minn”
númer 115 frá Tröðum undan Snæ
07-867.
Dómarar á sýningunni voru þeir
Lárus Birgisson og Jón Viðar Jón-
mundsson. Í lok sýningarinnar af-
henti Jón Viðar verðlaunaskjöldinn
og flutti í leiðinni stutta tölu þar sem
hann sagði hrúta hafa verið jafna og
góða. Sagðist hann einnig hafa verið
viðloðandi fjárrækt á Mýrunum síð-
an 1974 og að síðan þá hefðu orð-
ið miklar framfarir í ræktun, sérstak-
lega í afurðum ánna. Fjölmenni var
á sýningunni og fóru menn glað-
ir heim með sín verðlaun, sem voru
í boði Kaupfélags Borgfirðinga og
Sláturhúss KVH á Hvammstanga.
Þeir sem engin verðlaun hlutu gátu
leitað sér huggunar í veitingum í
boði ungmennafélagsins og byrjað
að leggja drög að betri árangri að
ári liðnu, segir Guðbrandur á Stað-
arhrauni sem sendi blaðinu þennan
pistil.
þá/ Ljósm. frá Staðarhrauni.
Hrútasýningar á Snæfellsnesi fóru
fram um síðasta helgi, á föstudags-
kvöldið í Haukatungu í fyrrum Kol-
beinsstaðarhreppi en á laugardegi á
Hömrum við Grundarfjörð. Vegna
varnarlínu verður að hafa tvær sýn-
ingar á Snæfellsnesi. Á laugardeg-
inum voru svo veitt verðlaun fyr-
ir bestu hrúta í hverjum flokki.
Keppt er í þremur flokkum; koll-
óttum, mislitum og hvítir hyrnd-
ir hrútar. Mætt var til leiks nú með
töluvert færri hrúta en undanfar-
in ár, trúlega vegna slæms árferð-
is og lömb almennt lakari en und-
anfarin ár. Dómarar voru Jón Viðar
Jónmundsson og Lárus Birgisson.
Nefndi Jón Viðar það sérstaklega
hvað það hefðu orðið miklar fram-
farir í ræktuninni á undanförnum
árum. Minna væri þó um toppana
en hrútarnar væru orðnir jafn góðir
og gerði það dómarastörfin töluvert
erfiðari. Einnig minntist hann á að
minna væri af hrútum undan sæð-
ishrútum, en á flestum bæjum eru
heimahrútarnir orðnir mjög góðir
og gefa hrútum Sæðingarstöðvar-
innar ekkert eftir.
Einnig voru veitt verðlaun fyr-
ir kindur fæddar 2008 sem eru með
hæst kynbótamat. Í 3. sæti var kind
frá Kristbirni og Aðalbjörgu Hrauns-
múla, í öðru sæti kind frá Önnu
Dóru og Jóni Bjarna á Bergi og í
fyrsta sæti var kind frá Jörfabúinu.
Í flokki kollóttra hrúta kepptu ein-
ungis tíu hrútar, þrír sunnan meg-
in og sjö vestan megin. Í 3. sæti varð
hrútur frá Ólafi Tryggvasyni frá
Grundarfirði og í 1. og 2. sæti voru
hrútar frá Hjarðarfelli. Í flokki mis-
litra kepptu 13 hrútar, þrír sunn-
an megin en tíu vestan megin. Þar
varð í 3. sæti hrútur frá Hofstöð-
um, 2. sæti hrútur frá Hraunsmúla
og í 1. sæti hosubotnóttur hrútur
frá Sigurði Gylfasyni frá Tungu. Í
flokki hvítra hyrnda hrúta kepptu
36 hrútar, 15 sunnan girðingar og
21 vestan. Í 3. sæti varð hrútur frá
Bæring og Hermanni í Stykkis-
hólmi, í 2. sæti hrútur frá Mávahlíð
og í 1. sæti varð hrútur frá Hjarð-
arfelli. Sá hrútur var einnig valinn
besti hrútur sýningarinnar og fengu
Hjarðarfellshjónin farandskjöld-
inn til varðveislu. Þessi skjöldur er
afar glæsilegur og trúlega elsti far-
andgripur sem veittur er við svona
tilefni. Efstu þrír í hverjum flokki
fengu einnig gjafabréf frá verslun-
inni Blómsturvöllum á Hellissandi,
nýju bókina Sauðfjárrækt á Íslandi
og einnig ýsuflök.
þá/iss/tfk
Hrútasýningar á Snæfellsnesi
Eigendur efstu sæta hyrndra hrúta. Ljósm. Iðunn Silja. Eigendur hrúta í efstu sætum í flokki mislitra.
Ljósm. Iðunn Silja.
Harpa og Guðbjartur frá Hjarðarfelli áttu tvö efstu í flokki kollóttra og efsta
hyrnda hrútinn sem var einnig valinn besti hrútur sýningarinnar. Ljósm. tfr.
Hosubotnóttur hrútur frá Sigurði Gylfasyni frá Tungu var
efstur í flokki mislitra. Ljósm. tfk.
Mikið var þreifað á hrútasýningunni. Ljósm. tfk.
Vel var mætt á hrútasýninguna. Ljósm. tfk.
Fjölskylda sigurvegarans. Þórey og Sigurjón á Mel varðveita skjöldinn næsta árið.
Hrútasýning að Lækjarbaug á Mýrum
Tveir gráir.
Bjarki Blær heldur í besta kollótta
hrútinn sem hann á sjálfur.
Flottir Mýramenn.