Skessuhorn - 23.10.2013, Síða 19
19MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013
Einn af þremur bílum í slysinu hafði hafnað á hvolfi ofan í
skurði.
Hér má sjá eyðublað sem vettvangsstjórar þurfa að fylla út
komi til hópslyss, til að meta hverjir hinna slösuðu þurfa að
njóta forgangs.
Einn leikarinn sýnir hér illa
farinn handlegg með til-
heyrandi svipbrigðum.
Guðmundur Hallgrímsson og Pétur Jónsson voru vettvangs-
stjórar í fjöldahjálparstöðinni.
Nokkrir hinna „slösuðu“ slaka hér á eftir að æfingunni lauk.
Slasaður búinn til flutnings frá fjöldahjálparstöðinni.Kári Gíslason var einn hinna
„slösuðu“.
Útgefandi: Skessuhorn - Kirkjubraut 56 - 300 Akranes - s: 433 5500
Pantanir: www.skessuhorn.is
Vefpóstur: tinna@skessuhorn.is
Gefin út í tilefni 15 ára afmælis Skessuhorns
Úrval vísnaþátta sem birtust í
Skessuhorni síðastliðin fimmtán ár.
1760 tækifæris- og lausavísur
höfunda víðsvegar af Íslandi.
Dagbjartur Dagbjartsson safnaði,
skráði og tengdi saman í lifandi
frásögn. Myndskreytt með
128 skopteikningum Bjarna Þórs
Bjarnasonar.
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra
húsa og mannvirkja, sbr. reglur nr. 182/2013. Samkvæmt úthlutunarreglunum er
heimilt að veita styrki úr sjóðnum til:
viðhalds og endurbóta á friðlýstum og friðuðum húsum og
mannvirkjum.
viðhalds annarra mannvirkja sem hafa menningarsögulegt,
vísindalegt eða listrænt gildi.
byggingarsögulegra rannsókna, þar með talið skráningu húsa og
mannvirkja, og miðlun upplýsinga um þær.
Umsóknir eru metnar með tilliti til varðveislugildis, t.d. vegna byggingarlistar,
menningarsögu, umhverfis, upprunaleika og tæknilegs ástands ásamt gildis
hennar fyrir varðveislu byggingararfleifðarinnar. Að þessu sinni verður lögð
sérstök áhersla á að veita styrki til endurbóta á friðlýstum húsum og
mannvirkjum.
Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar, m.a. úthlutunarreglur, er að finna á
heimasíðu Minjastofnunar Íslands, www.minjastofnun.is.
Umsóknarfrestur er til 1. desember 2013. Umsóknir sem berast eftir að
umsóknarfresti lýkur koma ekki til álita við úthlutun.
Minjastofnun Íslands hefur eftirlit með að styrkt verkefni séu viðunandi af hendi
leyst og í samræmi við innsend umsóknargögn. Bent er á leiðbeiningarit
Húsafriðunarnefndar sem finna má á heimasíðu Minjastofnunar Íslands og
Húsverndarstofu um viðhald og viðgerðir eldri húsa í Minjasafni Reykjavíkur/
Árbæjarsafni.
Suðurgötu 39,101 Reykjavík
Sími: 570 1300
www.minjastofnun.is
husafridunarsjodur@minjastofnun.is
Minjastofnun Íslands
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
húsafriðunarsjóði
fyrir árið 2014
Í síðustu viku lauk í Grundarfirði
átta daga heimsókn nemendahóps
ásamt kennurum frá Washing-
ton háskóla í Seattle. Í heimsókn-
inni var unnið að verkefni tengdu
Svæðisgarðinum í samstarfi við
nemendur Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga. Í verkefninu var leitast
við að svara spurningunni: „Hvaða
þýðingu hefur Svæðisgarðurinn
fyrir ungt fólk á svæðinu og hverj-
ir eru framtíðarmöguleikarnir?“
Nemendum var skipt niður í fimm
hópa samkvæmt þemakorti Svæð-
isgarðsins og var rýnt í eftirfarandi
þemu; matarkistan, sagnaarfur,
sjósókn, friðlýst hús og kirkjur og
að síðustu landslag og leiðir. Með-
al þess sem nemendur tóku sér fyr-
ir hendur var hringferð um Snæ-
fellsnes, heimsókn til bænda, við-
töl við eldri borgara og ýmislegt
fleira. Að lokum voru niðurstöð-
ur svo kynntar fyrir kennurum,
fulltrúum Svæðisgarðsins og ráð-
gjafafyrirtækinu Alta. Yfirumsjón
verkefnisins var í höndum Marg-
aret Willson mannfræðings sem er
mörgum Grundfirðingum kunn-
ug, Johönnu Van Schalkwyk kenn-
ara í FSN ásamt aðstoð frá Lofti
Árna Björgvinssyni enskukennara
við FSN.
„Verkefnið þótti takast vel til og
kom margt áhugavert fram varð-
andi væntingar ungs fólks til svæð-
isgarðsins. Erlendu nemendurnir
voru hæstánægðir með móttökur
heimamanna og létu þau storm-
inn sem geisaði ekki á sig fá. Þau
voru öll sammála um að dvöl-
in í Grundarfirði myndi seint líða
þeim úr minni,“ segir í tilkynningu
frá FSN.
Hópurinn frá Seattle fór eftir
dvölina í Grundarfirði í Borgarnes
en verður á Íslandi þar til í byrj-
un desember. Hópurinn mun fara
norður í land og dvelja í mánaðar-
tíma við nám í Háskólanum á Ak-
ureyri.
mm/ LJósm. tfk.
Nemendur frá Seattle heimsóttu
Snæfellsnes og Borgarnes