Skessuhorn - 30.10.2013, Side 17
17MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013
Körfuknattleiksfélag Akraness
Íþróttahúsið á Jaðarsbökkum
Meistaraflokkur karla - Powerade bikarinn
Föstudaginn 1. nóvember kl. 19:15
ÍA - FJÖLNIR
Fjölmennum og hvetjum
ÍA til sigurs!
Við viljum bikarinn heim Skagamenn...
eríuveiki. Með því að rækta sýn-
in er leitað að henni auk þess sem
rannsakað er hvort aðrir sjúkdómar
geti verið í laxinum. „Sjúkdómaást-
and laxastofna hér á landi er ákaf-
lega gott samanborið við nágranna-
löndin. Við viljum halda því þann-
ig. Hér hafa til dæmis ekki fund-
ist veirusjúkdómar sem hafa leikið
fiskeldi grátt í nágrannalöndunum.
Þetta góða ástand gerir það að verk-
um að íslensk laxahrogn eru nú afar
eftirsótt í fiskeldi víða um heim, svo
sem í Noregi og Síle í Suður Amer-
íku. Það hefur ekki farið mjög hátt
en framleiðsla og útflutningur á
laxa hrognum héðan frá Íslandi er að
skila þjóðarbúinu miklum tekjum í
dag,“ segir Gísli Jónsson dýralækn-
ir fisksjúkdóma.
Frjóvguðu hrognin eru geymd í
fiskeldisstöðinni á Laxeyri á meðan
beðið er eftir niðurstöðum úr sjúk-
dómarannsóknunum. Hrognum úr
hverjum einasta fiski er haldið að-
skildum. Hver fiskur hefur sitt núm-
er sem fylgir hrognunum. Ef það
kemur síðan í ljós að foreldrafiskur-
inn hafi verið sýktur er gengið fram
af festu. „Við höldum ekki áfram
með nein hrogn ef minnsti grunur
er á að þau séu sýkt. Þeim er und-
antekningalaust eytt. Nýrnaveikin
er til staðar í náttúrunni og hún er
misskæð. Hún er algengari í sumum
ám en öðrum. Það eru jafnvel ár þar
sem nýrnaveiki hefur aldrei greinst.
Afföllin vegna nýrnaveiki eru mjög
sveiflukennd. Sum árin höfum við
orðið fyrir verulegu tjóni og orð-
ið að eyða tugum lítra af hrognum.
Það getur bitnað á laxveiðiánum
og veiðifélögunum því menn fá þá
ekki þau seiði sem þeir væntu. Árið í
fyrra var einstaklega gott. Þá fannst
nýrnaveikismit í aðeins um þrem-
ur prósentum klakfiskanna. Á hinn
bóginn urðu yfir 20% afföll eitt árið
yfir heildina, þá fannst nýrnaveiki-
smit í rúmlega 80% klakfiska úr
einstökum ám. Sjúkdómurinn virð-
ist ganga í sveiflum milli ára án þess
að menn viti hvers vegna. Eina ráð-
ið til að hamla gegn sjúkdómnum
er að taka þessi sýni úr klakfiskinum
og eyða þá sýktum hrognum,“ segir
Jón stöðvarstjóri.
Sérhæfing í
villta laxinum
„Við vorum með bleikjueldi til slátr-
unar samhliða seiðaframleiðslunni
en hættum brátt með bleikjuna.
Þetta fór ekki vel saman að ætla sér
að framleiða góða matvöru og síðan
góð seiði til sleppingar í náttúruna.
Lax og bleikja eru tveir gjörólík-
ir fiskar. Við vorum líka með sjó-
birting (urriða) og söfnuðum klak-
fiski af honum víða. Það gekk ekki
upp því sjóbirtingurinn var allur
með nýrnaveikismit. Öllum hrogn-
um var eytt ár eftir ár þar til við gáf-
umst upp. Það fylgdi þessu líka sú
áhætta að sjóbirtingurinn smitaði
laxinn hjá okkur.“
Jón Guðjónsson segir að það sé
dýrt að framleiða laxaseiði til fisk-
ræktar í ánum. „Sjúkdómaeftirlitið
kostar sitt og svo er allt smáseiða-
fóðrið innflutt. Við verðum hins
vegar að hafa þessa hluti í lagi. Okk-
ar viðskiptavinir verða að hafa full-
vissu fyrir því að við gætum fyllsta
öryggis og að seiðin frá okkur séu
heilbrigð. Gönguseiðin eru hér í
stöðinni í 18 mánuði þar til við af-
greiðum þau út frá okkur. Við höf-
um verið í samvinnu við Veiðimála-
stofnun í Borgarnesi. Þau merka
fyrir okkur seiði. Kaupendur senda
líka oft fólk frá Veiðimálastofnun til
að taka út seiði sem þeir eru að fá til
að tryggja að gæði þeirra séu í lagi,“
segir stöðvarstjórinn á Laxeyri að
lokum áður en hann snýr sér áfram
að því að búa til nýjan árgang laxa-
seiða fyrir íslensku árnar.
mþh
Gísli Jónsson dýralæknir fisksjúkdóma
tekur sýni úr löxunum. Ragnhildur
Anna fylgist með og er til aðstoðar.
Jón stöðvarstjóri fullvissar sig um
að hrognin í fötunni séu úr hrygnu
af réttum laxastofni áður en hann
frjóvgar hrognin. Það gerir hann með
því að lesa númer sem hefur verið
skrifað á fötuna.
Verslunin Hans og Gréta verður opnuð á
Akranesi föstudaginn 1. nóvember
Allir eru hjartanlega velkomnir á
opnunardaginn frá kl. 17-19.
Hans og Gréta er staðsett að
Kirkjubraut 37 (gamla pósthúsinu)
Opnunartími verslunar:
Miðviku-, fimmtu- og föstudaga frá kl. 17 - 19.
Laugardaga frá kl. 11 - 15 fram að jólum.
X-ICE
• Hjólbarði hannaður fyrir borgarbíla
og fjölskyldubíla
• Mikið skorið og stefnuvirkt munstur
sem veitir frábært grip í hverskyns
aðstæðum.
• Endingargott naglalaust vetrardekk
X-ICE NORTH
• Léttir álnaglar sem eru níðsterkir og hljóðlátir
• 10% styttri hemlunarvegalengd á ís
• Allt að 30% færri naglar
• Aukið öryggi og meiri virðing fyrir umhverfinu
NÁÐU GÓÐU GRIPI Á VETRINUM
MEÐ MICHELIN VETRARHJÓLBÖRÐUM
ALPIN A4
• Hljóðlátt og gripgott
• Naglalaust vetrardekk
• Ný APS gúmmí blanda tryggir gott grip
í öllum hitastigum
• Flipamunstur tryggir gott grip þó líði
á líftíma dekksins
• Margátta flipamunstur tryggir hliðar,
fram og hemlagrip
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA N1 | AKRANESI | DALBRAUT 14
OPIÐ MÁNUDAG TIL FÖSTUDAGS KL. 08-18 OG LAUGARDAG KL. 09-13
SÍMI 440 1394 | WWW.DEKK.IS