Skessuhorn


Skessuhorn - 30.10.2013, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 30.10.2013, Blaðsíða 19
19MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013 Reykjavík Grunartangi Akranes Borgarnes Ferðaþjónustufæri við Akraneshöfn ! Faxabraut 1 til sölu – tilboð óskast Faxaflóahafnir sf. óska eftir kauptilboðum í fasteignina Faxabraut 1, hafnarhúsið við Akraneshöfn, og munu horfa sérstaklega til bjóðenda sem ráðgera að reka þarna veitingastað eða aðra þjónustustarfsemi. Faxaflóahafnir og Akraneskaupstaður vilja stuðla að fjölbreyttri starf- semi við Akraneshöfn, einkum í tengslum við haftengda ferðaþjónustu. Húsið sjálft er vel fallið til að hýsa veitingarekstur eða ýmsa þjón- ustustarfsemi og staðsetningin er einstök, frábært útsýni yfir höfnina í grennd við vitana á Breiðinni og Langasandi. Húsið er tvær hæðir, samtals 210,6 fermetrar að gólffleti. Verönd á efri hæð snýr í suður. Leigulóð fylgir húsinu samkvæmt drögum að deiliskipulagi. Húsið var byggt úr steinsteypu á árinu 1982. Starfsemi Akraneshafnar hefur síðan þá verið þarna, nú síðast í nafni Faxaflóahafna sf. Nánari upplýsingar og gögn um eignina má nálgast á skrifstofu Faxaflóahafna sf., Tryggvagötu 17 í Reykjavík, sími 525 8900. Húseignin verður til sýnis í samráði við Faxaflóahafnir sf. Hver bjóðandi getur aðeins skilað inn einu tilboði og áskilja Faxaflóahafnir sf. sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð skulu berast skrifstofu Faxaflóahafna sf., Tryggvgötu 17, fyrir kl. 14:00 föstudaginn 29. nóvember 2013. Umsóknir um styrki Auglýst er eftir umsóknum um styrki á árinu 2014 vegna menningar-, íþrótta- og atvinnumála. Umsókn þarf að vera skrifleg og fylgja upplýsingar um tilefni styrkbeiðni, tíma og verkáætlun verkefnis, önnur fjármögnun sem tengist verkefninu og hvort sótt hafi verið um styrki eða þeim verið úthlutað annars staðar frá vegna viðkomandi verkefnis. Með umsóknir verður farið samkvæmt málsmeðferðarreglum vegna styrkumsókna sem samþykktar voru í bæjarráði 22. október 2013. Reglurnar eru á vef Akraneskaupstaðar www.akraneskaupstadur.is. Umsóknarfrestur er til 2. desember 2013 S K E S S U H O R N 2 01 3 Fyrir stuttu sagði Skessuhorn frá tveimur vinkonum sem hafa und- anfarin ár staðið fyrir nytjamörk- uðum á Akranesi. Oftast hafa þær verið með barnafatamarkað og ný- verið tóku þær gamla pósthúsið við Kirkjubraut á leigu. Skemmst er frá því að segja að hugmyndin um barnafatamarkaðinn hefur held- ur betur undið upp á sig. Önnur þeirra, Hrefna Björnsdóttir, ætlar að opna barnafataverslunina Hans og Gréta á sama stað ásamt eigin- manni sínum, Helga Björgvinssyni, föstudaginn 1. nóvember næstkom- andi. „Þetta spinnst út frá markaðn- um. Ég var búin að hugsa um þetta í langan tíma og við ákváðum að þróa hugmyndina út í þetta,“ seg- ir Hrefna í samtali við blaðamann. Í versluninni verður hægt að kaupa bæði notuð barnaföt og ný. „Við verðum með notaðan barnafatn- að frá minnstu stærðum fyrir ný- fædd og upp í minnstu fullorðins- stærð. Fötin eru öll mjög vel yfir- farin, ekkert blettótt og engin göt heldur eingöngu mjög vel með far- inn fatnaður. Við kaupum not- uð föt af fólki og borgum 1600 kr. fyrir kílóið, eða 2000 kr. ef greitt er út með inneign,“ útskýrir hún. Meðgöngufatnaður verður einnig til sölu og óskar hún eftir vel með förnum meðgöngufatnaði til sölu. „Við erum líka með nýjan fatnað. Erum til dæmis að taka inn jólafatn- að bæði á stráka og stelpur; náttföt, nærföt, sokka, sokkabuxur og gjafa- vörur svo eitthvað sé nefnt.“ Fatn- aðurinn er frá ýmsum merkjum og er bæði hægt að fá ódýr föt og dýr- ari merki. Einnig verða bæði ný og notuð leikföng og fleiri barnavör- ur til sölu. „Við keyptum lager frá Barnaleik, tókum við af þeim. Það eru næturljós, flottir fjölnota veg- glímmiðar og alls kyns leikföng svo sem þroskaleikföng og ung- barnaleikföng meðal annars,“ seg- ir Hrefna. Auðvelt að gleyma sér Hrefna er dagmóðir að atvinnu og mun halda því áfram að öllu óbreyttu. Því hefur verið nóg að gera við að finna réttu vörurnar og gera allt tilbúið eftir hefðbund- inn vinnudag. Hrefna segir að auð- velt sé að gleyma sér og fara fram úr sér í huganum þegar hún hugsar um verslunina en mikið er til af fal- legum barnafatnaði og vörum sem gaman væri að bjóða til sölu. „Mað- ur er að reyna að dempa sig nið- ur og byrja smátt og leyfa þessu að þróast. Ég hef fengið góðan stuðn- ing frá fjölskyldu og vinum, þess vegna er ég að þessu,“ segir þessi duglega kona að endingu. Opnunartími verslunarinn- ar verður frekar óhefðbundinn, en hjónin verða einnig með vefsíð- una www.hansoggreta.is. Þar verð- ur hægt að skoða úrvalið í verslun- inni ásamt því að panta vörur. Sem fyrr segir þá verður verslunin opn- uð föstudaginn 1. nóvember. Hún verður opin frá kl. 17 – 19 þann dag og eru allir velkomnir. Fram að jól- um verður svo opið miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga frá 17 – 19 og laugardaga frá 11 – 15. grþEingöngu falleg og vel með farin föt verða til sölu. Nytjamarkaður verður að barnafataverslun Hrefna í versluninni Hans og Gréta, sem er að taka á sig mynd

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.