Skessuhorn - 30.10.2013, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013
Um liðna helgi hófst rjúpnaveiði-
tímabilið, en það verður í haust
yfir fjórar helgar frá föstudegi til
sunnudags. Veiðmönnum er heim-
ilt að veiða þar sem það er ekki
beinlínis bannað af landeigendum,
það er á afréttum og í almenning-
um sem eru sameiginleg eign fjórð-
ungs til veiða, reka eða beita. Regl-
an er í raun einföld en vandinn
snýst um að vita hvar skilin liggja.
Þar getur vefur óbyggðanefndar
(www.obyggdanefnd.is) komið að
góðu gagni. Stór hluti veiðimanna
veiðir þó iðulega á eignarlandi með
leyfi landeiganda. Mikilvægt er að
rjúpnaveiðimenn hugi að öryggi
sínu áður en þeir leggja af stað til
veiða. Með því má draga úr líkum á
slysum og koma í veg fyrir að vill-
ur eða aðrar ógönur. Engu að síður
kalla rjúpnaveiðimenn á hverju ári
eftir aðstoð björgunarsveita. Eng-
inn á að veigra sér við því ef vanda-
mál koma upp. Það er samt skylda
hvers og eins að kynna sér aðstæð-
ur og veðurfar vel og sýna af sér
örugga og ábyrga hegðun til að
auka öryggi sitt og annarra.
Mikilvægt er að hafa eftirfarandi
atriði að leiðarljósi:
Kynna sér færð og veður, en •
upplýsingar um það má sjá
á www.vegagerdin.is, www.
belgingur.is og www.ved-
ur.is.
Öryggi er fólgið í því að vera •
ekki einn á ferð.
Skilja ferðaáætlun eftir hjá •
aðstandendum. Þar þarf að
koma fram hvert á að fara,
hvaða leið á að velja, hverj-
ir verða með í för, hvenær
heimkoma er áætluð og
hvaða búnaður er með í för.
Hafa fjarskiptatæki með í •
för og gæta að hleðslu raf-
hlaða.
Hlaða 112 snjallsímaforrit-•
inu niður ef síminn býður
upp á það.
Hafa kort og áttavita með-•
ferðis og kunna að nota
það.
Hafa farartækið í lagi og •
gæta þess að það sé á vetr-
ardekkjum.
Hafa nauðsynlegustu verk-•
færi og viðgerðarbúnað fyrir
bílinn með ásamt skóflu og
teygjuspotta.
Vanda val á fatnaði. Klæðast •
nokkrum lögum og skjól-
góðum utanyfirfatnaði í
áberandi lit.
Velja vatnshelda grófbotna •
skó sem styðja vel við ökkla.
Taka orkuríkt nesti með, •
vökva og neyðarnesti.
Hafa byssu ekki hlaðna í •
bílnum og hafa öryggið
ávallt á á göngu með byss-
una.
Gæta að því að fleiri rjúpna-•
veiðimenn geta verið á
svæðinu.
Hafa þekkingu á skyndihjálp •
og sjúkragögn meðferðis.
Nota ávallt bílbelti og vera •
viss um að allir aðrir í bíln-
um geri það líka.
Festa allan farangur niður. •
mm
Húsið Bjargasteinn var byggt árið
1908 og stóð við Vesturgötu 64 á
Akranesi í 104 ár. Fyrir nokkrum
árum keypti Akraneskirkja hús-
ið af Christel Einvarðsson. Hún
hafði búið þar ásamt manni sín-
um Jósef Einvarðssyni og börnum
frá því þau keyptu húsið árið 1963.
Kirkjan festi kaup á húsinu með
því augnamiði að fjarlægja það svo
fjölga mætti bílastæðum við Akra-
neskirkju og safnaðarheimilið Vina-
minni. Fyrirtækið SÓ húsbygging-
ar í Borgarnesi, sem hefur sérhæft
sig í endurbyggingu gamalla húsa,
fékk húsið afhent frá Akraneskirkju
til eignar gegn því að fjarlægja það
af lóðinni.
Í mars síðastliðinn var það svo
tekið af grunni sínum og flutt að
verkstæði SÓ húsbygginga við Sól-
bakka 27 í Borgarnesi. Nú er end-
urbótum á húsinu að ljúka og það
verður síðan boðið til sölu. „Gömul
múrhúð var brotin utan af húsinu
og gamalt bárujárn þar undir fjar-
lægt. Húsið var í mjög góðu standi
undir klæðningunni og nánast laust
við fúa. Við höfum einangrað út-
veggi, endurnýjað glugga og klætt
húsið að utan með bárujárni. Það er
því sem næst í upprunalegri mynd
í dag og stendur tilbúið til flutn-
ings á burðarbitum. Húsið er 34
fermetrar að grunnfleti og á tveim-
ur hæðum,“ segir Stefán Ólafsson
byggingameistari hjá SÓ húsbygg-
ingum. Aðspurður segir hann að
Akurnesingar hafi enn sem komið
er að minnsta kosti ekki falast eft-
ir húsinu aftur. „Það er öllum frjálst
að hafa samband.“ mþh
Í sumar hafa staðið yfir endurbæt-
ur á aðstöðu fyrir ferðamenn í Mal-
arrifi á Snæfellsnesi. Jörðin er inn-
an marka þjóðgarðsins Snæfellsjök-
uls og framkvæmdirnar því á veg-
um hans. Búið er að setja upp leik-
tæki fyrir börn og hafinn er und-
irbúningur þess að koma upp að-
stöðu svo fólk geti grillað mat á
staðnum. Einnig er ætlunin að setja
upp salernisaðstöðu. Þegar farið er
eftir afleggjaranum niður að Malar-
rifsvita má sjá hvar nýstárleg leik-
tæki hafa verið sett upp spölkorn
frá veginum. Þetta er enginn venju-
legur róluvöllur heldur gripir sem
bera með sér að vera öðruvísi en
venjuleg leiktæki.
„Þau eru hluti af tíu ára afmæl-
isgjöf Umhverfisráðuneytisins til
þjóðgarðsins. Við val á leiktækjum
tókum við mið af hönnun sem okk-
ur fannst passa inn í þetta náttúru-
lega umhverfi við Malarrif. Þau eru
framleidd í Danmörku úr viði sem
fæst úr sjálfbært ræktuðum skóg-
um Evrópu. Viðurinn er harðger
og endingargóður og tækin upp-
fylla staðla um öryggi. Við erum
þó ekki alveg búin með uppsetn-
inguna. Það stendur til að koma
upp við þau fróðleik fyrir börnin
um það hvernig tækin virka, eðlis-
fræðina sem tengist þeim og annað
þess háttar. Það er á léttum nótum,
svo sem að þau yngstu telji tröpp-
urnar þegar þau hoppa. Þessi tæki
eiga að efla börnin líkamlega, þjálfa
jafnvægisskyn og annað og kalla
fram samspil leikja og náms,“ segir
Guðbjörg Gunnarsdóttir þjóðgarð-
svörður í samtali við Skessuhorn.
Guðbjörg segir að í sumar hafi
verið byrjað á endurbótum í Mal-
arrifi. „Þjóðgarðurinn hefur til um-
ráða gömlu útihúsin þar og það var
hreinsað út úr hlöðunni. Rafmagn
var endurnýjað í húsunum. Þau
eiga að hluta til að verða vinnuað-
staða fyrir landverði í þjóðgarðin-
um. Það var borað fyrir vatni í fyrra
og það fannst vatn sem talið er að
dugi starfsemi okkar á staðnum.
Erlendir sjálfboðaliðar hlóðu eld-
stæði á bak við húsin þar sem hægt
er að grilla.“
Fleira er á döfinni en markmið-
ið er að bæta aðstöðu fyrir ferða-
fólk til muna í Malarrifi. „Það eru
frábærar gönguleiðir við Malarrif.
Þarna er mikil veðursæld og nátt-
úrufegurð,“ segir Guðbjörg.
mþh
Að ýmsu að hyggja áður en
haldið er til rjúpnaveiða
Bjargasteini bjargað
í Borgarnesi
Bjargasteinn eftir endurbætur á lóð SÓ húsbygginga í Borganesi. Þórður Gíslason
húsasmiður stendur hjá en hann hefur unnið að verkinu.
Húsið Bjargasteinn tilbúið til flutnings af Vesturgötu 64 á Akranesi eftir að hafa
staðið þar í 104 ár.
Þessar myndir sýna þrjú af leiktækjunum sem sett voru upp á Malarrifi í sumar. Ljósm. Lárus Kjartansson.
Endurbætur og leiktæki sett upp í Malarrifi