Skessuhorn - 30.10.2013, Page 26
26 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013
Magnús Stefánsson og Steinar Karl
Hlífarsson komu í liðinni viku til
Grundarfjarðar og héldu fyrirlest-
ur um forvarnir gegn eiturlyfjum.
Þeir starfa fyrir Marita fræðsluna
og hafa fyrirlestrar þeirra reynst vel.
Í heimsókn sinni til Grundarfjarð-
ar byrjuðu þeir í grunnskólanum og
ræddu við krakkana á miðstiginu.
Þá fóru þeir í Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga og svo aftur í grunnskólann
þar sem þeir ræddu við elstu nem-
endurnar og loks þá yngstu. Þeir
enduðu svo daginn á fyrirlestri fyrir
foreldra og var hann mjög vel sótt-
ur. Þar var foreldrum kennt að taka
eftir einkennum eiturlyfjaneyslu og
þess háttar. Ljóst er að allir þurfa að
vera vel vakandi fyrir þessu vanda-
máli. tfk
Eitt af merkari húsum á Akranesi er
án efa Kirkjuhvoll við Merkigerði.
Það var lengst af bústaður presta á
Akranesi, um tíma heimavist nem-
enda við Fjölbrautaskóla Vestur-
lands, en frá árinu 1995 hefur lista-
setur verið starfrækt í Kirkjuhvoli.
Um þessar mundir eru liðin 90 ár frá
því fyrst var flutt inn í Kirkjuhvol.
Nú eru enn ein tímamótin í húsinu
þar sem áformað er að leigja starf-
semi í því til einkareksturs. Í tilefni
þessa er ekki úr vegi að stikla á stóru
í sögu Kirkjuhvols.
Í minningarbrotum þess fólks sem
fyrst bjó í Kirkjuhvoli, segir m.a. svo
um komu þess á Akranes: „Það er
síðsumars 1921. Eða kannski kom-
ið haust. Systurnar fjórar eru stadd-
ar um borð í litlum mótorbáti úti
fyrir mynni Hvalfjarðar. Þær stara
óþreyjufullar til lands og fylgjast með
því hvernig örsmá húsin á mjóu nesi,
sem teygir sig út í Faxaflóann, rísa
smátt og smátt úr sæ. Upp úr húsa-
þyrpingunni miðri teygir sig kirkju-
turn. Þær taka eftir því að fjallið upp
af nesinu breytir sífellt um svip. Fjall-
ið heitir Akrafjall og þær eru að flytja
í plássið Akranes. Pabbi þeirra hef-
ur hlotið kosningu til Garðapresta-
kalls og þarna ætla þau að eiga heima
og vonandi kemur mamma heim
frá Vífilsstöðum því hún vill gjarn-
an eiga heima á Akranesi. Hún hefur
sagt þeim frá því að Akranes sé algjör
draumastaður. Þar séu víðáttumikl-
ir kartöfluakrar með gróskumiklu
dimmgrænu kartöflugrasi og túnin
öll svo snyrtileg og vel girt.“
Menningarsetur
hið mesta
Árið 1923 reis hús í landi Brekkubæj-
ar á mörkum Garða og Skaga sem frá
og með þeim tíma skipaði sér sess
sem eitt af merkilegri húsum bæjar-
ins. Það voru hjónin séra Þorsteinn
Briem og Valgerður Lárusdóttir sem
réðust í byggingu þess en yfirsmiður
var Páll Friðriksson, bróðir séra Frið-
riks Friðrikssonar stofnanda KFUM
á Íslandi. Húsið er steinsteypt, með
samtals 30 sentimetra þykkum veggj-
um með mómylsnu á milli. Fyrsta og
önnur hæð voru ætlaðar til íbúðar en
í kjallara var fjós og hlaða þar sem
séra Þorsteinn stundaði einhvern
búskap. Kirkjuhvoll þjónaði lengst
af sem prestssetur fyrir Garðasókn.
Séra Þorsteinn Briem bjó í húsinu frá
byggingu þess til ársins 1946 eða allt
þar til séra Jón M Guðjónsson flutti
inn og dvaldi til ársins 1975. Þá tók
séra Björn Jónsson við og bjó þar til
1978. Þann tíma sem Kirkjuhvoll var
prestsbústaður sveif andi menningar
og lista innan veggja þess. Ljóðskáld,
rithöfundar og myndlistarmenn voru
tíðir gestir sökum velvildar íbúa húss-
ins í þeirra garð og fékk því Kirkju-
hvoll það orð að vera menningarset-
ur hið mesta. Hinn almenni bæjarbúi
var einnig aufúsgestur í Kirkjuhvoli
og var mjög algengt að þar færu fram
skírnir og giftingar.
Listasafn í Kirkjuhvoli
Þegar hlutverki Kirkjuhvols lauk
sem prestsbústaðar tók við tímabil
þar sem húsið þjónaði sem heimavist
Fjölbrautaskólans á Akranesi. Árið
1985 var svo komið að húsið var ekki
lengur talið íbúðarhæft og jafnvel
talið sýnt að það yrði rifið. Það varð
Kirkjuhvoli til bjargar að hjónin Sig-
urður Ragnarsson og Drífa Björns-
dóttir keyptu húsið af Akranesbæ og
á aðdáunarverðan hátt endurbyggðu
það í því sem næst upprunalegri
mynd. Séra Jón M Guðjónsson lést
18. febrúar 1994. Hinsta ósk hans var
sú að í Görðum myndi rísa listasafn.
Byrjunaráfangi að þeirri draumsýn
varð að veruleika er nýstofnuðum
minningarsjóði um séra Jón tókst
með stuðningi Akraneskaupstaðar að
fjármagna kaup á Kirkjuhvoli. Stjórn
sjóðsins ákvað að þar skyldi starfrækt
listasetur í anda þess manns er þjón-
að hafði Skagamönnum af einhug og
óbilgirni í áratugi.
Mikið sjálfboðaliðastarf
Í aðdraganda þess að Kirkjuhvoll
varð listasetur vann hússtjórn skipuð
sjálfboðaliðum mikið starf. Á fyrstu
árum listaseturs í Kirkjuhvoli naut
stafsemin mikils stuðnings frá fyrir-
tækjum og einstaklingum, auk sjálf-
boðaliða sem unnu ómetanlegt starf.
Listasetrið var formlega opnað í
janúar 1995 og hafa verið haldnar þar
um 150 myndlistarsýningar auk ann-
arra uppákoma, svo sem ljóðalesturs,
sögustunda og annarra menningar-
tengdra viðburða. Nemendur grunn-
skóla og leikskóla bæjarins hafa sýnt
verk sín í Kirkjuhvoli og verið dug-
legir að koma á aðrar sýningar til að
fræðast um myndlist. Menningarleg
tengsl hafa verið bæði innanlands og
erlendis, en fengnar voru að láni sýn-
ingar frá vinabæjum Akraness í Fær-
eyjum og Grænlandi auk þess að fá
sýningar frá Hafnarborg, Safni Sig-
urjóns Ólafssonar, Listasafni ASÍ,
safni KB banka, Norræna húsinu og
frá ljósmyndasafni Þjóðminjasafns
Íslands.
Fjölbreyttar sýningar
Sýningar í Kirkjuhvoli hafa verið
fjölbreyttar; málverkasýningar, ljós-
myndasýningar, grafík, skúlptúr-
ar, glerverk og fleira. „Reynt var að
hafa ákveðin viðmið varðandi sýn-
endur, að þeir hafi numið í listum,
en þó hafa einnig verið sýningar frá
sjálfmenntuðum listamönnum, aðal-
lega innanbæjarfólki,“ segir Jóhanna
L. Jónsdóttir sem veitti Listasetr-
inu Kirkjuhvoli forstöðu frá upphafi.
Hún segir tengsl við aðra menning-
arstarfsemi aðallega í formi sýninga,
en þó hafi verið góð samvinna við
söfnin á Akranesi; byggðasafn, bóka-
safn og ljósmyndasafn. Einnig voru
fengnir í heimsókn nemendur tón-
listarskólans til að spila þegar hald-
in voru ljóða- og bókmenntakvöld.
Meðal annarra starfa sem féllu und-
ir ábyrgð forstöðumanns var að skrá-
setja öll verk í eigu Listaverkasafns
Akraneskaupstaðar sem eru rúmlega
350 talsins. Jóhanna hefur nú látið af
störfum forstöðumanns Listaseturs-
ins Kirkjuhvols og er framtíð hússins
í dag óráðin, eins og áður segir, en
ætlunin er að leigja Kirkjuhvol út til
einkareksturs.
þá
Þorkell Már Einarsson nemandi
á náttúrufræðibraut Menntaskóla
Borgarfjarðar fékk nýverið afhenta
viðurkenningu fyr-
ir góða frammistöðu
í stærðfræðikeppni
framhaldsskólanna.
Hann varð í 20.-24.
sæti af 136 keppend-
um á efra stigi í for-
keppninni og öðl-
aðist þar með rétt
til þátttöku í loka-
keppninni sem hald-
in verður í mars á
næsta ári. Afhend-
ingin fór fram í Há-
skólanum í Reykja-
vík en það eru Fé-
lag raungreinakenn-
ara í framhaldsskól-
um og Íslenska stærðfræðifélag-
ið sem standa að kepppninni. Auk
Þorkels tóku þátt í keppninni frá
MB Sigurbjög Rós Sigurðardótt-
ir og Anna Þórhildur Gunnarsdótt-
ir. Þorkell Már, sem lýkur stúdents-
prófi frá MB vorið 2014, er einn-
ig einn af keppendum í Gettu betur
liði skólans. mm
Vitinn, félag áhugaljósmyndara á
Akranesi, heldur ljósmyndasýn-
ingu í menningarsetrinu Kirkju-
hvoli, Merkigerði 8 á Vökudögum
sem hefjast um næstu helgi. Sýnd-
ar verða tæplega þrjátíu ljósmyndir,
flestar teknar á Akranesi eða í næsta
nágrenni. Allar myndirnar eru
prentaðar á striga í stærðinni 50x75
cm og eru þær allar til sölu.
Á sýningunni hefur einnig verið
sett upp myrkraherbergi með tækja-
búnaði eins og tíðkaðist í byrjun
sjöunda áratugarins við framköllun,
stækkun og vinnslu ljósmynda. Sýn-
ingin verður opnuð föstudaginn 1.
nóvember klukkan 19:30 og verður
opin daglega til og með 9. nóvem-
ber frá klukkan 15 til 19. Aðgangur
er ókeypis. Félagar í Vitanum bjóða
gesti hjartanlega velkomna á sýn-
inguna. mm
Vitinn opnar ljósmynda-
sýningu á föstudaginn
Þorkell Már Einarsson.
Nemandi í MB stóð sig
vel í stærðfræðikeppni
Héldu fyrirlestra um
forvarnir gegn eiturlyfjum
Kirkjuhvoll nýbyggður 1923. Ljósm. Ljósmyndasafn Akraness.
Kirkjuhvoll níutíu ára
um þessar mundir
Listasetrið Kirkjuhvoll í dag.
Kirkjuhvoll þegar húsið var í hvað mestri niðurníðslu.
Ljósm. Ljósmyndasafn Akraness.