Skessuhorn


Skessuhorn - 30.10.2013, Page 36

Skessuhorn - 30.10.2013, Page 36
36 MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013 Vörur og þjónusta PARKETLIST PARKETSLÍPUN OG LÖKKUN Sigurbjörn Grétarsson GSM 699 7566 parketlist@simnet.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Hilmir B ehf Alhliða pípulagningaþjónusta Sími 820-3722 • hilmirb@simnet.is LAUSNIN Móttökustöð fyrir endurvinnsluefni og sorp Sími 435 0000 • www.gamar.is • vesturland.gamar.is Höfðaseli 15 Akranesi Opið virka daga kl. 8 – 16 TRÉSMIÐJAN AKUR EHF. Trésmiðjan Akur ehf. • Smiðjuvöllum 9 300 Akranesi Sími 430 6600 • akur@akur.is • www.akur.is ÖLL ALMENN TRÉSMÍÐAÞJÓNUSTA Endurbætur og nýsmíði Þök – Klæðningar – Gluggar – Útihurðir – Sólpallar Vélabær ehf. Bæ í Bæjarsveit Alhliða viðgerðarþjónusta á bílum, dráttarvélum og vélum tengdum landbúnaði Smur og hjólbarðaþjónusta 435-1252 • 893-0688 • velabaer@vesturland.is S K E S S U H O R N 2 01 3 Bifreiðaþjónusta Harðar ehf. Smur og dekkjaþjónusta Sala á dekkjum og olíuvörum Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi 437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is Haustið 2010 átti sér stað hávær umræða um tilvist háskólanna í Borgarbyggð, sér í lagi varðandi Háskólann á Bifröst. Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsti strax yfir mikl- um áhyggjum af framkomnum hugmyndum um innlimun Háskól- ans á Bifröst í Háskólann í Reykja- vík. Tillögurnar fólu í sér að há- skólanám á Bifröst myndi leggj- ast af og það nám sem eftir stæði myndi veikjast verulega. Fjöldi starfa myndi flytjast frá Borgarfirði til Reykjavíkur og héraðið myndi missa einn af sínum mikilvægustu vinnustöðum. Að undangengum löngum og ströngum fundahöldum varð niðurstaðan þá að Bifröst héldi sjálfstæði sínu. Menntastofnanir eru ein af grunnstoðum samfélagsins í Borg- arbyggð og sveitarfélagið hefur til fjölda ára stutt við bakið á Háskól- unum á Bifröst og Hvanneyri með mikilli uppbyggingu á aðstöðu til Nú fer að koma að Uppskeruhá- tíð ferðaþjónustunnar á Vestur- landi sem haldin verður í Reyk- holti 7. nóvember nk. Við munum m.a. fara í óvissuferð um Borgar- fjörð og snæða saman kvöldverð, kynnast og ræða saman um þau mál sem við veltum oft fyrir okk- ur. Til dæmis hvar kaupir þú kló- settpappírinn eða hvaða auglýs- ingamiðill fannst þér virka í sum- ar? Við byrjum Uppskeruhátíðina á mikilvægu málefni þar sem við þurfum að svara spurningunni: „Viljum við hafa Markaðsstofu í okkar landshluta?“ Byrjað verður á því að fara yfir verkefni og hlutverk MV, einn- ig verður farið yfir fjárhagsstöðu ásamt því að fulltrúi frá Samtök- um sveitarfélaga á Vesturlandi kemur og fer yfir tillögu starfs- hóps á þeirra vegum um MV. Síðan skiptum við okkur niður í smærri hópa og förum yfir mál- in. Ég vill hvetja alla þá sem hafa hagsmuni að gæta að mæta á þennan vinnufund og fara yfir þetta mikilvæga málefni þar sem við þurfum að komast að sameig- inlegri niðurstöðu. Búið er að stofna hóp á Fés- bókinni sem heitir Ferðamála- samtök Vesturlands og ef þú ert ekki í honum í dag þá endilega hafðu samband og ég bæti þér í hópinn. Björn Páll Fálki Valsson, formaður Ferðamálasamtaka Vesturlands og ferðaþjónustubóndi Þórisstöðum Guðmundur Þorsteinsson, fyrr- um bóndi og smiður í Efri-Hrepp í Skorradal en nú búsettur á Akra- nesi, er áhugamaður um sögu og fornminjar. Mánudaginn 4. nóvem- ber ætlar hann m.a. að segja frá at- hugunum sínum á gufutengdum fornminjum í Reykholti og tengd- um frásögnum í Sturlungu. Erind- ið er liður í dagskrá menningarhá- tíðarinnar Vökudaga sem haldn- ir verða á Akranesi 30. október til 9. nóvember nk. Guðmundur seg- ir athuganir sínar benda til að þarna hafi verið unnið að tilraunum með hveragufu á Sturlungaöld, nokkrum öldum fyrr en vitað er um annars- staðar. Minjar þessu tengdar virðast hafa sloppið ótrúlega vel frá tímans tönn og segja á sinn hátt mikla sögu ef grannt er skoðað. Hann segist hafa fengið sérstakt dálæti á vel til- höggnum rennusteini sem fannst árið 1929 við jarðrask á staðnum þegar unnið var að flutningi skóla frá Hvítárbakka að Reykholti. Við athuganirnar þrengdi steinninn sér sífellt framar í tímaröð gufutengdu minjanna en hann hefur legið lengi án verulegrar athygli í geymslu Þjóðminjasafnsins. „Þessi umfjöllun mín í Safnaskál- anum verður á léttari nótunum. Hún verður sniðin fyrir þá sem kunna að hafa eitthvert gaman af að heyra og sjá hvað forverar okkar voru að bar- dúsa þar að því er virðist á 13. öld- inni. Rætur þessara einstöku ævin- týra sem þar gerðust á þeim tíma má segja að liggi undir fótum okkar í Garðakaffi þetta kvöld en á þess- um slóðum mun Guðný Böðvars- dóttir, móðir Snorra Sturluson- ar, hafa leikið sér sem barn forðum daga,“ segir Guðmundur. Fyrirlesturinn 4. nóvember í Garðakaffi í Safnaskálanum á Akra- nesi er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Hann hefst klukkan 20. mþh Pennagrein Stöndum vörð um fjölbreytt háskólanám Veltir því upp hvort gufuhitaveita hafi verið í Reykholti á 13. öld Guðmundur Þorsteinsson ásamt eiginkonu sinni Gyðu Bergþórsdóttur á heimili þeirra á Akranesi. að þar sé hægt að bjóða upp á fjöl- skylduvænt umhverfi og góða þjón- ustu grunn- og leikskóla. Nú er enn vegið að sjálfstæði há- skólanna í Borgarbyggð og er nú jafnt rætt um Bifröst sem og Land- búnaðarháskóla Íslands á Hvann- eyri. Rætt er um faglegan og fjár- hagslegan ávinning en allt er þetta frekar loðið og þegar rætt er við fagaðila, utan samfélags Háskóla Íslands, eru svörin afdráttarlaus, faglegur ávinninningur er ekki til staðar og ekki hefur verið sýnt fram á fjárhagslegan ávinning, frekar hið gagnstæða sbr. skýrslu sem unnin var árið 2009. Áhrif á byggðarþróun og byggð- armál yrðu hinsvegar strax veruleg og hægt er að sýna fram á áhrif þessa strax. Mikill fjöldi námsmanna hef- ur átt börn í leik- og grunnskólum Borgarbyggðar og ef háskólanám verður flutt úr sveitarfélaginu þá mun það setja starf þessara stofnana í uppnám. Þar fyrir utan hafa nem- endur og kennarar við háskólana á Hvenneyri og Bifröst verið virkir þátttakendur í mannlífi og menn- ingu héraðsins. Undirritaður leggur áherslu á að skoðaðir verði vandlega allir mögu- leikar á að leita annarra leiða til að tryggja öflugt háskólasamfélag í Borgarfirði og bendir sérstaklega á þá möguleika sem felast í aukinni samvinnu háskólanna, á Bifröst og Hvanneyri og mögulega Hólum. Ráðherra, þingmenn og aðrir sem um stjórntauma halda, hugs- ið viðfangsefnið út frá víðara sam- hengi, fjölbreytni aðstæðna fyr- ir nemendur skiptir máli, mann- líf á landsbyggðinni er kröftugt og mikilvægt að það fái að blómstra. Ekki viljum við einsleitt háskóla- umhverfi fyrir okkar kröftugu þjóð, eða hvað? Björn Bjarki Þorsteinsson, formað- ur byggðarráðs Borgarbyggðar. Pennagrein ÞÚ! Kæri ferðaþjónustuaðili á Vesturlandi!

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.