Skessuhorn


Skessuhorn - 30.10.2013, Síða 39

Skessuhorn - 30.10.2013, Síða 39
39MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA Lífshlaup framhaldsskólanna er heilsu- og hvatningarverkefni á veg- um Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Í verkefninu eru nemend- ur og starfsmenn framhaldsskóla landsins hvattir til að auka sína daglega hreyfingu eins og kostur er. Verkefnið fór fram í annað sinn dagana 3.-16. október sl. Alls voru tíu skólar sem tóku þátt með 1.774 þátttakendur. Verðlaunaafhend- ing fór fram í liðinni viku í Íþrótta- miðstöðinni í Laugardal. Fengu þeir skólar sem náðu bestum ár- angri í sínum flokki afhentan við- urkenningarskjöld. Samstarfsaðil- ar Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands í Lífshlaupi framhaldsskól- anna eru mennta- og menning- armálaráðuneytið, embætti land- læknis og Advania. Í flokki skóla með allt að 400 nemendur náði Menntaskólinn á Laugarvatni bestum árangri en Framhaldsskólinn á Húsavík varð annar. Í flokki skóla með 400 til þúsund nemendur varð Kvenna- skólinn í Reykjavík í fyrsta sæti en Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akra- nesi varð í öðru sæti. Í flokki skóla með yfir þúsund nemendur varð Borgarholtsskóli í fyrsta sæti, Fjöl- brautaskólinn við Ármúla annar og Verkmenntaskólinn á Akureyri þriðji. mm Skagamenn tóku á föstu- daginn á móti Vængjum Júpíters á Jaðarsbökk- um í þriðja leik tíma- bilsins í fyrstu deildinni í körfuboltanum. Hlutskipti lið- anna úr fyrstu tveimur umferðum deildarinnar var ójafnt; ÍA ósigr- að á meðan Vængirnir höfðu tapað báðum sínum leikjum. Til að gera langa sögu stutta breyttist hlut- skipti liðanna ekki að leik loknum þar sem heimamenn voru sterkari allan leikinn. Eftir að gestirnir úr Grafarvogi höfðu komist í 0-4 tóku heimamenn við sér, skoruðu tíu stig í röð og leiddu að loknum fyrsta leikhluta 28-17. Í öðrum leik- hluta var öllu meira jafnræði með liðunum en Vængir Júpiters kom- ust aldrei nær Skagamönnum en sjö stigum og svo fór að staðan í hálf- leik var 55-43 fyrir heimamenn. Skagamenn mættu einbeittir inn í þriðja leikhluta og settu á köflum upp sýningu inn á vellinum, áhorf- endum til mikillar gleði, en gam- an er að geta þess að vel var mætt í braggann á Jaðarsbökkum á föstu- daginn. Að loknum þriðja leik- hluta höfðu heimamenn bætt við stigaskor sitt 37 stigum en gest- irnir 23. Það var því formsatriði að klára loka fjórðunginn og svo fór að heimamenn lönduðu 110-90 sigri og sex stig, eða fullt hús, í deildinni því staðreynd. Zachary Jamarco Warren átti enn einn stórleikinn og skoraði 43 stig, gaf 9 stoðsendingar og tók 5 fráköst, mögnuð frammistaða þar. Áskell skoraði 20 stig. Skagamenn fara því inn í bikarhlé deildarinn- ar á toppnum, ásamt Tindastóli og Þór frá Akureyri. Liðinu bíður verðugt bikar verkefni þegar það fær Fjölni í heimsókn á Jaðarsbakk- ana á föstudaginn kemur og verður uppkast að vanda kl. 19:15 þann 1. nóvember. mm Skallagrímur náði ekki sömu gæðunum í leik sínum líkt og gegn Ís- firðingum á dögunum, þegar þeir töpuðu fyr- ir kanalausum Stjörnumönnum í Garðabænum sl. fimmtudagskvöld. Þetta var fjórði leikur Skallagríms- manna í úrvalsdeildinni í körfu- bolta í vetur og þeir eru aðeins með einn sigur úr þeim leikjum. Loka- tölur voru 84:68 fyrir Stjörnuna í gærkveldi. Skallagrímsmenn áttu á brattann að sækja allan leikinn og voru 13 stigum undir í leikhléinu 44:31. Mestu munaði hjá þeim að bandaríski leikmaðurinn Myc- hal Grenn átti ekki mikið framlag í leiknum, skoraði einungis 7 stig, skilaði sex stoðsendingum og tók 10 fráköst. Páll Axel Vilbergsson var stigahæstur með 16, Egill Eg- ilsson skoraði 11, Orri Jónsson 9, Davíð Guðmundsson 9, Davíð Ás- geirsson 7, Grétar Ingi Erlends- son 5, tók 11 fráköst og þrjú varin skot og Sigurður Þórarinsson skor- aði 4 stig. Hjá Stjörnunni var Just- in Shouse langatkvæðamestur með 32 stig og 10 stoðsendingar. Skalla- grímur á ekki leik í úrvalsdeildinni næst fyrr en 8. nóvember í Njarð- vík, en í þessari viku verður leikið í 32ja liða úrslitum Powerade bik- arsins. þá Snæfell byrjar ekki vel í úrvalsdeildinni þennan veturinn og er nú neð- arlega á töflunni eftir aðeins einn sigur í þremur leikjum. Þeirra annað tap var gegn baráttuglöðum KR ingum í Stykk- ishólmi á fimmtudagskvöldið. KR- ingum var spáð titlinum af speking- um fyrir tímabilið og vissulega lít- ur lið þeirra vel út í byrjun móts. Lokatölur í leiknum í gærkveldi voru 99:84. KR-ingar eru kanalaus- ir um þessar mundir en Pavel Er- molinskij var vel ígildi sterks út- lendings í leiknum og var langbesti maður vallarins. Jafnt var í fyrsta leikhluta en gestirnir tóku síðan völdin og voru 12 stigum yfir í hálfleik 47:35. Álíka munur hélst síðan á liðunum út leikinn og Snæfellingar voru aldrei líklegir til að snúa leiknum sér í vil, svo góð tök höfðu gestirnir. Hjá Snæfelli var Kristján Pétur Andr- ésson stigahæstur með 20, Vance Cooksey kom næstur með 18, 6 fráköst og 8 stoðsendingar, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 9, Stefán Karel Torfason 9 og 9 fráköst, Sigurður Á Þorvaldsson 8, Jón Ólafur Jónsson 6 og 8 fráköst, Finnur Atli Magn- ússon 5, Hafþór Ingi Gunnarsson 5 og Sveinn Arnar Davíðsson 4. Hjá KR var Helgi Már Magnússon stigahæstur með 25, Darri Hilm- arsson 22 og Pavel Ermolinskij 20, 20 fráköst og 13 stoðsendingar. Í næstu umferð mætir Snæfell Haukum í Hafnarfirði í kvöld, mið- vikudag. Haukarnir hafa byrjað vel og eru með firnasterkt lið. þá Snæfellskonur eru aldeil- is komnar í gírinn og virðast til alls líklegar í úrvaldsdeildinni í körfu- boltanum í vetur. Snæfell sigraði KR-inga með yfirburðum sl. sunnudag, 80:57, en leikið var í Vesturbænum í Reykjavík. Snæ- fellskonur náðu þar með að kvitta rækilega fyrir endann á síðasta tímabili þegar þær féllu út á sama stað fyrir KR í undanúrslitum úr- slitakeppninnar. Snæfellsliðið sem gekk í gegnum nokkrar leikmanna- breytingar fyrir tímabilið virðist smollið saman og nýju leikmenn- irnir skila miklu til liðsins. Strax í upphafi leiks í Vesturbænum var sýnt hvert stefndi. KR var án út- lendings í þessum leik og hafði ekki roð við gestunum. Snæfell var með yfirburðastöðu 46:23 í hálfleik og var búið að bæta tíu stigum við það forskot fyrir lokakaflann. Lokatöl- ur eins og áður segir 80:57. Hildur Björg Kjartansdóttir var stigahæst hjá Snæfelli með 17 stig, Hildur Sigurðardóttir skoraði 17, tók 6 frákost og átti jafnmarg- ar stoðsendingar, Chynna Unique setti 14 stig, Rebekka Rán Karls- dóttir 8, Eva Margrét Kristjáns- dóttir 7 stig og 7 fráköst, Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir 7 stig, 7 frá- köst og 6 stoðsendingar, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 4, Edda Bára Árnadóttir 2, Helga Hjördís Björg- vinsdóttir 2 og 6 fráköst og Aníta Rún Sæþórsdóttir 2 stig. Hjá KR var Borgnesingurinn Sigrún Sjöfn Ámundadóttir lang atkvæðamest með 21 stig. Í næstu umferð mætir Snæfell Haukum í Hafnarfirði nk. mið- vikudag, þ.e. í kvöld. Á sunnudag verður síðan stórleikur í Hólmin- um þegar topplið Keflavíkur kemur í heimsókn. Keflavíkurstúlkur eru með 10 stig og Snæfell í öðru sæti með 8 stig. þá Í vikunni varð ljóst að tveir leik- menn eru á leiðinni úr herbúðum Skagamanna í fótboltanum. Leik- maðurinn ungi og efnilegi Alex- ander Már Þorláksson, sem lék þrjá leiki með Skagaliðinu síðasta sum- ar, er á leið til Fram og verður þar undir handleiðslu Bjarna Guðjóns- sonar. Þá er gamla brýnið Dean Martin á leið til Eyja, þar sem hann mun aðstoða Sigurð Ragnar Eyj- ólfsson við þjálfun karlaliðs Eyja- manna. Dean hefur síðustu árin verið þrekþjálfari hjá ÍA auk þess að spila með liðinu. Áður hefur komið fram að Kári Ársælsson og Hafþór Ægir Vilhjálmsson verða ekki með ÍA næsta sumar, þar sem að Gunn- laugur Jónsson nýr þjálfari óskaði ekki eftir kröftum þeirra. þá Snæfellskonur áfram á hvínandi siglingu Snæfellingar réðu ekki við meistaraefnin Skallagrímstap í Garðabænum Sigurganga Skagamanna heldur áfram Dean Martin er á förum til Eyja. Tveir á förum frá ÍA Nemendur FVA tóku þátt í Lífshlaupinu Frá verðlaunaafhendingunni til skólanna í síðustu viku.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.