Skessuhorn - 13.11.2013, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13 . NÓVEMBER 2013
Fyrir áhugafólk um kvikmyndir má
benda á að þessa dagana er að hefj-
ast kvikmyndahátíðin Northern
Wave í Grundarfirði. Glæsileg dag-
skrá og óvenjulega fjölbreytt úrval
mynda úr ýmsum heimsálfum.
Það eru umhleypingar í kortunum.
Á fimmtudag er spáð hvassri sunn-
anátt með hlýnandi veðri þannig að
snjókoma eða slydda syðra breytist í
rigningu, en úrkomulítið verður aust-
an til. Á föstudag snýst í strekkings
vestanátt með rigningu og slyddu
og éljum um kvöldið. Á laugardag
er spáð áfram vestlægri átt með élj-
um en víða léttskýjuðu á austurhlua
landsins. Hitastig yfirleitt frá núlli að
sex stiga frosti á landinu. Á sunnu-
dag og mánudag er útlit fyrir norð-
læga eða breytilega átt með éljum í
flestum landshlutum. Kalt í veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Hvar kaupir þú meirihluta
jólagjafanna í ár?“ Í heimabyggð
sögðu 35,84%, á höfuðborgarsvæð-
inu 25,94%, á mörgum stöðum
11,88%, í útlöndum 10,5%, geri þær
sjálf/ur sögðu 2,77%, í gegnum net-
ið sögðu 2,18% og í öðrum lands-
hlutum sögðu 1,19%. 5,15% sögð-
ust ekki gefa gjafir 4,55% höfðu ekki
myndað sér skoðun um það enn.
Í þessari viku er spurt:
Hvernig líst þér á tillögurnar til
hagræðingar í ríkisrekstri?
Tinna Kristín Finnbogadóttir frá
Hítar dal er Vestlendingur vikunnar.
Hún er í landsliði Íslands í skák og er
að gera góða hluti á EM í Póllandi.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Minningar
tónleikar
STYKKISH: Sunnudaginn 17.
nóvember kl. 15 verða haldn-
ir minningartónleikar um Haf-
stein Sigurðsson tónlistarmann
og fyrrum kennara Tónlistar-
skólans í Stykkishólmi. Tón-
leikarnir verða í samkomusal
Hótel Stykkishólms. Þar kenn-
ir margra grasa, bæði hljóð-
færaleikur og söngur; harmon-
ikkutónlist, leikústónlist, klez-
mer-tónlist, klassíska tónlist og
danstónlist. Einnig verða rifjað-
ar upp nokkrar af gamanvísum
sem Haddi gerði. Fjöldi tón-
listarfólks kemur fram úr hópi
vina, samstarfsmanna og fjöl-
skyldu. Þá verða sýndar mynd-
ir af tónlistarferlinum o.fl. Eng-
inn aðgangseyrir er að tónleik-
unum, en fólki gefst kostur á að
greiða frjálst framlag í sérstakan
minningarsjóð um Hafstein sem
ætlað er að styðja ungt tónlist-
arfólk á ýmsa lund. Reiknings-
númer: 0309-22-344 - Kenni-
tala: 650269-3579.
–fréttatilk.
Blóðsykur
mældur
AKRANES: Alþjóðadagur syk-
ursjúkra er á morgun, fimmtu-
daginn 14. nóvember. Að því
tilefni mun Vesturlandsdeild
Samtaka sykursjúkra, í sam-
starfi við Lionsklúbb Akraness,
standa fyrir blóðsykursmælingu
og kynningu á laugardaginn á
týpu 1 og 2 við Apótek Vestur-
lands í verslunarmiðstöðinni að
Smiðjuvöllum á Akranesi frá kl.
13-15. Mælingarnar eru í boði
Apóteks Vesturlands og eru frí-
ar. Stjórnir félaganna hvetja
íbúa og aðra nærsveitamenn til
að mæta og kynna sér málefn-
ið og láta mæla í sér blóðsykur-
inn.
–hlh
Minniháttar
meiðsli í
óhöppum
LBD: Þrjú umferðaróhöpp urðu
í umdæmi lögreglunnar í Borga-
firði og Dölum í vikunni, tvö að
talið er vegna hálku. Minnihátt-
ar meiðsli urðu á fólki í tveimur
bílveltum og einn ökumaður er
grunaður um ölvun við akstur.
Þrír ökumenn voru teknir fyr-
ir ölvun við akstur og einn fyrir
akstur undir áhrifum fíkniefna
í liðinni viku í umdæmi LBD.
–þá
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin Northern Wave verður haldin
um næstu helgi
Gerðu þér ferð til Grundarfjarðar
um helgina. Nánar á:
GrundarfjörDur
15.-17. nóvember 2013
Myndir frá yfir 40 löndum
Barnabíó
Kaffisala á staðnum
Ball og tónleikar
Fiskiveisla
Norðurljós
Komdu í heimsreisu um helgina
6. Alþjóðlega Kvikmyndahátíðin
Kröpp lægð gekk hratt yfir vestan-
vert landið síðdegis á sunnudag-
inn. Um tíma var veðurofsinn slík-
ur að þjóðveginum var lokað und-
ir Hafnarfjalli og við Laxárbakka í
Hvalfjarðarsveit. Strætóferðir féllu
einnig niður um Kjalarnes. Vind-
hraði undir Hafnarfjalli fór upp í
rúma 50 metra á sekúndu í verstu
kviðunum. „Við höfum haft nóg af
Óveðurshvellur á sunnanverðu
Vesturlandi síðasta sunnudag
verkefnum og erum nú með átta
hópa úti við hjálparstörf. Það er þak
að fjúka af sumarhúsi í Hafnarskógi,
húsbíll, kerrur og fiskikör hafa far-
ið af stað, þakplötur hafa losnað af
húsum á Akranesi og í einu tilviki
fokið á bifreið og valdið skemmd-
um. Við viljum mælast til þess að
fólk sé ekki á ferli utandyra,“sagði
Þór Bínó formaður Björgunarfélags
Akraness við Skessuhorn síðdegis á
sunnudaginn þegar veðrið var hvað
verst. Þakplötur losnuðu einn-
ig af húsum í Borgarnesi og gám-
ur fauk af stað og felldi ljósastaur.
Í höfninni á Grundartanga losnaði
flutningaskipið Fernanda þar sem
það var bundið við bryggju. Skip-
ið lamdist ítrekað í bryggjukantinn.
Höggin voru svo þung að klæðning
brotnaði á bryggjunni. Alls voru 17
útköll á Akranesi og níu í Borgar-
nesi vegna óveðursins. Björgunar-
sveitir á sunnanverðu Vesturlandi
sinntu því vel á þriðja tug útkalla í
þessu óveðri. Upp úr klukkan 18 á
sunnudaginn var mesti stormurinn
genginn yfir. Engin meiðsl urðu á
fólki og eignatjón varð minna en
ella, þar sem björgunarstarf gekk
greiðlega.
mþh
Þessi gámur fauk í loftköstum á Digranesgötu í Borgarnesi og straujaði ljósa-
staurinn ofan í bílastæðið. Þetta hefði getað farið verr því gámurinn var aðeins
um metra frá Arion banka þegar hann fór framhjá. Ljósm. Björgunarsveitin Brák.
Klæðningar og þakplötur losnuðu á nokkrum húsum á Akranesi. Ljósm. ki
Hemja þurfti girðingar sem búið var að reisa kringum fram-
kvæmdir á Akratorgi. Ljósm. ki.
Kerrur voru næstum farnar á flug við N1 á Akranesi en því var forðað fyrir snarræði björgunarsveitarliða. Ljósm. ki.
Flutningaskipið Fernanda sem frægt er orðið minnti á sig
þegar það losnaði frá bryggju á Grundartanga og slóst
utan í hana af svo miklu afli að klæðning bryggjunnar
brotnaði. Nokkuð sá einnig á brenndum byrðingi skipsins.
Ljósm. ki.