Skessuhorn - 13.11.2013, Síða 11
11MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2013
SKÖPUM 1000 NÝ STÖRF
FAXAFLÓA
kl. 10:00-15:00
N
á
n
a
ri d
a
g
sk
rá
a
u
g
lýst síð
a
r
Tónbergi
Stefnumótun um atvinnumál á Akranesi
Skráning fer fram á www.akranes.is
Fyrirlestrar og vinnuhópar.
Taktu þátt - Allir velkomnir.
Finndu viðburðinn á facebook - Stefnumótun um atvinnumál á Akranesi
30 / 11
FRAMTÍÐ VIÐ
Blóðsykurmæling á Akranesi
Laugardaginn 17. nóvember verða Félag sykursjúkra á Vesturlandi og Lions
klúbbur Akraness með fría blóðsykursmælingu í boði Apóteks Vesturlands.
Mælingin fer fram í verslunarmiðstöðinni Smiðjuvöllum 32 (Bónus) og stendur yfir frá kl. 13.00-15.00.
Allir eru hvattir til þess að nýta sér mælinguna.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Verið velkomin
opnunartími:
11-18 virka daga
11-15 laugardaga
Af því tilefni verður 15% afsláttur
af öllum vörum hjá okkur
fimmtudaginn 14. nóvember
Full búð af fallegum jóla- og
tækifærisgjöfum
Opið frá 11 - 22
Léttar veitingar í boði!
Hlökkum til að sjá ykkur
Við erum
eins árs
Síldardauðinn í Kolgrafafirði
síðasta vetur hefur haft þær afleið-
ingar að lítið líf er nú á hafsbotn-
inum í firðinum. Súrefnisskort-
ur vegna rotnunar síldarinnar hef-
ur eytt mestöllu botndýralífi. Eft-
ir lifa helst ormar sem eru sérhæfð-
ir til að komast af í súrefnissnauðu
umhverfi. Botnleðjan er víða kol-
svört og angar af brennisteinsfýlu
sem eru einkenni
súrefnisleysis. Þetta
eru frumniðurstöður
rannsóknar Náttúru-
stofu Vesturlands,
Rannsóknaseturs HÍ
á Snæfellsnesi og Líf-
og umhverfisvísinda-
stofnunar HÍ.
S í l d a r d a u ð -
inn í fyrra er talinn
hafa orsakað þetta
hrun í botndýralíf-
inu. „Okkur grun-
aði að lífríkið á botni
Kolgrafafjarðar yrði fyrir mikl-
um skakkaföllum vegna súrefnis-
skorts þegar síldin rotnaði. Við vit-
um að dauð botndýr rak á land eft-
ir síldardauðann í fyrra. Með styrk
frá Vegagerðinni var sett af stað
samvinnuverkefni um sýnatöku og
rannsóknir á botndýralífinu nú í
sumar. Tekin voru sýni af botninum
á sömu stöðum og gert hafði ver-
ið árið 1999 þegar fjörðurinn var
rannsakaður vegna umhverfismats
í tengslum við fyrirhugaða þverun
og vegagerð,“ segir Róbert Arnar
Stefánsson forstöðumaður Náttúr-
stofu Vesturlands í Stykkishólmi.
Niðurstöðurnar eru ekki upp-
örvandi. Rotnun síldarinnar á botni
fjarðarins hefur framkallað mik-
inn súrefnisskort. „Botnleðjan er
kolsvört og brennisteinsfnykur af
henni sem bendir ótvírætt til súr-
efnisskorts. Dýrategundum hefur
fækkað mjög samanborið við 1999.
Í botnsetinu er nú ríkjandi ein teg-
und burstaorma sem er þekkt fyrir
að ná miklum þéttleika við aðstæð-
ur þar sem er ofgnótt næringarefna
og súrefnisskortur, t.d. í grennd
við stórar skólpútrásir. Hins veg-
ar er lífríkið utan brúar mun fjöl-
breyttara og líkt því sem áður var
inni á firðinum.“ Róbert segir að
ef síldardauðinn endurtaki sig ekki
megi þó vænta þess að lífríkið jafni
sig aftur á nokkrum árum eftir að
rotnuninni er lokið. „Við ætlum
að reyna að útvega fjármagn til að
fylgjast með þeirri þróun,“ segir
Róbert og bætir við að rannsókn-
inni á ástandinu sumarið 2013 sé
ekki lokið. Hún er einkum unnin
af Valtý Sigurðssyni, meistaranema
í líffræði, og var kynnt á ráðstefnu
Líffræðifélags Íslands í Reykjavík í
síðustu viku. mþh
Enn eru engin merki um það að
síld hafi gengið inn á Kolgrafafjörð
í haust. Mikil umræða hefur farið
fram um hugsanlegar mótvægisað-
gerðir til að koma í veg fyrir nýjan
síldardauða. Róbert Arnar Stefáns-
son líffræðingur hjá Náttúrustofu
Vesturlands segir að stjórnvöld séu
að skoða ýmsa möguleika og reyna
að meta kostnað við framkvæmd
þeirra. „Það er þá helst að fæla síld-
artorfurnar frá því að synda undir
brúna með nokkurs konar loftból-
uneti, einhvers konar veifum sem
settar yrðu ofan í sjóinn eða með
því að senda út hvalahljóð neðan-
sjávar. Vandinn er bara að menn
hafa ekkert fast í hendi um það
hvort svona lagað virki.“
Enn sem komið er virðist það
huggun harmi gegn að svo er að sjá
sem síldin hafi ekki gengið upp að
ströndum við norðanvert Snæfells-
nes í sama mæli og áður. „Það virð-
ist vera miklu minna af síld á þess-
um slóðum heldur en í fyrra. Þetta
eru kannski nokkrir tugir þúsunda
tonna sem hafa þá einkum safnast
inn á Hofsstaðavog. Stærstur hluti
fullorðna hluta síldarstofnsins hef-
ur þannig ekki skilað sér upp að
ströndinni hvað sem síðar verður.
Menn eru að velta fyrir sér hvort
þessi síld hafi gengið austur fyrir
land og dvelji þar nú með smásíld-
inni við suðausturströndina. Mér
skilst að rannsóknaskip Hafrann-
sóknastofnunar leiti nú með síldar-
skipunum á Breiðafirði,“ segir Ró-
bert.
Páll Aðalsteinsson í Stykkis-
hólmi gerir út tvo smábáta á síld
frá Stykkishólmi og hefur í haust
róið á þeim báðum. Hann staðfestir
það mat að frekar lítið af síld virð-
ist hafa gengið á veiðisvæðið sam-
anborið við sama tíma í fyrra. Í
Stykkishólmi bíða margir eftir því
hvort sjávarútvegsráðherra taki nú
ákvörðun um aukinn síldarkvóta
handa smábátunum. „Það hefur
ekkert heyrst frá stjórnvöldum en
við eigum von á ákvörðun í þessari
viku. Margir smábátanna eru bún-
ir með skammtinn en nokkrir hafa
ekki enn farið af stað. Það eru þá
bátar sem ætluðu að leggja upp til
vinnslu í Búðardal en þar mun fyr-
irtækið ekki enn vera tilbúið að taka
við hráefni.“ mþh
Síld landað á dögunum til vinnslu í Stykkishólmi.
Minna af síld en á
sama tíma í fyrra
Róbert Arnar Stefánsson forstöðumaður Náttúrustofu
Vesturlands við rannsóknir í Kolgrafafirði. Botn
fjarðarins er víða nánast sem eyðimörk á að líta eftir
síldardauðann í fyrra.
Botn Kolgrafafjarðar
nánast lífvana