Skessuhorn


Skessuhorn - 13.11.2013, Qupperneq 15

Skessuhorn - 13.11.2013, Qupperneq 15
15MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2013 Frá og með 2. janúar næstkomandi vantar sérkennara til starfa í unglingadeild við Grunnskólann í Borgarnesi. Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður grunnskóli með 289 nemendur í 1.–10. bekk. Skólinn vinnur samkvæmt Uppbyggingarstefnunni, er Heilsueflandi grunnskóli og Grænfánaskóli. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki og stöðugleiki er í starfsmannahaldi. Einkunnarorð skólans eru; sjálfstæði, ábyrgð, virðing og samhugur. Frekari upplýsingar má sjá á heimasíðu skólans www.grunnborg.is Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að starfa að sveigjanlegu skólastarfi og í teymisvinnu samkvæmt stefnu skólans. Menntun, reynsla og hæfni: • B.ed. próf. • Æskilegt að viðkomandi hafi meistarapróf í sérkennslufræðum. • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar. • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. • Jákvæðni, ábyrgðarkennd og skipulagshæfileikar. • Æskilegt að umsækjandi hafi reynslu af kennslu nemenda með sérþarfir. Umsóknarfrestur er til og með 9. desember nk. Nánari upplýsingar gefur Hilmar Már Arason, hilmara@grunnborg.is skólastjóri í síma 4371229. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Ís- lands heimsótti Háskólann á Bif- röst mánudaginn 11. nóvember og átti fund með bæði nemendum og starfsfólki skólans. Hann byrj- aði á því að ganga um skólabygg- ingarnar í fylgd Vilhjálms Egilsson- ar rektors og Þóris Páls Guðjóns- sonar kennara við skólann til langs tíma. Skoðuðu þeir m.a. myndir af fyrrum nemendum skólans og fóru í Hollvinastofuna á Bifröst sem geymir gamla hluti frá skólastarfi á Bifröst í gegnum árin. Því næst átti forsetinn fund með kennurum og öðru starfsfólki skólans. Á fundin- um kynnti hann sér málefni skólans og fjallaði um þær breytingar sem hafa orðið á kennsluháttum vegna tækniframfara og alþjóðavæðing- ar og hvernig búa megi nemendur sem best fyrir framtíðina. Ólafur Ragnar ávarpaði svo nem- endur á sal á málstofu þar sem hann fjallaði um stöðu Íslands í alþjóð- legu samhengi. Nefndi hann sér- staklega þrjú atriði þar sem Ísland yrði mjög áberandi á alþjóða vett- vangi. Í fyrsta lagi er það jarðhitinn og hvernig hægt er að nýta hann víðsvegar um heiminn. Í öðru lagi nefndi hann ferðaþjónustuna og þá sögulegu arfleið sem Ísland á og ferðamenn koma að skoða og upp- lifa. Í þriðja og síðasta lagi fjallaði forsetinn um það hlutverk sem Ís- land getur gegnt á sviði norður- heimskautsmála, eins og með til- komu alþjóðlegrar skipahöfn í Finnafirði en mikil tækifæri liggja í að gera landið að viðkomustað á al- þjóðlegri flutningaleið skipa. Ólaf- ur Ragnar svaraði loks fyrirspurn- um úr sal frá nemendum í lok mál- stofunnar. Eftir að málstofu lauk afhenti Hallur Jónasson, formaður Sjen- tilmannaklúbbsins á Bifröst, for- setanum gjöf frá samfélaginu á Bif- röst sem innihélt bréfahníf gerðan úr hornum holdanauts frá Ferju- bakka og hannaður af Rítu og Páli í Grenigerði. Að endingu var svo haldið kaffiboð fyrir forsetann, nemendur og starfsfólk Háskólans á Bifröst að gömlum íslenskum sið. Þar var boðið upp á flatkökur með hangikjöti, hnallþórur, kleinur og pönnukökur. Heimsókn forseta Íslands var skipulögð af Sjentilmannaklúbbn- um á Bifröst í samráði við skólann og skrifstofu forseta Íslands. mm/ bþþ Framkvæmdir standa nú yfir á veg- um Vegagerðarinnar á veginum sem liggur út að Svörtulöftum á Snæ- fellsnesi. Verið er að hækka veg- inn upp og taka af honum kröpp- ustu beygjurnar. Með þessu er ver- ið að gera ökumönnum hópferða- bíla og reyndar smærri bíla einn- ig aðveldara að aka um veginn. Að sögn Björns vegagerðarstjóra verð- ur ekki lagt á veginn bundið slitlag í þessari atrennu, en vonast til að það komi síðar. þa Í vikunni lýsti Sigurður Ingi Jó- hannsson sjávarútvegsráðherra því yfir að til standi að setja makríl- veiðar í kvóta á næsta ári. Þar verði miðað við aflareynslu skipa. Kvót- arnir eiga að verða framseljanlegir. Þetta kom fram í sjónvarpsviðtali sem fréttastofa Stöðvar 2 tók við ráðherrann og sýnt var á sunnu- dagskvöld. „Síminn á skrifstofu Landssambandsins hefur hreinlega logað í allan dag vegna makríl- fréttar Stöðvar 2 í gærkveldi,“ sagði á vef Landssambands smá- bátasjómanna daginn eftir. Á liðnu sumri veiddu trillukarlar alls 4.655 tonn af makríl á grunnslóðinni við landið. Veiðarnar voru stundað- ar allt frá Steingrímsfirði í norðri, vestur um land og austur í Beru- fjörð. Alls stunduðu 98 smábátar þessar veiðar. Þar af voru 37 frá út- vegshöfnum á Vesturlandi. Veiddu margir þeirra langt yfir meðal- tal smábátanna á landsvísu, enda gjöfular makrílslóðir í Faxaflóa og Breiðafirði. „Í sumar var meðalafli á smábát 47 tonn. Kílóverðið var upp undir 100 krónur og að sjálfsögðu greidd veiðigjöld af því. Það var fín af- koma hjá mörgum á þessum veið- um en menn hafa ekki aflað sér neinnar veiðireynslu. Það má segja að makrílveiðar smábátanna hafi ekki byrjað að neinu ráði fyrr en í sumar. Við þurfum að byggja upp öflugri smábátaflota fyrir mak- rílveiðarnar til að við getum veitt þennan fisk á grunnslóðinni upp við land. Þar fara menn ekkert á stóru skipunum með flotvörpurn- ar. Reynslan sýnir hins vegar að þar er oft mjög stór og vænn mak- ríll. Þetta er eftirsótt hráefni fyr- ir landvinnsluna og skapar mörg störf. Við trúum því hreinlega ekki að ráðherra sé alvara að ætla nú að kvótasetja smábátaflotann á makrílveiðunum. Menn eru mjög óhressir ef það á að verða raunin,“ segir Örn Pálsson framkvæmda- stjóri Landssambands smábáta- eigenda í samtali við Skessuhorn. Að hans sögn má vænta þess að fleiri smábátar reyni við makrílinn næsta sumar. „Þessi fiskur er mjög víða við landið og góður hugur í mönnum.“ mþh Gluggað í gögn um sögu skólans í Hollvinastofunni. F.v. Þórir Páll, Ólafur Ragnar og Vilhjálmur. Forseti Íslands sótti heim háskólasamfélagið á Bifröst Forsetinn ræddi um alþjóðamál á málstofu og svaraði síðan spurningum. Gert við veginn að Svörtuloftum Mangi á Búðum SH var einn þeirra smábáta sem stunduðu makrílveið- arnar í sumar sem leið. Kvótasetning á makríl veldur uppnámi hjá trillukörlum

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.