Skessuhorn


Skessuhorn - 13.11.2013, Qupperneq 20

Skessuhorn - 13.11.2013, Qupperneq 20
20 MIÐVIKUDAGUR 13 . NÓVEMBER 2013 Rökkurdagar hafa staðið yfir í Grundarfirði undanfarna viku en hátíðin hófst á miðviku- daginn og lýkur annað kvöld. Þetta er í tí- unda skipti sem hátíðin fer fram en hún var fyrst haldin árið 2003. Að sögn Öldu Hlínar Karlsdóttur, menningar- og markaðsfulltrúa Grundarfjarðarbæjar, hefur hátíðin farið vel fram og viðtökur verið framar vonum. Góð mæting hafi verið á þá fjölmörgu viðburði sem fram hafa farið en að hennar sögn var reynt að bjóða upp á viðburði fyrir alla ald- urshópa. „Fullt hús var á opnun hátíðarinnar þegar veðurfræðingurinn Guðrún Nína Pet- ersen hélt afar fróðlegt erindi sem bar heitið „Ég elska þig stormur“ og fjallaði um veðr- áttu í Grundarfirði. Á þriðja tug þátttakenda mætti síðan í Ostaskólann á fimmtudaginn og unga kynslóðin mætti vel til að hlýða á Frið- rik Dór á kaffihúsakvöldi FSN sama kvöld,“ segir Alda sem segir Friðrik hafa slegið í gegn meðal grundfirskra ungmenna. Meðal annarra viðburða sem fram fóru á hátíðinni var vöfflukaffi í Sögumiðstöð- inni, verðlaunaafhending í ljósmyndasam- keppni Grundarfjarðarbæjar og bókaverð- laun barnanna, franskt þema í Bæringsstofu, leiksýningar og dans svo eitthvað sé nefnt. „Til dæmis má nefna fjörugt harmonikkuball sem fram fór í dvalarheimilinu Fellaskjóli á sunnudaginn þar sem þær Kristín Friðfinns- dóttir og Guðlaug Guðmundsdóttir léku af krafti fyrir dansi og var mikil ánægja með ballið,“ bætir Alda við. Hún vildi að lokum koma á framfæri þökkum til allra þeirra sem hafa lagt leið sína á hátíðina og til allra þeirra sem stóðu fyrir viðburðum á hátíðinni. „Það var sérlega ánægjulegt að finna hvað fólk var til í að koma og vera með á hátíðinni, ekki síst þeir sem þurftu um langan veg að fara. Það er mjög ánægjulegt að vita til þess,“ sagði Alda að lokum. Northern Wave Hátíðarhald er með engu móti lokið í Grundarfirði þrátt fyrir að Rökkurdögum ljúki á morgun því að á föstudaginn hefst al- þjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Wave. Þetta er í sjötta skipti sem hátíðin fer fram en hún stendur yfir fram á sunnudag. Eins og Dögg Mósesdóttir skipuleggjandi hátíðar- innar sagði í viðtali í Skessuhorni 23. október síðastliðinn, þá hefur 91 stuttmynd verið val- in til sýninga á hátíðinni í ár og koma þær frá öllum heimshornum á borð við Austur-Evr- ópu, Ameríku, Mið-Asíu, Miðausturlönd- um og Evrópu. Einnig skipa íslenskar mynd- ir sinn sess á hátíðinni en sýning þeirra fer fram á sunnudeginum. Sýningar fara fram í Samkomuhúsinu og Bæringsstofu. Meðfram sýningum er loks efnt til annarra skemmti- viðburða á borð við vinnusmiðju, fiskiréttar- keppni, tónleika og balls. Dögg sagði í sam- tali við Skessuhorn í gær að þónokkur hóp- ur aðstandenda myndanna sem sýndar verða á hátíðinni sé væntanlegur til Grundarfjarð- ar auk annarra gesta sem mætt hafa ár eftir ár. Því er von á fjölda fólks á hátíðina líkt og fyrri ár. Nánari upplýsingar um hátíðina má nálg- ast á heimasíðu hennar, www.northernwave- festival.com hlh / Ljósm. tfk. Rökkurdagar og Northern Wave í framhaldi Vöfflukaffi var á bókasafninu í Grundarfirði sl. fimmtudag. Meðan gestir gæddu sér á vöfflum voru Bókaverðlaun barnanna afhent. Almennings- og skólabókasöfn landsins veita verðlaunin hvert ár fyrir tvær bækur, aðra frumsamda og hina erlenda. „Ég elska þig stormur“ var heiti fyrirlestrar um veðurfar í Grundarfirði sem Guðrún Nína Petersen veðurfræðingur hélt fyrir fullum sal í Bæringsstofu síðasta miðvikudag. Þetta var fyrsti dagskrárliður Rökkurdaga. Nemendafélag FSN stóð fyrir tónleikum með Friðriki Dór í skól- anum sl. fimmtudag. Ostaskólinn var með osta- og vínsmökkun sl. fimmtudag. Þar var hægt að fræðast um vín og samspil þessara tveggja afurða á bragðlaukana. Þemað var Frakkland og því eingöngu franskir ostar og vín á boðstólum. Ragnheiður Arnardóttir og Alexander Ágústsson hlutu Bókaverð- laun barnanna. Sigurvegarar í ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2013 með verðlaun sín. F.v. Sunna Njálsdóttir, sem tók við verðlaunum fyrir hönd dóttur sinnar Signýjar Gunnarsdóttur sem varð í þriðja sæti, Tómas Freyr Kristjánsson sem varð í fyrsta sæti og Salbjörg Nóadóttir sem varð í öðru sæti. Unga kynslóðin lét sig ekki vanta í Bæringsstofu á föstudaginn þar sem kvikmyndin Goðsagnirnar fimm var sýnd. Kvenfélagið Gleym mér ey stóð fyrir kökukaffi og markaði í Sögu- miðstöðinni á laugardaginn. Hér sést Hildur Sæmundsdóttir ljós- móðir við köku- og söluborðið.Létt stemning var í Sögumiðstöðinni á laugardaginn.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.