Skessuhorn - 29.01.2014, Side 23
23MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 2014
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Englendingurinn Darren Lough
hefur skrifað undir tveggja ára
samning við Knattspyrnufélag ÍA.
Darren er 24 ára örvfættur varn-
armaður sem leikið getur stöðu
vinstri bakvarðar og sem miðvörð-
ur. Hann er uppalinn hjá Newcastle
Utd þar sem hann lék með með
unglingaliðum og varaliði úrvals-
deildarliðsins. Darren kom einnig
við sögu í æfingaleikjum aðalliðs-
ins. Hann hefur leikið undanfar-
in tvö keppnistímabil með KA þar
sem lék 40 leiki í 1. deild.
Gunnlaugur Jónsson þjálfari ÍA
er mjög ánægður með að fá þenn-
an fyrrum leikmann sinn í rað-
ir ÍA, en Darren lék einmitt und-
ir stjórn Gunnlaugs árið 2012 þeg-
ar hann þjálfaði KA. “Ég er gríð-
arlega ánægður að Darren sé búinn
að skrifa undir hjá okkur. Ég hef
mjög góða reynslu af þessum dreng
og hann er mikill atvinnumaður
innan sem utan vallar. Hann kom
seint til liðs við KA fyrir tímabilið
2012 en varð fljótlega lykilmaður í
liðinu og sýndi mikinn stöðugleika
allt tímabilið og var að mínu mati
jafnbesti maður liðs KA þetta tíma-
bilið,“ segir Gunnlaugur á síðu ÍA
sl. föstudag. mm
Karlalið Snæfells í körf-
unni mætti einbeitt til
leiks í Vesturbæinn síð-
astliðið fimmtudagskvöld
þegar liðið sótti topplið KR heim
í Dominos deildinni. Upphafsleik-
hlutinn var jafn og skiptust lið-
in á um að hafa forystu. Heima-
menn voru þó ívið betri og leiddu
í lok leikhlutans 30:26. KR-ingar
bættu við forskotið í upphafi ann-
ars leikhluta og komust mest átta
stigum yfir í leikhlutanum. Hólm-
arar minnkuðu hins vegar muninn
með góðum leik undir lok hans og
var staðan í hálfleik einungis 51:49
fyrir KR. Síðari hálfleikur fór jafnt
af stað og komst Snæfell yfir strax
í upphafi leikhlutans með vítaskot-
um frá Travis Cohn III, 53:55. Lið-
in skiptust síðan á um að vera yfir
á næstu mínútum en þegar lengra
leið byrjuðu heimamenn að ná yf-
irhöndinni á nýjan leik. Staðan að
loknum þriðja leikhluta 76:69 fyr-
ir KR. Snæfellingar reyndu hvað
þeir gátu í lokaleikhlutanum til að
minnka muninn en allt kom fyrir
ekki og lönduðu KR-ingar að end-
ingu sex stiga sigri, 99:93.
Travis Cohn III var stigahæst-
ur í liði Snæfells í leiknum með 26
stig en á eftir honum kom Sigurður
Þorvaldsson með 18 stig. Jón Ólaf-
ur Jónsson kom næstur með 16 stig,
Pálmi Freyr Sigurgeirsson skoraði
11, Sveinn A. Davíðsson 9, Stefán
Karel Torfason 5, Kristján Andrés-
son 4 og loks þeir Finnur A. Magn-
ússon og Þorbergur H. Sæþórsson
2 hvor.
Þrátt fyrir tapið vermir Snæfell
áfram 8. sæti Dominos deildarinn-
ar með 10 stig. Næsti leikur liðsins
verður annað kvöld, fimmtudaginn
30. janúar, á heimavelli í Stykkis-
hólmi gegn Haukum.
hlh
Stjörnuleikshátíð Körfuboltasam-
bands Íslands fór fram í Schenker-
höllinni að Ásvöllum í Hafnarfirði
á laugardaginn. Þá leiða saman
hesta sína bestu leikmenn deild-
arinnar í léttum og skemmtilegum
leikjum. Sem fyrr var dagskráin
fjölbreytt. Auk þess sem stjörnu-
lið etja kappi sýndu einstakling-
ar hvað í þeim býr í þriggja stiga
skotum og troðslu. Óhætt er að
segja að leikmenn Snæfells í Stykk-
ishólmi hafi komið séð og sigrað.
Þeir hreinlega sópuðu til sín verð-
launum.
Troðslukeppnin vakti verðskuld-
aða athygli. Þar fór Snæfellingur-
inn Travis Cohn III með sigur af
hólmi eftir harða baráttu við Þórs-
arann Jarrell Crayton. Þessir tveir
tróðu til úrslita en í forkeppninni
sáust einnig mikil tilþrif.
Í viðureign bestu kvenna í úr-
valsdeild fór Dominos lið und-
ir stjórn Inga Þórs Steinþórs-
sonar þjálfara Snæfells með sig-
ur af hólmi gegn Icelandair lið-
inu, 86:85. Snæfellsmærin Chynna
Unique Brown, sem varð sigur-
vegari í þriggja stiga keppninni,
var einnig valin besti maður leiks-
ins en hún setti 23 stig, tók 7 frá-
köst og átti þrjár stoðsendingar.
Stalla hennar Hildur Björg Kjart-
ansdóttir bætti við 14 stigum og
tók 8 fráköst. Í liði Icelandair var
Borgnesingurinn Sigrún Sjöfn
Ámundadóttir atkvæðamest með
16 stig.
Í stjörnuleik karla fóru leik-
ar þannig að Icelandair-liðið sigr-
aði með 140 gegn 116. Stjörnu-
maðurinn Matthew James Hair-
ston var valinn besti maður leiks-
ins með 23 stig og 8 fráköst. amm
Dregið hefur verið í
undanúrslit Powerade-
bikars karla og kvenna
en leikið verður um og
eftir næstu helgi. Í karla-
flokki spilar Grindavík við Þór Þ og
Tindastóll við ÍR og fara leikirnir
fram á mánudaginn. Í kvennaflokki
spila Snæfellsstúlkur annars veg-
ar við KR klukkan 15:00 á laugar-
daginn. Í hinni viðureigninni eigast
við Keflavíkur- og Haukastúlkur og
fer leikurinn fram klukkan 19:15 á
sunnudaginn. mm
Skallagrímsmenn sigruðu í sín-
um öðrum leik í röð í Dominos
deild karla í körfubolta síðastlið-
ið fimmtudagskvöld þegar lið-
ið lagði Stjörnuna frá Garðabæ á
heimavelli 97:94 í hörkuleik. Borg-
nesingar mættu vel stemmdir til
leiks og leiddu nær allan leikinn.
Grimmd og sigurvilji einkenndi
leikinn og sömuleiðis góð hittni
fyrir utan þriggja stiga línuna. Þar
fóru fremstir í flokki bræðurnir
Páll Axel og Ármann Vilbergssynir
sem saman skoruðu 14 þriggja stiga
körfur í leiknum, samtals 42 stig.
Það munar sannarlega um minna.
Um leið sló Páll Axel Íslandsmet í
þriggja stiga körfum í úrvalsdeild.
Heimamenn í Borgarnesi leiddu
eftir fyrsta leikhluta 24:20 og í hálf-
leik 47:40. Garðbæingar voru hins
vegar staðráðnir í að selja sig dýrt
og fylgdu heimamönnum eftir við
hvert fótmál. Í síðari hálfleik hélt
síðan baráttan áfram. Borgnesing-
ar héldu forystunni og voru yfir
að loknum þriðja leikhluta 73:65.
Stjörnumenn reyndu þó hvað þeir
gátu til að jafna leikinn og munaði
litlu undir lok leiksins að þeir næðu
því markmiði, en minnst fór mun-
ur liðanna í tvö stig 93:91 þegar
tæp mínúta var eftir. Öryggi Skalla-
grímsmanna á vítalínunni á loka-
andartökum leiksins gerði hins
vegar útslagið þar sem Benjam-
in Curtis Smith, Egill Egilsson og
Orri Jónsson skoruðu úr mikilvæg-
um vítaskotum. Kærkominn sigur í
húsi og fögnuðu Borgnesingar, sem
fjölmennt höfðu á leikinn, vel og
innilega í leikslok.
Atkvæðamestur í liði Borgnesinga
var Benjamin Curtis Smith sem átti
enn einn stórleikinn. Smith skor-
aði 29 stig, gaf 14 stoðsendingar og
tók 8 fráköst. Þar af var hann með
14/14 nýtingu af vítalínunni. Næst-
ur kom Páll Axel Vilbergsson með
26 stig sem skráði nafn sitt í sögu-
bækurnar í leiknum. Páll Axel bætti
nefnilega þriggja stiga met Guðjóns
Skúlasonar um sex körfur í leiknum
og hefur enginn maður skorað jafn
margar þriggja stiga körfur á ferlin-
um í Íslandsmótinu, nú samtals 970
körfur. Þá skoraði Ármann Örn
Vilbergsson 25 stig, hans besti leik-
ur á ferlinum, Egill Egilsson 7, Sig-
urður Þórarinsson 4 og Trausti Ei-
ríksson, Davíð Ásgeirsson og Orri
Jónsson allir 2.
Með sigrinum styrktu Borgnes-
ingar stöðu sína í Dominos deild-
inni allverulega. Liðið var eft-
ir leikinn í 9.- 10. sæti með 8 stig
ásamt ÍR og var tveimur stigum á
eftir Snæfelli í 8. sæti. Næsti leikur
Skallagrímsmanna verður á Ísafirði
föstudaginn 31. janúar gegn KFÍ.
Sjá nánar viðtal við Vilbergssyni
á bls. 18. hlh
Víkingar frá Ólafsvík léku
sinn annan leik af þrem-
ur í b-deild fotbolta.net
mótsins sl. föstudags-
kvöld. Þeir mættu þá HK
í Kórnum í Kópavogi og töpuðu
1:2. HK menn skoruðu snemma í
leiknum en Steinar Már Ragnars-
son jafnaði fyrir Víkinga rétt fyr-
ir leikhlé. HK menn skoruðu síð-
an sigurmarkið rétt undir lok leiks-
ins. Víkingar leika síðasta leikinn
í mótinu á Gróttuvelli á Seltjarn-
arnesi nk. laugardag gegn heima-
mönnum. HK menn standa best að
vígi í b-deild mótsins og eru líklegir
sigurvegarar. Þeir mæta Tindastóli
í síðustu umferðinni en Króksarar
hafa tapað báðum sínum leikjum.
þá
Víkingar töpuðu
fyrir HK
Snæfellsstúlkur
mæta KR í bikarnum
Darren Lough til
liðs við Skagamenn
Vilbergssynir skutu Garðbæinga í kaf
Páll Axel Vilbergsson var sjóðheitur í leiknum. Enginn hefur skorað jafn margar
þriggja stiga körfur á Íslandi og hann.
Snæfell tapaði fyrir toppliðinu
Snæfellingar í góðum gír á hátíð þeirra bestu
Þátttakendur Snæfells í Stjörnuleik kvenna. Ljósm. Facebook/Snæfell karfan.
Chynna þriggja stiga meistari kvenna
2014 og Hannes S. Jónsson formaður
KKÍ. Ljósm. karfan.is/nonni
Travis Cohn III úr Snæfelli fór með sigur af hólmi í troðslukeppninni.
Ljósm. karfan.is/nonni