Skessuhorn - 26.03.2014, Page 28
28 MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2014
Vörur og þjónusta
PARKETLIST
PARKETSLÍPUN
OG LÖKKUN
Sigurbjörn Grétarsson
GSM 699 7566
parketlist@simnet.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
Pennagrein
Danshópurinn Sporið mun halda
örnámskeið í gömlu dönsun-
um og þjóðdönsum laugardag-
inn 29. mars nk. í gamla Íþrótta-
húsinu á Hvanneyri. Námskeið-
ið stendur yfir frá kl. 14:00 til
16:00 og möguleiki verður á fram-
haldsnámskeiði ef áhugi er fyr-
ir hendi. Kennari verður Ásrún
Kristjánsdóttir danskennari og fé-
lagi í Sporinu og henni til aðstoð-
ar verða pör úr danshópnum. Til-
gangurinn með þessu framtaki er
að kynna gömlu dansana og ís-
lenska danshefð en Danshópurinn
hefur um langt skeið æft og sýnt ís-
lenska þjóðdansa, jafnt innanlands
sem utan. Í hópnum eru nú rúm-
lega 30 manns, þar af tveir harm-
onikkuleikarar. Er fólk hvatt til að
kynna sér íslenska dansmenningu
með því að sækja námskeiðið. Sjá
nánar auglýsingu hér í blaðinu.
mm/gj
Hugmyndin um lagningu bundins
slitlags milli Vesturlands og Suð-
urlands, frá Borgarfirði um Lund-
arreykjardal og Uxahryggi til Þing-
valla, er ekki ný af nálinni. Hún hef-
ur fundið sér leið inn í samgöngu-
áætlun ríkisstjórna og aftur út. Síð-
ast þegar samgönguáætlun var gerð
fyrir um þremur árum, lagði sam-
göngunefnd Alþingis til að hug-
myndin um bundið slitlag á þess-
ari leið yrði tekin út. Þegar svo Al-
þingi gekk endanlega frá samgön-
guáætlun í framhaldinu var hún aft-
ur komin inn. Hafist skyldi handa
2015 og verki lokið 2022. Búta-
saumur. Reyndar var byrjað með
bútasaumsaðferðinni árið 2004 og
þá lagður 20 km kafli af upphækk-
uðum góðum vegi á Uxahryggjum.
Kostnaðurinn nam 85% af kostn-
aðaráætlun fullbúins vegar með
bundnu slitlagi. En síðan ekki sög-
una meir. Af hverju var ekki far-
ið alla leið og lokið við varanlegt
bundið slitlag? Góð spurning segja
þeir sem tóku þessa ákvörðun. Þessi
fíni vegur hefur síðan þurft að sæta
vanrækslu í viðhaldi. En samt; und-
irstaðan bíður tilbúin fyrir bundið
slitlag.
Þau rök sem færð hafa verið fyrir
nútímalegri vegagerð um Uxa hryggi
hafa í gegnum árin margfaldast að
gildi frá þeim tíma sem Alþingi af-
greiddi síðustu samgöngu áætlun.
Samgöngunefnd hefur nýlega lokið
sinni yfirferð og endurskoðun. Mál-
ið er aftur í höndum Alþingis.
Hver eru helstu rökin fyrir því að
leggja bundið slitlag á þessa 60 km
leið sem tengir saman Vesturland
og Suðurland:
Dreifing umferðar. Sérstaklega •
á álagstímum yfir sumarmán-
uðina; aukið umferðaröryggi.
Tengivegur frá Vesturlandi til •
Þingvalla stuðlar að dreifingu
ferðamanna. Á Suðurlandi eru
margir ferðamannastaðir of-
nýttir en vannýttir á Vestur-
landi.
Opnar aðgengi fyrir smábíla, •
rútur, húsbíla og bíla með
hjól- eða fellihýsi í togi, sem
alla jafnan halda sig helst á
bundnu slitlagi.
Auknir valmöguleikar ferða-•
skipuleggjenda til að setja
saman nýja ferðapakka í
lengri og styttri hringferðir
með viðkomu í báðum lands-
hlutum.
Vegbót á þessari leið kem-•
ur fjölda fyrirtækja í báðum
landshlutum til góða svo og
íbúum.
Lagning bundins slitalags •
á þessari leið er hagkvæm
vegna þess að veglagningin
fylgir að langmestu leyti nú-
verandi vegstæði.
Umhverfismat vegna teng-•
ingar við veginn í þjóðgarði
Þingvalla er fyrirliggjandi.
Ef þessi rök voru gild fyrir 5
árum þá eru þau það núna þegar
ferðamönnum hefur fjölgað um
helming. Úr 500 þúsund í millj-
ón á þessu ári og búist við áfram-
haldandi jákvæðri þróun á næstu
árum.
Gæti létt á umferð
um göngin
Samkvæmt samningi við Spöl ehf.
skal gjaldtöku í Hvalfjarðargöng
hætt árið 2018 og göngin afhent
ríkinu. Forráðamenn Spalar hafa
látið að þvi liggja að huga þurfi að
gerð nýrra ganga og þar með við-
halda gjaldtöku. Mikil andstaða er
við áframhaldandi gjaldtökuhug-
myndir á Vesturlandi. Gjaldið er í
raun íþyngjandi skattur fyrir íbúa
svæðisins auk þess að rýra mögu-
leika ferðaþjónustu sem vaxandi
atvinnugreinar á Vesturlandi. Nú-
verandi samgöngur milli Vestur-
og Suðurlands fara svo til alfarið í
gegnum Hvalfjarðargöngin.
Það blasir við að bundið slitlag
milli Þingvalla og Borgarfjarðar er
valmöguleiki sem myndi koma sér
vel. Sérstaklega á þeim álagstím-
um sem forsvarsmenn Spalar hafa
nefnt til rökstuðnings máli sínu
sem helstu ástæðu tvöföldunar
gaganna. Væri ekki rökrétt í ljósi
aðstæðna að hraða framkvæmd-
um vegna bundins slitlags um Ux-
ahryggi í þeirri samgönguáætun
sem til stendur að ljúka á næstu
mánuðum? Að framkvæmdartími
vegagerðarinnar taki þrjú ár; hefj-
ist 2015 og ljúki 2017. Verkinu
verði lokið áður en ríkið fær Hval-
fjarðargöng til umráða. Þannig
skapast reynsla á hver raunveruleg
þörf er fyrir tvöföldun Hvalfjarð-
arganga eftir að aðgengi til Vest-
urlands hefur verið bætt svo um
munar á hagkvæman hátt. Þannig
má spara vangaveltur sem leiða til
ójafnræðis milli íbúa og fyrirtækja
á Vesturlandi og annara lands-
manna. Boltinn er hjá þingmönn-
um Vestlendinga. Þeir eiga næsta
leik. Þannig er það bara.
Steinar Berg Ísleifsson,
ferðaþjónustubóndi í Fossatúni.
Kvennakórinn Sóldís úr Skagafirði
verður á ferðinni um næstu helgi
þegar hann heldur tónleika í Borg-
arfirði. Tónleikar Sóldísa verða
laugardaginn 29. mars kl. 15 í Reyk-
holtskirkju og klukkan 20 í Tón-
bergi á Akranesi. Kórinn var stofn-
aður á hausdögum 2010 af þremur
konum í Skagafirði og samanstend-
ur nú af 43 konum úr Skagafirði og
Húnavatnssýslu, auk söngstjóra og
undirleikara, en söngstjóri er Sól-
veig S Einarsdóttir og undirleikari
Rögnvaldur Valbergsson. Í tilkynn-
ingu frá kórnum vegna tónleikanna
sunnan heiða segir að hann haldi
sína aðaltónleika á konudeginum
ár hvert, í menningarhúsinu Mið-
garði í Skagafirði, með hnallþóru
veisluborði í lokin. Auk þess held-
ur kórinn tónleika í nærveitum og
fer í söngferð þegar líður að vori
í næstu héruð. Á þessu söngári er
þemað hjá kórnum „íslenskir textar
og íslenskir textahöfundar“. Á síð-
asta söngári var þemað að syngja
lög „eftir konur og um konur“ og
árið þar á undan var þemað, fjöl-
menningarlegt, eða „sungið á sem
flestum tungumálum“. þá
Leiðirnar Uxahryggir og Hvalfjarðargöng til Vesturlands
Sporið hefur talsvert gert af því að sýna á Vesturlandi. Hér er hópurinn á sýningu á Hótel Stykkishólmi fyrir tveimur árum.
Ljósm. Ágúst Eiríksson.
Gömlu dansarnir og íslenskir
þjóðdansar kenndir
Kvennakórinn Sóldís úr Skagafirði.
Sóldísir með tónleika í
Reykholti og Tónbergi