Skessuhorn


Skessuhorn - 09.04.2014, Side 1

Skessuhorn - 09.04.2014, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 15. tbl. 17. árg. 9. apríl 2014 - kr. 600 í lausasölu HEFUR SAFNAÐ FYRIR ÖKUTÆKI FYRIR HVERJU LANGAR ÞIG AÐ SAFNA? Allt um sparnað á arionbanki.is/sparnaður ratiopharm Fæst án lyfseðils 25% afsláttur Hvíldarstólar Tau- eða leðurklæddir Opið virka daga 13-18 Hið formfagra og vel myndaða Kirkjufell er rómað fyrir fegurð sína. Fjallið stendur við Grundar- fjörð og er sannarlega bæjarprýði. Hróður þess berst enda víða og fleiri þúsund myndir hafa birst af því um allan heim á síðum ferða- bæklinga og að sjáflsögðu á ver- aldarvefnum. Þetta veldur því að sífellt fleiri náttúruunnendur og ljósmyndarar leggja leið sína til Grundarfjarðar í þeim tilgangi beinlínis að berja fjallið augum. Á meðal ljósmyndara þykir vinsælt að mynda fjallið með Kirkjufellsfoss í forgrunni og hafa ótal fallegar myndir af þessu sjónarhorni birst. Það er þó einn hængur á. Gras- lendið í kringum fossinn, og þá sérstaklega fjær Kirkjufellinu, ligg- ur nú undir skemmdum. Þar sem áður var gróin brekka er nú nær samfellt moldarsvað. Gríðarlega mikil bílaumferð hef- ur verið eftir reiðveginum upp að fossinum. Því er vegurinn farinn að láta talsvert á sjá. Reiðvegurinn er einungis ætlaður hrossum eins og nafnið gefur til kynna. Oft hafa stórir hópferðabílar fullir af ferða- mönnum farið eftir slóðanum. Hestamenn í Grundarfirði eru sér- staklega ósáttir með ástandið enda hefur nokkrum sinnum verið ófært fyrir þá sökum fjölmargra bíla- leigubíla sem leggja þvers og kruss um veginn. Telja þeir að nú sé svo komið að eitthvað verði hreinlega að gera ef ekki eigi illa að fara. Sigurbjartur Loftsson bygginga- fulltrúi Grundarfjarðarbæjar seg- ir að ástandið við Kirkjufellsfoss sé hrikalegt en unnið sé að úrbótum. Segir hann að til standi að gera bíla- stæði fyrir ferðamenn og góðan og vel merktan göngustíg upp að foss- inum. Einnig stendur til að girða fyrir ofan reiðveginn til varnar bú- fénaði. En ferli þetta er flókið og að mörgu að hyggja svo að vel eigi að takast. Nú þegar hefur Grundar- fjarðarbær látið loka tveimur slóð- um að fossinum og fækkað þann- ig valmöguleikum ferðamanna sem hyggjast aka þangað. tfk Mikill fögnuður braust út í Stykkishólmi sl. sunnudagskvöld þegar Snæfellskonur unnu Hauka í þriðja leiknum í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Þetta er í fyrsta sinn sem kvennalið Snæfells verður Íslandsmeistari, en kvennaboltinn hefur verið að byggjast upp jafnt og þétt í Hólminum síðustu árin. Árangur stúlknanna hefur í raun verið ævintýralega góður í vetur, sjá betur íþróttasíður. Til hamingju Snæfell! Ljósm. Sumarliði Ásgeirsson. Einn vinsælasti staðurinn til ljósmyndunar illa farinn af átroðningi Umhverfið við fossinn er orðið eitt forarsvað. Ljósm. tfk. Peter Hammer ljósmyndari tók í haust þessa mynd af fossinum og Kirkjufellinu og tvöföldum regnboga. Mynd þessi hefur farið eins og eldur um sinu um netheima. Líklega eru góðar myndir sem þessar ein besta landkynning sem hægt er að fá. En þá verður að huga að umhverfinu, því þúsundir annarra ferðamanna vilja líka ná mynd af þessum sama stað.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.