Skessuhorn


Skessuhorn - 09.04.2014, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 09.04.2014, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014 Í ár líkt og undanfarin ár verð- ur boðið upp á fjölbreytta og fjöl- skylduvæna dagskrá í Hvalfjarðar- sveit í aðdraganda páska og hátíðis- dagana sjálfa. Það eru ferðaþjón- ustuaðilar í Hvalfirði og fleiri sem taka sig saman og bjóða upp á við- burði þessum tíma. „Þetta hefur verið gert í nokkur ár og nú hef- ur skapast hefð fyrir að vera með fjölbreytta og fjölskylduvæna dag- skrá í dymbilviku. Sumir viðburð- irnir eru ótrúlega vel sóttir, um og yfir hundrað manns sem eru að mæta. Nú er þetta orðið þann- ig að íbúafjöldi í Hvalfirði tvöfald- ast um páska vegna fjölda sumarbú- staða. Fólk flykkist í þá um frídaga og segja má að þetta sé upptaktur- inn af sumrinu,“ segir Arnheiður Hjörleifsdóttir ferðaþjónustubóndi á Bjarteyjarsandi. Allir geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi Margir fastir liðir eru á dagskrá, líkt og passíusálmaupplestur og fjöru- ferð á Bjarteyjarsandi. „Það hefur líka skapast hefð fyrir páskaeggja- leit á Þórisstöðum og svo er alltaf tónlistarviðburður á dagskrá. Nú er hvorki meira né minna en heil óperuuppfærsla,“ segir Arnheiður. Hún bætir því við að ýmislegt fari í gang fyrir sumarið í þessari viku. „Undanfarin ár hafa fyrstu opn- unardagar ársins í sundlauginni á Hlöðum verið í þessari viku, Fer- stikluskáli opnar eftir vetrardvalann og opnað er fyrir vatnaveiði á Þór- isstöðum. Það er því ýmislegt sem fer í gang fyrir sumarið og má segja að páskarnir marki ákveðin tíma- mót á hverju ári.“ Að þessu sinni verða einnig skemmtilegar nýjung- ar á dagskránni. Í fyrsta sinn verð- ur sýnd á heimaslóðum verðlauna- stuttmyndin Hvalfjörður og frum- sýning óperunnar Skáldið og bisk- upsdóttirin verður í Hallgríms- kirkju í Saurbæ um næstu helgi. Þá er aukin fjölbreytni í gistimögu- leikum og veitingum. „Fjölsóttustu viðburðirnir eru þeir sem ætlaðir eru allri fjölskyldunni enda mikið af fjölskyldum í sumarbústöðum. En um leið og birtir til og hlýnar í lofti þá eykst umferð um fjörðinn. Það er því líka lögð áhersla á betri þjón- ustu við fólk sem er á eigin vegum á rúntinum. Nú verður meira að segja hægt að fá páskalambið, steik- ina sjálfa, í Ferstikluskála. Þetta eru því ekki bara viðburðir heldur góð blanda af háklassískum menn- ingarviðburðum í bland við útivist og góða þjónustu. Allir geta fund- ið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Arn- heiður að lokum. Nánari upplýs- ingar um viðburðina má sjá á aug- lýsingu í blaðinu. grþ Skagamærin Guðrún Valdís Jóns- dóttir á Akranesi fékk á dögunum bréf frá Harvard og Princeton há- skólunum í Bandaríkjunum þar sem henni var boðin skólavist næsta vetur. „Þetta hófst á því að ég sendi tölvupóst á svona tíu til tuttugu skóla í Bandaríkjunum. Mér datt bara í hug að senda í leiðinni póst á nokkra fáránlega flotta drauma- skóla. Ég bjóst aldrei við að enda með þessa tvo,“ segir Guðrún Val- dís í samtali við Skessuhorn, en hún er dóttir hjónanna Jóns Helgasonar og Sigríðar Valdimarsdóttur. Ferl- ið hófst með því að Guðrún Val- dís sendi tölvupóst á knattspyrnu- þjálfarana við skólana en hún hefur spilað sem markmaður fyrir ÍA og einnig leikið með 17 ára og 19 ára landsliðum Íslands í knattspyrnu. „Það fór fljótlega að grisjast úr og á endanum sótti ég bara um í þessum tveimur skólum þar sem þá vant- aði báða markmann í knattspyrnu- liðið,“ segir Guðrún Valdís. Hún þurfti sjálf að leggja inn umsókn og þurfti að uppfylla allar kröfur eins og aðrir umsækjendur. Engu breytti að þjálfarar knattspyrnuliða beggja skóla hafi getað gefið henni meðmæli. „Þetta eru svokallaðir „Ivy League“ skólar, sem er hópur átta gamalla og virtra skóla í Banda- ríkjunum. Ég þurfti að taka fjögur stöðupróf og ná ákveðinni einkunn í þeim prófum til að standast þær kröfur sem skólarnir setja,“ útskýrir Guðrún Valdís. Hún bætir því við að hún hafi keypt gögn og bækur á netinu og lært fyrir þessi próf eins og önnur. Prófin hafi hún tekið í Reykjavík. Ekki bara nördar sem komast inn Guðrúnu Valdísi hefur ætíð geng- ið vel í skóla og segir hún að það hafi án efa hjálpað. „Þetta er sam- bland af góðum námsárangri og fótboltanum,“ segir Guðrún Val- dís en henni gekk vel bæði í grunn- skóla og í fjölbraut. „Ég var bæði í píanónámi og fótbolta þannig að þetta er bara spurning um að skipu- leggja sig og vera samviskusam- ur. Það eru ekki bara milljónamær- ingar og nördar sem komast inn í svona skóla, þetta er alveg mögu- legt fyrir aðra,“ segir Guðrún Val- dís og brosir. Umsóknarferlið inn í skólana tók töluvert lengri tíma en gengur og gerist hérlendis. Guðrún Valdís sótti um inngöngu í skólana í desember 2013 en segja má að um- sóknarferlið sjálft hafi tekið langan tíma. „Ég byrjaði í samskiptum við skólana 2012, á meðan ég var enn nemandi við FVA þannig að þetta ferli tók um 18 mánuði. Umsóknin sjálf var líka flókin, það tekur alveg einn til tvo mánuði að fylla hana út. Síðan þarf að skrifa ritgerðir og fleira sem þarf að skila með um- sókninni.“ Á eftir að velja Guðrún Valdís hefur ekki enn ákveðið hvorn skólann hún mun velja. Mikill heiður er að komast inn í þá báða enda voru einung- is um 5% af 34.295 umsækjendum sem komust inn í Harvard og rétt rúmlega 7% af þeim 26.641 sem fengu skólavist í Princeton. „Ég bjóst aldrei við því að komast inn í báða skólana. Ég fékk fyrst bréf- ið frá Princeton og á meðan ég var að lesa það sá ég að ég hafði fengið tölvupóst frá Harvard. Þetta er án efa erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu.“ Hún segir margt líkt með skólunum en ann- að mjög ólíkt. „Princeton er mun minni skóli og er í vernduðu um- hverfi í New Jersey á meðan Har- vard er stór og fjölmennur skóli, staðsettur í miðri Boston,“ segir Guðrún Valdís sem hefur heimsótt báða skólana, dvalið á heimavistun- um og farið í kennslustundir. Guð- rún Valdís fær ekki íþróttastyrk til að stunda nám við skólana eins og þekkist í mörgum bandarískum há- skólum. „Þessir „Ivy League“ skól- ar veita ekki íþróttastyrki. Þeir veita fjárhagsstyrk sem er mishár eft- ir hvernig fjárhagur fjölskyldunn- ar er. Fjölskyldan mín þurfti því að fara í gegnum eins konar greiðslu- mat og á eftir að koma í ljós hve mikið þetta mun kosta,“ segir hún. Hún mun þó spila og æfa með fót- boltaliði skólans. „Skólarnir eru akademískt séð mjög svipaðir, líka fótboltalega séð. Það veltur því að- allega á því hvað kemur út úr þessu með styrkina hvorn skólann ég vel, því námið er mjög dýrt. Ég vel lík- lega skólann sem kemur til með að kosta minna. Ég fæ svör fljótlega og hef svo út mánuðinn til að ákveða mig.” Búin að melta þetta lengi Guðrún Valdís mun því hefja fjög- urra ára nám í sameindalíffræði við annan hvorn skólann í haust og spila knattspyrnu samhliða. Hún æfir enn með ÍA en má ekki keppa með liðinu út af reglum skólanna ytra. „Ég verð því uppi í stúku í sumar. Svo fer ég út um miðjan ágúst. Ég skráði mig í sameinda- líffræðina en ég er að klára fyrsta árið í því fagi við Háskóla Íslands núna. Ég fæ samt ekkert af því met- ið, heldur verður það bara góð- ur grunnur. Grunnnámið tekur fjögur ár og svo veit ég ekki alveg hvað ég geri, það kemur bara í ljós. Þetta er frekar almennt fyrstu tvö árin þarna úti, svo útskrifast mað- ur með eitt aðalfag og eitt auka- fag,“ útskýrir Guðrún Valdís. Hún segir það skrýtna tilhugsun að vera á leið í burtu í svona langan tíma. „En ég er búin að melta þetta lengi. Ég kem alveg heim í fríum þann- ig að þetta verður ekkert svo langur tími í einu. Ég hlakka bara til. Bið- in hefur verið löng en nú er ég bara orðin spennt.“ grþ Opnað hefur verið fyrir vatnaveiði á Þórisstöðum. Fjölbreytt páskadagskrá í Hvalfirði Boðið upp á ævintýralega fjöruferð á Bjarteyjarsandi fyrir alla fjölskylduna þar sem skimað verður meðal annars eftir kræklingum í soðið og veitt fræðsla um lífríki fjörunnar. Margt spennandi er á dagskrá fyrir börnin í Hvalfjarðarsveitinni yfir páskana. Komst inn í tvo af virtustu skólum heims Guðrún Valdís alsæl með bréfin frá báðum skólunum. Guðrún Valdís ásamt Höllu Margréti systur sinni á Harvard Stadium. Við Nassau Hall í Princeton.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.