Skessuhorn - 09.04.2014, Side 5
5MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014
Tilboð óskast í fasteignina
Vesturgötu 51 Akranesi (Vindhæli)
Húsið þarfnast verulegra endurbóta m.a. endurbyggingar
kjallara. Áhugasömum er bent á að skoða eignina
rækilega. Nánari upplýsingar gefur umsjónarmaður
fasteigna í síma 433-1000 eða á netfangið
kristjan.gunnarsson@akranes.is
Tilboðum þarf að skila í þjónustuver Akraneskaupstaðar,
Stillholti 16-18, 1. hæð eða á netfangið
akranes@akranes.is fyrir 30. apríl 2014.
Um nokkra hríð hafa landeigend-
ur við Norðurá í Borgarfirði rætt
um að bæta þurfi gistiaðstöðuna á
Rjúpnaási, sem þjónar veiðimönn-
um á fengsælustu veiðisvæðum
árinnar. Þar eru nú þrjú hús
sem hvert um sig hafa gegnt
hlutverkum sínum vel og sum
hver alllengi. Aðalhúsið er
með nokkrum herbergjum sem
einkum hafa verið notuð fyrir
leiðsögumenn. Síðan er sér-
stök svefnálma, sem í daglegu
tali hefur verið nefnd Brekku-
bær, og að lokum smáhýsi þar
sem kokkur veiðihússins hefur
átt afdrep. Á félagsfundi í veiði-
félaginu laugardaginn 29. mars sl.
var samþykkt að rífa tvo elstu hluta
núverandi aðalhúss og byggja þar í
staðinn nýja gistiálmu. Herbergin
munu öll hafa útsýni að ánni, sem
er mikilvægt í augum veiðimanna.
Verður þá öll gisting við aðalhluta
árinnar komin undir eitt þak.
„Núverandi gistiaðstaða við
Norðurá er komin til ára sinna.
Húsið hefur gegnt hlutverki sínu
vel en nú er krafa veiðimanna önn-
ur. Meðal annars er gerð krafa um
meira rými og þægindi en var í eina
tíð. Við því eru veiðiréttareigendur
að bregðast,“ segir Birna G Kon-
ráðsdóttir formaður veiðifélagsins
í samtali við Skessuhorn. Aðspurð
um framkvæmdina segir hún að
stefnt sé að því að stækkun hússins
verði lokið fyrir veiðisumarið 2017.
Samkvæmt frumhönnun er gert ráð
fyrir 14 herbergjum sem hvert um
sig verður ríflega 20 fermetrar á
tveimur hæðum. „Þá var þetta
tímamótafundur í félaginu að
öðru leyti,“ segir Birna. „Við
höldum að þetta sé í fyrsta
skipti síðan lögum um lax- og
silungsveiði var breytt árið
2006, að greidd voru atkvæði á
félagsfundi í hlutfalli við eign-
arhlut í ánni. Ánni er skipt í
þúsund einingar. Atkvæða-
greiðsla um framkvæmdir við
veiðihúsið fór þannig að 812,1
eining samþykkti að fara í þess-
ar framkvæmdir, fulltrúar 52,5 ein-
inga sögðu nei og fjarstaddar auk
afréttarins sem ekki hefur atkvæð-
isrétt voru 83,7 einingar. Það er því
nokkuð breið samstaða um að ráð-
ast í þessa framkvæmd,“ segir Birna
formaður Veiðifélags Norðurár.
mm
Á aðalfundi Mæðrastyrksnefndar
Vesturlands 13. mars síðastliðinn
var María Ólafsdóttir kjörin for-
maður í stað Anítu Gunnarsdótt-
ur Skjóldal. Aníta hefur ákveðið
að draga sig í hlé eftir að hafa set-
ið í stjórn félagsins í tólf ár og þar
af verið formaður í tíu. María sem
tekur nú við formannsstarfinu hef-
ur setið í stjórninni í tvö ár. Ásamt
henni sitja í stjórn Svanborg Ey-
þórsdóttir, Kolbrún Halldórsdótt-
ir, Kolbrún Önnudóttir og Hulda
Ólöf Einarsdóttir.
María segir í samtali við Skessu-
horn að á döfinni sé að halda fund
til að fara yfir stöðu mála og skoða
hvað nefndin getur gert á næstu
misserum. „Það verður ekki páska-
úthlutun þetta árið því engir pen-
ingar eru til. Það er alltaf hark að
ná inn styrkjum en gekk ágætlega
fyrir síðustu jól. Fólki sem þarf að-
stoð fer fjölgandi, á síðustu jólum
var aukning um 34 fjölskyldur frá
jólunum á undan. Áður hefur allt-
af verið afgangur til páska en því er
ekki til að dreifa núna. Við erum
enn án húsnæðis og á meðan það
er þá er stefnan að vera með gjafa-
kort líkt og fyrir síðustu jól ef fjár-
magn fæst,“ útskýrir María. Hún
bætir því við að þörfin fyrir styrki
hafi aldrei verið meiri og gott hefði
verið að ná stöðugra fjármagni, til
dæmis í formi fastra styrkja. „Við
viljum endilega hvetja fólk og fyr-
irtæki til að styrkja starf okkar. Það
hefur aldrei verið eins mikil þörf
fyrir aðstoð og nú enda erum við að
aðstoða fólk um allan landshlutann
og fjölskyldurnar hafa aldrei ver-
ið fleiri,“ segir María Ólafsdóttir,
nýkjörinn formaður Mæðrastyrks-
nefndar Vesturlands.
Styrktarreikningur Mæðrastyrks-
nefndar er 0186-05-65465. Kt.
411276-0829. grþ
Verktakafyrirtækið Ístak hefur í
vetur unnið að gerð fimmta áfanga
vinnugarðs á Tangabakka fyr-
ir Faxaflóahafnir á Grundartanga.
Garðurinn er vestan við núver-
andi hafnarsvæði á Grundartanga
og er til undirbúnings stálþilsfram-
kvæmda síðar á þessu ári. „Vinnu-
garðurinn er samsettur af tengi-
garði og vinnugarði, sem gerðir eru
úr sprengdum kjarna og varinn með
grjótvörn. Efni í garðinn hefur ver-
ið sprengt í grjótnámu og efnið síð-
an flutt í garðstæðið. Helstu magn-
tölur eru 80.000 m3 af sprengdu
efni og hafa 68.000 m3 farið í garð-
inn. Einnig hefur verið unnið við
mölun á efni fyrir verkkaupann
samtals um 25.000 m3. Verklok Ís-
taks eru áætluð í lok apríl,“ segir í
tilkynningu frá fyrirtækinu.
mm
Stækkun varnargarðs á Grundartanga
Stjórn Mæðrastyrksnefndar færði Anítu Gunnarsdóttur Skjóldal, fráfarandi formanni, gjöf fyrir vel unnin störf. F.v: Svanborg
Eyþórsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir, Hulda Ólöf Einarsdóttir, María Ólafsdóttir, Aníta Gunnarsdóttir Skjóldal og Kolbrún
Önnudóttir.
Formannsskipti hjá Mæðrastyrksnefnd
Breytingar gerðar á veiðihúsinu
við Norðurá
ÚTBOÐ
Orkuveita Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í verkið:
Hitaveitugeymir II við Akranes
Reisa skal rúmlega 6.200 m3 hitaveitugeymi við Akranes.
Geymirinn verður reistur vestan við núverandi hita-
veitudælustöð og geymi rétt austan við byggðina á Akranesi.
Verkið felst í jarðvinnu við geyminn, gerð steyptra undirstaðna og
tengihúss, smíði, reisingu og klæðningu stálgeymis. Pípulögn milli
nýja geymisins og dælustöðvar og núverandi geymis. Pípulögn í
tengihúsi undir geymi og tengingum við dælustöð,
aðveituæð og núverandi geymi.
Í verkinu er innifalin öll jarðvinna, steypuvinna, stálsmíði,
öll pípulögn og tengingar, einangrun og klæðning.
Verktaki skal skila verkinu til verkkaupa sem hér segir:
Þann 15. september 2014 skal lokið allri stálvinnu
við geyminn, pípulögn í tengihúsi og tengingum við
stofnlagnir og skal geymirinn tilbúinn til notkunar.
Þann 30. október 2014 skal verkinu að fullu lokið, nema
sáningu, þ.m.t. klæðningu og frágangi geymis að utan.
Þann 15. maí 2015 skal sáningu, og þar með
heildarverkinu, vera að fullu lokið.
Verkið er nánar skilgreint í útboðsgögnum ORV-2014-03
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með
miðvikudeginum 9. apríl 2014 á vefsíðu Orkuveitunnar
https://www.or.is/um-or/utbod
Tilboð verða opnuð hjá Orkuveitu Reykjavíkur Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík, miðvikudaginn 30. apríl 2014 kl. 11:00.
Verk þetta er háð því að breyting á aðal- og deiliskipulagi,
þar sem geymirinn á að rísa, verði samþykkt. Tillögur um
breytingu á aðal- og deiliskipulagi eru nú í auglýsingaferli og er
gert ráð fyrir því að skipulagið verði afgreitt fyrir lok maí 2014.
Verkkaupi áskilur sér rétt til að hætta við verkið
eða breyta verktíma ef skipulagsbreytingar hafa
ekki verið afgreiddar 31. maí 2014.
ORV-2014-03
09.04.2014 SK
E
S
S
U
H
O
R
N
2
0
1
4