Skessuhorn


Skessuhorn - 09.04.2014, Qupperneq 30

Skessuhorn - 09.04.2014, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2014 Hvernig kemurðu undan vetri? Spurning vikunnar Sigurborg Kr. Hannesdóttir: Bara nokkuð vel og hlakka til sumarsins. Þór Reynisson: Kaldur og vonast eftir hlýju og góðu sumri þannig að manni hlýni um hjartaræturnar. Ómar Ellertsson: Mjög vel, við erum líka svo léttir í lund strákarnir í vinnunni, hjá Póstinum. Unnur Ásta Hilmarsdóttir: Ég er allavega á lífi og vel það. Alexandra Rut Jónsdóttir: Það hefur gengið vel í skólan- um í vetur og ég vona að sum- arið verði gott. (Spurt í Búðardal) Fólk á öllum aldri í Borgarnesi nýtti tækifærið í hádeginu á laugardaginn til fá eiginhandaáritun hjá íslenska karlalandsliðinu í handbolta á Olís stöðinni í Borgarnesi. Þá var lands- liðið á leið til Ólafsvíkur til að leika gegn Austurríkismönnum en það hafði stoppað á Olís stöðinni til að snæða hádegisverð. Leikmennirnir gáfu sér góðan tíma í verkið og gætti fyrir vikið almennrar ánægju meðal áhangenda, en margir voru að hitta landsliðsmenn í fyrsta skipti. Einnig fengu sumir að láta taka mynd af sér með einstökum leikmönnum lands- liðsins. hlh Gríðarleg eftirvænting var í Ólafs- vík fyrir landsleik Íslands og Aust- urríkis sem fram fór í íþróttahúsinu á laugardaginn. HSÍ var með æfing- ar um morguninn fyrir rúmlega 100 börn sem kynntust göldrum hand- boltans. Sumir áhorfendur sem mættu á sjálfan landsleikinn sögðu að sannkölluð þjóðhátíð hefði ríkt í Ólafsvík, þvílík væri stemningin. Þótt handbolti sé ekki stundaður í Snæfellsbæ að staðaldri mættu yfir 600 til þess að sjá leikinn. Þetta er ekki fyrsti landsleikurinn sem spil- aður er í húsinu. Sá fyrsti var 1. nóvember árið 2003 þegar íslenska landsliðið mætti því pólska. Sigrún Ólafsdóttir, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Snæfellsbæjar, sagði í samtali við Skessuhorn að það hefði verið gaman að fá þessi landslið til Ólafsvíkur og hefðu margir sjálfboðaliðar unnið gott starf. „Allur aðgangseyrir rann í barna- og unglingastarf Snæfells- bæjar. Björn Haraldur Hilmarsson og Pétur Steinar Jóhannsson hafa verið aðal menn í að koma þessu verkefni á koppinn og að fá lands- liðin hingað til Ólafsvíkur. Sáu þeir um að safna styrkjum þannig að allur aðgangseyrir gæti runnið í íþróttastarfið,“ sagði Sigrún. Fyrir leikinn afhenti Guðmund- ur B Ólafsson formaður HSÍ Pétri Steinari innrammaða treyju sem Guðjón Valur keppi í á Evrópu- mótinu. Treyjan er árituð af öllum landsliðsmönnum og verður hún hengd upp í íþróttahúsinu. af Margir fengu eiginhandaráritun Landsliðsmennirnir höfðu nóg að gera á Olís.Ungur Borgnesingur ásamt Ólafi Guðmundssyni handboltamanni. Mikil stemning í Ólafsvík vegna landsleiks Íslands og Austurríkis Krakkar á handboltaæfingu á laugardagsmorguninn í íþróttahúsinu í Ólafsvík. Þrátt fyrir góða takta tapaði Ísland fyrir Austurríki í leiknum í Ólafsvík. Vel var tekið á móti ungum aðdáendum. Hér tekur Pétur Steinar Jóhannsson á móti treyjunni góðu. Sverre Jakobsson áritar hér plaköt. Um 600 manns sáu leikinn í íþróttahúsinu.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.