Skessuhorn - 16.07.2014, Side 5
5MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014
Afgreiðslutími
þriðjud. til föstud. 12.30 – 18.00
Veiðivörur í miklu úrvali
Stekkjarholti 8-10 • Akranesi • 431 4318 • 894 2298
www.veidibudin.is • veidibudin@veidibudin.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
4
Umsjón: Gunnar Bender og Magnús Magnússon
Flugustangir
Fluguhjól
Línur
Taumefni
Flugur
Veiðivörur í úrvali
Guð láti gott á vita og fullt af fiski
Vestlendingar hafa ekki farið var-
hluta af hinu milda og hlýja veðri
sem ríkt hefur á landinu í sumar.
Því fylgir að spretta á öllum gróðri
hefur verið með eindæmum góð.
Landshlutanum hefur hins vegar
ekki verið úthlutað mörgum sól-
ardögum. Bændur hafa vaxandi
áhyggjur af vætutíðinni og segja
heyfeng verða mikinn að vöxtum
en með mjög litlu næringargildi.
Margir sem slógu í júní náðu þó af-
bragðs töðu. Tún eru nú víða gríð-
arlega blaut þannig að meira en
eins eða tveggja daga þurrk þarf til
að hægt sé að fara um þau með vél-
ar.
Bjarni Guðmundsson bóndi á
Skálpastöðum í Lundarreykjadal
segir sprettuna alveg gríðarlega
mikla en næringargildinu hraki
stöðugt og horfur á þurrki séu litl-
ar ef marka má veðurspár. „Ég tel
að bændur í kringum mig séu flest-
ir byrjaðir að slá og margir langt
komnir. Ég rúllaði stykki sem er
svona 1,5 ha og fékk af því 37 rúll-
ur. Það er allt of mikið, 15-20 hefði
verið fínt. Það síðasta sem ég náði
af heyjum hafði lélegt fóðurgildi og
almennt hefði ég þurft að vera bú-
inn að slá fyrir svona 2-3 vikum síð-
an. Ástandið er í raun mikið verra
en í fyrra. Þá var nefnilega vor-
ið kalt svo það spratt hægar.“ Að-
spurður um háarslátt segir Bjarni
að vöxtur á henni fari alltaf seinna
af stað þegar grasið er fullsprottið
þegar fyrsti sláttur er sleginn svo
tíminn verði að leiða í ljós hvern-
ig það fari. Hins vegar liggi fyr-
ir að fóðurbætissalar munu kætast.
„Annars kemur þetta í ljós þegar
ég læt rannsaka heysýnin. Svo voru
hundadagar að byrja og ef hefur
rignt á hundadeginum, þýðir það
þá ekki rigningu næstu 5-6 vikur,“
spyr Bjarni.
Á Stakkhamri í Eyja- og Mikla-
holtshreppi búa Laufey Bjarnadótt-
ir og Þröstur Aðalbjarnarson. Þau
náðu gríðarlega góðum heyjum í
byrjun júní, kjarnfóðursígildi. Úr-
vals kúafóður eins og Laufey kemst
að orði. Síðan hefur hins vegar ver-
ið erfitt um heyskap. Það sem ekki
náðist í júní er orðið mikið sprott-
ið og úr sér sprottið og umferð um
tún er erfið sérstaklega á nýræktum
og gamalræktuðum túnum með lé-
legum skurðum. Háin er þó öll eft-
ir. „Við erum líklega búin að ná
um 40% af heyforða fyrir kýrnar.
Svo eigum við eftir grænfóður og
svona helminginn af heyfeng fyrir
aðrar skepnur. Við viljum reyna að
þurrka það sem eftir er svo það sé
einhver lystileiki í því fyrir skepn-
urnar. Þannig að hver glýja er not-
uð til að taka blett og blett en hver
hektari ber gríðarlegt magn af heyj-
um,“ segir Laufey.
Haraldur Benediktsson býr á
Vestri Reyn við Akrafjall. Hann
segir sprettuna feiknarlega mikla
en uppskeruna lakari að gæðum.
Tún séu með eindæmum blaut og
minni á árin 1983-84 þegar vatn
stóð eftir í hjólförum þegar ver-
ið var við slátt. Haraldur telur að
þroskinn sé svona 7-10 dögum fyrr
en í góðu ári. „Hér er búið að slá
allt hey fyrir kýr og við stólum ekki
mikið á háarslátt. En ég hef aldrei
séð svona mikla uppskeru af tún-
um eins og núna en að sama skapi
kraftlítið hey. Hér eru m.a. göm-
ul mýratún. Og eins og ástandið er
núna er orðinn vandi að koma kún-
um inn á stykkin vegna bleytu og
jafnvel orðið að færa þær til vegna
þess. Það er eins og komið sé harða
haust með endalausar moldarsúp-
ur.“
Í Vífilsdal í Dölum býr Hörð-
ur Hjartarson. Hann segir að þau
ófriðuðu tún sem ekki var borið
snemma á, hefðu fram undir þetta
verið í þokkalegu lagi. Hörður er
búinn að ná heyi af um sjö hekt-
urum af þeim 50 sem hann slær.
„Þetta var vallarfoxgras sem hafði
verið beitt í vor. Ég sló það í þurru
og fékk tvo sólarhringa sem var al-
veg nóg. Í raun sló ég bara þarna til
að byrja. En síðan hefur ekki ver-
ið þurrkur. Ég vil helst ná heyjum
þurrum ef möguleiki er. Ég er með
gjafagrindur og það er leiðinlegt
að eiga við þetta blautt.“ Hörð-
ur segir ástandið hjá sér hafa verið
þolanlegt fram að þessu en nú fari
að síga á ógæfuhliðina og ástand-
ið fari að verða slæmt. „En ef gef-
ur nokkra daga verður maður ekki
lengi að taka þetta. Þá er hins veg-
ar orðin spurning um undirlagið.
Það þarf ábyggilega uppundir viku
sumsstaðar til að síga úr jarðveg-
inum.“
bgk
Um nær allt land bíða menn eftir
smálaxagöngum sem verulega hef-
ur skort á í sumar. Ýmsar kenningar
hafa heyrst um ástæðurnar eins og
kalt vor í fyrra eða makríllinn. Hver
sem ástæðan er þá var stór straum-
ur um helgina og bíða margir veiði-
menn með öndina í hálsinum yfir
því hverju hann skilar. Laxagöngur
hafa sést í sjónum úti fyrir árósum
sem virðast ekki skila sér inn í árn-
ar. Kenna menn gríðarlegu vatns-
magni um. Allflestar laxveiðiár eru
með afla langt undir væntingum, en
vonin er enn til staðar.
Héðan og þaðan
Fyrsti laxinn er kominn á land á
Vatnasvæði Lýsu á Snæfellsnesi og
virðist vel haldinn. Á svæðinu er
töluvert um fisk en minna af veiði-
mönnum.
Í Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum
er búið að landa fyrstu löxunum.
Ekki fara margar sögur af fjölda
þeirra en vatnið í ánum er mikið.
Veiðin hefur farið rólega af stað
í Laxá í Dölum. Búðardalsá hefur
gefið níu laxa og í Hörðudalsá hafa
veiðst fjórir laxar og fimm bleikj-
ur. Stærsti laxinn var 12 pund. Þyk-
ir það ágæt byrjun. Þá hefur eitt-
hvað veiðst í Miðá en við höfum
ekki fjölda.
,,Við fengum fjóra laxa og það
var lítið af fiski,“ sagði Ævar Rafns-
son sem var að koma úr Flókadalsá
í Borgarfirði. Veiðin í Flóku hefur
farið rólega af stað líkt og víðar, en
áin hefur nú gefið um 80 laxa.
Laxá í Leirársveit hefur gefið 50
laxa og veiðimenn voru að berja al-
veg niður við sjó í fyrradag á flóð-
inu.
„Við erum að veiða í Álftá á Mýr-
um og eru búnir að veiða einn lít-
inn lax og nokkra sjóbirtinga, það
er ekki mikið af fiski,“ sagði Snorri
Tómasson við Álftá á Mýrum um
helgina.
„Við sáum stórar göngur fyr-
ir utan Langá á Mýrum um dag-
inn,“ sagði Hörður B. Hafsteinsson
stjórnarmaður í SVFR sem var á
veiðislóðum við Langá um helgina.
Veiðimenn voru að berja Langá en
fiskurinn gaf sig lítið. Einn og einn
lax stökk. Krafturinn var ekki mik-
ill.
Nýi staðurinn heitir
Hlaupastrengur
Líkt og í öðrum ám í Borgarfirði
hefur veiðin í Gufuá farið rólega
af stað og er minni en í fyrra þótt
vatnið sé margfalt meira. Þann 11.
júlí voru skráðir til bókar 23 lax-
ar. Á sama tíma í fyrra voru komn-
ir 53 laxar á land. Gufuá er tveggja
stanga á og hefur því veiðst ríflega
einn fiskur á dag að sögn þeirra
félaga Gylfa Jóns Gylfasonar og
Guðlaugs Fjeldsted. Þeir segja
mikilvægt að halda einbeitingunni í
veiðinni. Þegar lítið fiskist sé mik-
ilvægt að reyna sem víðast og missa
ekki trúna á að fisk sé að finna. Það
gildir reyndar um allar ár. Nú er
mikilvægt að reyna sem víðast og
veiða á stöðum sem sjaldan er far-
ið á, þá getur ýmislegt skemmti-
legt skeð. Til dæmis lenti Róbert
Orri Skúlason í ævintýralegri upp-
Gríðarleg spretta en næringargildi hrakar í fóðrinu
Spretta á öllum gróðri hefur verið með
eindæmum mikil í sumar. Ekki bara
á grasi, heldur t.d. líka á rabarbara.
Hér er myndarlegur rabararbari hjá
Þórunni Jónu Kristjánsdóttur í Túni í
Borgarhrepp.
ákomu í ómerktum streng fyrir ofan
hundrað metra fossaflúðir í síðustu
viku. Fiskurinn tók og datt ekkert
betra í hug en að stinga sér niður úr
strengnum og æða niður flúðirnar.
Baráttunni lauk 400 metrum neðar
þar sem fiskinum var landað af laf-
móðum veiðimanni. Gylfi Jón tók
fisk þarna deginum áður sem gerði
nákvæmlega það sama. Strengur-
inn heitir því upp frá þessu Hlaupa-
strengur.
Fallegar bleikjur úr Hörðudalsá þar
sem veiðin byrjar ágætlega.
Fallegur lax borinn ofurliði úr Gufuá.
Úlfar Reynisson með einn af fyrstu löxunum úr Staðarhólsá í Dölum, hér við
Brúarhylinn.
Jón Þ. Ingimundarson með fallega laxa
á Mýrunum í fyrradag.