Skessuhorn - 16.07.2014, Síða 13
13MIÐVIKUDAGUR 16. JÚLÍ 2014
aði á því en sagði svo að þetta þyldi
heilan hval. Síðan þagði hann að-
eins en sagði svo: „Það veitir svo
sem ekkert af, þær geta verið as-
skoti þungar þessar kerlingar.“
Hann fylgdist líka vel með okkur
strákunum sem unnum á þessum
100 manna vinnustað hans og oft-
ar en ekki fengu ungir menn meira
í launaumslagið þegar hann frétti
að menn væru farnir að búa eða að
eignast barn. Hann var algjör öðl-
ingur hann Þorgeir.“
Smíðaði gítar úr
bensínbrúsa
Guðjón segist ekki geta nefnt neina
eina myndavél í safninu sínu og
ekki hafi verið falast eftir neinni.
„Þó er hérna ein vél í safninu,
svolítið sérstök því það voru bara
fluttar hingað til lands tvær vél-
ar þessarar tegundar. Þetta er Ca-
non R-2000 og það var einn sem
vildi kaupa hana af mér en hún er
ekki til sölu. Svo er hérna gömul
Leica vél sem er eðalgripur,“ segir
Guðjón sem nokkrum sinnum hef-
ur sýnt hluta myndavélasafns síns
opinberlega. „Já, ég hef sýnt þetta
uppi í bókasafni og svo líka á ljós-
myndasýningum hjá Ljósmynda-
klúbbnum Vitanum.“
Gítarinn hefur alltaf verið Guð-
jóni hugleikinn og hann gutlar
svolítið á gítar. Hann dregur upp
undarlegan gítar. „Sjáðu þenn-
an. Hann er smíðaður úr grænum
bensínbrúsa eins og voru á her-
jeppunum. Bensínið fylgir bíla-
dellunni svo þetta fer saman.“
Guðjón verður hneykslaður á svip
þegar hann er spurður hvort gít-
arinn virki. „Auðvitað virkar hann.
Þessi fíni hljómur í honum,“ segir
hann og slær á strengina. „Svo er
ég með gítara hér í næsta herbergi
og líka uppi í sumarbústað,“ seg-
ir hann og við endum ferðina í bíl-
skúrnum þar sem Mustanginn bíð-
ur þess að verða viðraður og Guð-
jón bendir á að uppi á bílskúrsloft-
inu séu líka ýmsir safnmunir sem
ekki hafi verið hreyfðir lengi. Það
er því af nægu að taka hjá þess-
um ástríðusafnara og heimsókn til
Guðjóns Guðmundssonar í stutta
stund veitir aðeins smjörþefinn af
öllu því merkilega sem hjá honum
er að finna.
hb
Með bensínbrúsagítarinn.
Gamalt útvarp og myndavélar af öllum stærðum og gerðum.
Guðjón við tæplega fimmtugan Mustanginn í skúrnum.
Sumarlesari
vikunnar
Nú eru 140 börn búin að skrá
sig í Sumarlesturinn á Bókasafni
Akraness. Hann Bjarni Snær er
lesari vikunnar.
Nafn: Bjarni Snær Skarphéðins-
son
Aldur: 8 ára
Hvenær lestu? Á daginn og á
kvöldin
Áttu uppáhalds bók? Já, Bóbó
bangsa
Áttu einhvern uppáhalds höf-
und? Nei
Hvaða bók lastu síðast? Bóbó
bangsi við ströndina
Viltu mæla með einhverri bók
fyrir aðra krakka að lesa? Nei
Í hvaða skóla ertu? Grunda-
skóla
Áttu einhver önnur áhuga-
mál? Sund, vera í tölvunni og
horfa á sjónvarpið.
Sýnir skírnarkjóla á Hellissandi
Hannyrðaverslunin Rifssaumur á
Hellissandi opnaði sýningu á prjón-
uðum og hekluðum skírnarkjólum
fimmtudaginn 8. júlí. Óskað var eft-
ir þátttöku viðskiptavina þar sem
óskað var eftir að fá sem flesta kjóla
og mögulega sögu þeirra með. „Við
erum komin með nokkra prjón-
aða kjóla og aðra handsaumaða líka.
Þeir eru flestir héðan af svæðinu en
þó ekki allir. Það er alltaf að bæt-
ast við, konurnar koma og skoða og
finnst gaman að sjá kjólana hjá öðr-
um. Þær sjá kannski sömu uppskrift
og þær hafa gert sjálfar en útfærða á
annan hátt,“ segir Katrín Gísladóttir
hjá Rifssaumi.
Kjólarnir á sýningunni eru flest-
ir nýlegir en von er á gömlum kjól-
um, sem saumaðir voru í húsmæðra-
skólanum í gamla daga. Katrín segir
margar konur á svæðinu hafa prjón-
að skírnarkjól. „Það var eitthvað
æði hérna fyrir nokkrum árum og
margar sem prjónuðu skírnarkjól.
Þá kviknaði sú hugmynd að það
væri gaman að halda sýningu á öll-
um kjólunum. Nú höfum við sem
sagt látið verða af því.“ Rifssaumur
er til húsa að Hafnargötu 14 á Hell-
issandi og hefur verið þar í rúm tvö
ár. Vöruúrvalið hefur farið vaxandi
og haldin eru hannyrðanámskeið
í versluninni reglulega en þetta er
í fyrsta sinn sem haldin er sýning í
versluninni. Kjólarnir verða til sýnis
í Rifssaumi út júlímánuð.
grþ
Tónlistarmarkaður Bjössa Lú
Björn Lúðvíksson áhugaljós-
myndari með meiru á Akranesi,
eða Bjössi Lú eins og hann er jafn-
an kallaður, hefur um nokkra hríð
haldið úti síðu á Facebook sem
kallast Tónlist á Akranesi. Þar
hefur hann safnað saman upplýs-
ingum um tónlist Skagamanna og
þar hefur líka verið hægt að koma
að upplýsingum um nýjar plötur
og tónleika.
Laugardaginn 26. júlí ætl-
ar Bjössi að standa fyrir tónlist-
armarkaði og bjóða upp á sem
mest af þeirri tónlist sem Skaga-
menn hafa gefið út á diskum eða
vinylplötum. Tónlistamarkaður-
inn verður í tengslum við Mat-
ar- og antikmarkaðinn á Akra-
torgi. Bjössi segir marga Skaga-
menn hafa gefið út tónlist en hún
hafi oft ekki verið mjög aðgengi-
leg og því hafi óselt efni endað
niður í kössum í geymslum. Hann
segir að nú sé ljóst að þarna verði
hægt að fá plötur eða diska með
Orra Harðar, Geir Harðarsyni,
Worm is Green, My Sweet Bak-
lava, Önnu Halldórs, Kirkjukór
Akraness, Þjóðlagasveit TOSKA,
Héðni, Sonum syndanna, Söng-
kvartettinum Ópus, Kvenna-
kórnum Ym, South Lane Basem-
ent Band, Skerðingu, Akranesi,
Heima við hafið, Valgerði Jóns-
dóttur og Karlakórnum Svönum.
Vonandi eigi svo ýmislegt annað
eftir að bætast við og hvetur hann
þá sem vilja koma tónlist á fram-
færi til að hafa samband við sig. hb
Bjössi Lú býður upp á fjölbreytta tónlist sem Skagamenn hafa gefið út.
Katrín Gísladóttir hefur hengt fjölda skírnarkjóla upp til sýnis í verslun sinni. Von
er á fleiri kjólum næstu daga.