Akureyri - 20.11.2014, Side 4
4 43. tölublað 4. árgangur 20. nóvember 2014
Eitt minnsta atvinnu-
leysi landsins í Eyjafirði
Haustfundur Atvinnuþróunarfé-
lags Eyjafjarðar fór fram í síðustu
viku. Þorvaldur Lúðvík Sigurjóns-
son, framkvæmdastjóri AFE, segir
margt forvitnilegt hafa komið fram
á fundinum.
Haustfundurinn er formlegur
samráðsvettvangur 7 sveitarfélaga
við Eyjafjörð með um 25 þúsund
íbúa, mesta mannfjölda utan höf-
uðborgarsvæðisins. Sveitarfélög-
in nota fundinn til að bera saman
bækur sínar og skerpa á áherslum
til framtíðar.
Á fundinum kom fram að sögn
Þorvaldar Lúðvíks að Eyjafjörður
er ekki láglaunasvæði, að hagnað-
ur fyrirtækja á svæðinu er metinn
á 54 milljarða 2013, að fyrirtæki
á svæðinu jöfnuðu sig á hruninu
strax 2011 og að eigið fé þeirra er
tæplega tvöfalt miðað við árið 2007
eða um 200 milljarðar.
„Fleira forvitnilegt kom fram, s.s.
að atvinnuleysi á svæðinu hefur
verið 1,5-2% lægra en lands-með-
altal frá hruni, og er nú 3%, umtals-
vert lægra en annars staðar,“ segir
Þorvaldur Lúðvík.
„Jafnframt kom fram að eitt
brýnasta hagsmunamál þessa
landshluta er eðlileg uppbygging
millilandaflugs í gegnum fleiri gátt-
ir en Keflavík. Því er stýrt af rík-
inu í gegnum Isavia til Keflavíkur.
Raunniðurskurður til allra flug-
valla á landinu fyrur utan Keflavík
hefur verið 850 milljónir króna frá
2007, en Isavia ohf. er um þessar
mundir að leggjast í 12-15 millj-
arða uppbyggingu í Keflavík til að
mæta ásókn ferðamanna til lands-
ins,“ segir Þorvaldur Lúðvík sem
telur sóknarfæri vannýtt í ferða-
málum á Norðurlandi. -BÞ
„Sorglegt fyrir Bjarta framtíð“
Þungur hugur er í Norð-
lendingum eftir að Guð-
laug Kristjánsdóttir, odd-
viti Bjartrar framtíðar í
Hafnarfirði og formaður
BHM, sendi fyrir hönd
BHM harðorða yfirlýs-
ingu þar sem félagið
tók afstöðu gegn því að
Fiskistofa yrði flutt frá
Hafnafirði til Akureyr-
ar. Liðsmaður Bjartrar
framtíðar á Akureyri hef-
ur stigið fram og gagnrýnt sam-
flokkskonu sína fyrir
þann dómgreindarbrest
að senda út yfirlýsingu
um málið í nafni BHM á
sama tíma og hún telj-
ist vanhæf til að gera
slíkt þar sem Guðlaug
sé einnig forseti bæjar-
stjórnar í Hafnarfirði.
Jón Þorvaldur Heiðar-
sson sem bauð sig fram í
sjötta sætið fyrir Bjarta
framtíð á Akureyri sl. vor
segir í umræðu um málið á face-
book: „Guðlaug Kristjánsdóttir er
auðvitað algjörlega vanhæf að tjá
sig um þetta sem formaður BHM.
Það er eins augljóst og nokkuð
getur verið augljóst. Að hún sjái
það ekki sjálf er ákaflega sorglegt.
Sorglegt fyrir hana og sorglegt fyr-
ir Ísland og sorglegt fyrir BF.“
Jón Þorvaldur kennir við Háskól-
ann á Akureyri og er ekki einn um
skoðun sína þar á bæ því sl.. mánu-
dag sendu kennarar við skólann út
harðorða yfirlýsingu vegna bréfs
Guðlaugar. Þess er krafist að hún
dragi bréf sitt til baka. Benedikt Sig-
urðarson, framkvæmdastjóri Búseta,
gengur þó lengst í ummælum á face-
book og krefst afsagnar hennar.
„Við deilum ekki þeirri sýn for-
mannsins að þetta mál snúist um
brot á stjórnarskrá Íslands, en sé
formanninum umhugað um skipan
stjórnvalds í lýðræðisríki þá teljum
við það meginatriði að stjórnsýslan
fari fram víða um landið, sé nálæg
öllum landsmönnum og ekki safn-
að á einn og sama staðinn,“ segja
háskólakennarar á Akureyri. -BÞ
Skallaði löggu
Ungur maður hefur verið dæmd-
ur fyrir brot gegn valdstjórninni
eftir að hann skallaði lögregu-
mann í andlitið við Nætursöluna
sunnudagsmorgun einn í júní árið
2013 og sparkaði í kvið annars
lögreglumanns. Maðurinn játaði
brot sitt.
Annar lögreglumannanna, sá
sem var skallaður, varð aumur í
efri vör og rauður á nefi, en ekki
var talin þörf á því að færa hann
á slysadeild Sjúkrahússins á Akur-
eyri. Þá kemur fram í gögnum að
hinn lögreglumaðurinn hafi verið
í öryggisvesti og að hann hafi ekki
kennt sér ekki meins. Óumdeilt er
að hinn brotlegi var undir veruleg-
um áfengisáhrifum.
Með hliðsjón af framangreindu,
játningu ákærða og öðrum rann-
sóknargögnum þykir nægilega
sannað að ákærði hafi gerst sekur
um þá háttsemi sem lýst er í ákæru.
Refsing þýðir hæfileg 45 daga skil-
orðsbundið fangelsi en maðurinn
ungi hafði ekki gerst áður sekur um
refsiverða háttsemi. a
Jón Þorvaldur
Heiðarsson.
Guðlaug Kristjánsdóttir
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson.
Tillit tekið til barna
við snjómokstur
Guðjón Hreinn Hauksson mennta-
skólakennari hefur hrundið af stað
undirskriftasöfnun þar sem hann
hvetur bæjaryfirvöld á Akureyri til
að standa með öðrum hætti að snjó-
mokstri en verið hefur.
Undirskriftasöfnun fer vefrænt
fram á change.org. Segir þar að
nú sé vetur farinn í hönd með snjó
og tilheyrandi gleði. Ung og eldri
börn í bænum fari að leika á opn-
um svæðum og brekkur bæjarins
fái nýtt hlutverk. Útivist og leik-
ur verði snar þáttur í akureyrskra
barna. „En allt of oft gerist það
að brekkunum er spillt með grjót-
hörðum snjóruðningum sem mokað
er af götum bæjarins og þær missa
aðdráttaraflið og verða jafnvel
hættulegar. Við verðum að gera allt
sem í okkar valdi stendur til þess
að börnin okkar langi til þess að
leika sér úti,“ segir upphafsmaður
áskorunarinnar.
„Við undirrituð viljum skora á
stjórnendur Akureyrarbæjar að
beita sér fyrir því að útivistar-
svæðin spillist ekki vegna snjó-
moksturs. Sérstaklega vilja undir-
ritaðir benda á brekkuna fyrir
neðan Brekkugötu, sunnan Akur-
eyrarvallar og brekkuna í botni
Stóragerðis ofan af Kotárborgum.
Þetta eru vinsæl svæði sem ekki má
spilla,“ segir í undirskriftasöfnun
Guðjóns. a
Ó. Johnson & Kaaber ehf
Óskar eftir sölumanni til starfa á Akureyri
Starfið felst í kaffiþjónustu og sölu til fyrirtækja og stofnana.
Viðkomandi þarf að vera drífandi og skipulagður auk þess að vera
góður í mannlegum samskiptum. Gott væri ef viðkomandi hefði
reynslu af sölumennsku til fyrirtækja eða kaffiþjónustu.
Þeim sem hafa áhuga er bent að leggja inn umsókn og
ferilskrá á póstfang ooj@ojk.is
Fullum trúnaði heitið
Verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð
Við erum sérfræðingar í barnabílstólum
20% afsláttur fyrir þá sem
tryggja hjá Tryggingamiðstöðinni