Akureyri - 20.11.2014, Síða 18
18 43. tölublað 4. árgangur 20. nóvember 2014
Negrasálmar í Akureyrarkirkju
16. nóvember sl. efndi Kirkjukór
Akureyrarkirkju til tónleika í kirkj-
unni. Á efnisskránni voru framar
öðru negrasálmar en auk þeirra
eitt „ragtime“ verk fyrir hljóðfæri,
píanó og meðhljóðfæri, og einnig
einn „gospel-sálmur“. Ýmsum kann
að finnast, að í þessu hafi hinn mikli
og góði kór Akureyrarkirkju tekið
nokkuð niður fyrir sig, margreynd-
ur sem hann er í flutningi hinna
torveldustu og viðkvæmustu kór-
verka hinn klassíska kirkjustíls, en
í flutningi slíkrar tónlistar hefur
hann sannað ágæti sitt og ekki síð-
ur kórstjórinn eða kantorinn, Eyþór
Ingi Jónsson, víðfeðma hæfni sína á
hinu klassíska sviði. Kórinn hefur
líka reynt sig við flutning nútíma-
legrar tónlistar og líka þar sannað
getu síns til góðrar verka. Hví þá að
láta slíkan kór syngja nokkuð svo
„alþýðlegt“ sem negrasálma? Hlýt-
ur það ekki að vera nokkuð miklu
neðan við hans virðingu?
Slíkar spurningar kunna að
vakna í huga ýmissa, en þær eru
að fullu út í hött. Það að flytja
negrasálma þannig, að flutningur
þeirra þjóni eigind þeirra, er ekki
neitt smámál. Þessi tónlist krefst
síns brags, eigi hún að njóta sín.
Fjöldi íslenskra kóra hefur reynt
sig við flutning þessarar tónlistar
og langt í frá tekist og hefur undir-
ritaður iðulega setið undir slíku og
liðið. Sannast sagna hefur hann
talið það ólíklegt, að hann nokkurn
tímann ætti eftir að njóta íslensks
flutnings þeirri mögnuðu tónlist,
sem runnin er frá þeim blökku
mönnum, sem fluttir voru nauðugir
vestur um Atlantshafið og gerðir að
þrælum hvítra plantekrueigenda.
Af harmi þeirra, frelsissviptingu
og frelsisþrá spratt þessi tónlist,
þrungin tilfinningum og óflytjandi,
nema þessi atriði komi fram, af því
að þau eru eigind hennar í samruna
afrískrar tónlistar heimalanda
þrælanna og einkum trúartónlistar
húsbændanna á búgörðunum.
Í ljósi þessa má líta svo á, að
Kirkjukór Akureyrarkirkju hafi
ekki lagst lágt í því að ráðast í
sem næst í heila tónleikaskrá
negrasálma. Miklu frekar mætti
segja, að hann og kantor hans hafi
ráðist á garðinn, þar sem hann er
hár og sannleikurinn er reyndar sá,
að það var með nokkrum kvíða, sem
undirritaður sat á kirkjubekknum
og beið upphafsverksins. Skyldi
enn komið að óþægilegri stund og
það í boði eins af uppáhalds kórun-
um, Kirkjukórs Akureyrar?
Víst skorti nokkuð á. Tónninn
hefði á nokkrum stöðum mátt vera
breiðari, fyllri, ef til vill hrárri.
Blæbrigðin hefðu á stundum mátt
vera meira afgerandi, en hreinn
var söngurinn, ákveðinn og hik-
laus. Iðulega kom líka fram ekta
blær, þar sem náðist taktleikur og
synkópur, sem lyftu flutningnum
yfir hið venjulega. Víða hæfilegur
leikandi, hæfileg upplyfting, hæfi-
leg hrif; í heild tekið hiklaust það
besta í flutningi tónlistar negranna,
sem fyrir eyru undirritaðs hefur
nokkurn tímann borið úr börkum
íslenskra kórmanna.
Haraldur Hauksson söng eitt
einsöngslag og gerði í heild tekið
vel. Nokkuð skorti þó á samfellu
í tónblæ, en túlkun var almennt í
góðu lagi og röddin mjög áheyrileg.
Alls ekki má láta ógetið hljóð-
færaleikaranna, þeirra Daníels
Þorsteinssonar á flygil kirkjunnar,
Jóns Rafnssonar á kontrabassa og
Halldórs G. Hallssonar á slagverk.
Þessir menn fóru á kostum. Þar
verður framar öðrum og án þess
að halla á nokkurs manns hlut
sérlega að nefna Daníel Þorsteins-
son, sem enn einu sinni sýndi hina
ótrúlegu fjölhæfni sína við hljóm-
borðið jafnt í meðleik með kórnum,
sem ætíð var við hæfi og iðulega
skreyttur viðeigandi og hrífandi
slaufum, en þó ekki síst í innlifuð-
um spuna, sem bar sannan keim af
jazzi, inn á milli hluta í flutningi
kórsins. Allur blær flutningsins á
tónleikunum hlaut mikinn lit af
tilleggi hljóðfæraleikaranna allra.
Jafnvel má segja, að þeir hafi að
miklum hluta haldið uppi stemmn-
ingunni.
Að lokum: Vonandi ræðst
Kirkjukór Akureyrarkirkju undir
stjórn hins hæfa kantors síns í hlið-
stætt verkefni síðar. Múrinn hefur
verið rofinn. Næst er að halda fagn-
andi og sigurviss um skarðið. a
Í heild tekið hiklaust
það besta í flutningi
tónlistar negranna,
sem fyrir eyru undir-
ritaðs hefur nokkurn
tímann borið úr
börkum íslenskra
kórmanna.RANGÁRVÖLLUM | 603 AKUREYRI | SÍMI 460 1300 | FAX 460 1301 | no@no.is | www.no.is
Styrkir
til samfélagsverkefna 2015
Norðurorka hf. veitir styrki til samfélagsverkefna, veittir eru styrkir
til menningar- og lista, æskulýðsstarfs og góðgerðarmála.
Markmið með styrkjum Norðurorku er að styðja við sjálfsprottið starf,
starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðlar
að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlí.
Umsókn um styrki skal skila á þar til gerðu eyðublaði sem nálgast má á
heimasíðu Norðurorku hf. www.no.is (undir tenglinum UM NO) eða í
þjónustuveri að Rangárvöllum, 603 Akureyri.
Fylgiskjöl með umsókninni má senda hvort heldur sem er í tölvutæku
formi með tölvupósti eða með póstlagðri umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 25. nóvember 2014
Með pósti á Norðurorka hf., Rangárvöllum, 603 Akureyri eða
sem fylgiskjal með tölvupósti á netfangið no@no.is
1
2
Haukur Ágústsson
Skrifar tónleikagagnrýni
Kór Akureyrarkirkju, stjórnandinn Eyþór fyrir miðju.