Akureyri - 20.11.2014, Blaðsíða 24
AUGLÝSINGAR 578 1190 & AUGLYSINGAR@FOTSPOR.IS | RITSTJÓRN 862 0856 & BJORN@AKUREYRIVIKUBLAD.IS
UM DAGINN OG VEGINN
JÓN ÓÐINN WAAGE
SKRIFAR
14.500 EINTÖK FRÍTT UM ALLT NORÐURLAND Á HVERJUM FIMMTUDEGI
Fylgstu með á facebook- Lindex Iceland
Pirringur
Pirringur er vond tilfinning.
Hann kyndir undir slæmar hugs-
anir og veldur vanlíðan, jafnvel
óhamingju. Ég forðast pirring.
Í síðustu viku var ég að aka
um bílastæðið hjá Íþróttahöll-
inni. Út á milli bíla koma maður
gangandi. Honum varð greini-
lega hverft við þegar hann mætti
mér, þótti ég fara of geist. Hann
sló í bílinn hjá mér.
Það pirraði mig.
Ég fór út úr bílnum og kallaði
á hann. Hann virtist óttasleginn,
sagðist vita hver ég væri, það var
eins og hann héldi að ég myndi
leggja á sig hendur.
Það pirraði mig enn meira.
Ég ætlaði að ræða við hann
í góðu. Kona sem átti leið hjá
komst ekki leiðar sinnar, bíllinn
minn var fyrir.
Það var pirrandi.
Maðurinn nýtti sér tækifærið
og forðaði sér áður en að ég gat
rætt við hann.
Það var verulega pirrandi.
Ég fór inn i bíl og ók í burtu.
Ég var gramur við sjálfan mig
yfir að hafa brugðist svona við.
Það jók á pirringinn sem nú
var kominn að suðumarki.
Ég hef í tvö ár reynt að hafa
það sem reglu að skilja alltaf
við alla í góðu, ef það tekst ekki
þá er ég ómögulegur. Nú er ég
ómöglegur eftir þessi samskipti.
Þannig að þú skeggjaði maður
í svarta bolnum sem hélst að ég
ætlaði að lumbra á þér, þú hafðir
rétt fyrir þér, ég ók of hratt mið-
að við aðstæður.
Ég þarf að hitta þig til að
biðja þig afsökunar.
Ég ætla að knúsa þig.
Hvort sem þér líkar betur eða
verr.
Rannsóknir og ráðgjöf vegna raka og myglu í húsum
www.husogheilsa.is hh@husogheilsa.is s: 695 0525
rakamæling ◦ sýnataka ◦ loftgæðamælingar
Ástandsskoðun ◦ kaup ◦ sala
HVERNIG ER ÁSTANDIÐ Á ÞÍNU
HEIMILI EÐA VINNUSTAÐ?
Rannsóknir og ráðgjöf vegna raka og myglu
hús & heilsa Fyrsta fyrirtækið á Íslandi Fagmennska og vísindi