Skessuhorn - 28.11.2012, Page 97
Uppheimar | Sími: 511 2450 | uppheimar@uppheimar.is | www.uppheimar.is
Eftir Steinar J. Lúðvíksson og Gullveigu Sæmundsdóttur
Aragrúi ljósmynda á rúmum 800 blað
síðum af fróðleik um golf á Íslandi.
Tvö bindi í vandaðri öskju.
Verði er stillt í hóf.
Tveggja binda stórvirki um golfíþróttina er komið út
Jólagjöf allra kylfinga!
Saga golfs á Íslandi er ævintýri. Hún segir frá því hvernig frum
herjarnir ruddu ótrauðir brautina og hvernig tókst að gera
íþróttina að almenningseign – því golf er ein vinsælasta íþrótt
sem stunduð er hér á landi. Golfsaga Íslands spannar ekki nema
mannsaldur en hún hefur að geyma frásagnir af stórum við burð
um, mótlæti og eftirminnilegum sigrum.
Í tilefni af 70 ára afmæli Golfsambands Íslands var ráðist í að skrá
þessa sögu sem kemur hér fyrir augu lesenda í tveimur bindum.
Í fyrra bindinu, Upphafshögginu, er sagt frá frumkvöðlum og
forystumönnum, stofnun helstu golfklúbba og hvernig þessi
almenningsíþrótt breiddist út um landið. Ritið gefur góða yfirsýn
um allt það sem kylfingar landsins hafa aðhafst frá því að þessi
íþrótt ruddi sér til rúms á fjórða áratug síðustu aldar. Sagan er
skráð af nákvæmni, í fjörlegum og læsilegum stíl, studd fjölda
skemmtilegra mynda sem sýna hver þróunin varð og hvernig
takmarkinu var náð.
Meginefni seinna bindisins, Golfhringsins, er tileinkað golfklúbb
um og golfvöllum landsins. Saga og starfsemi hvers klúbbs er
rakin og gott myndaúrval sýnir þá margbreytni sem ein kennir
hina fjölmörgu golfvelli landsins. Saga Íslandsmótsins í golfi er
vörðuð ógleyman legum at vikum sem oft voru fest á filmu.
Fjölbreyttri golfiðkun fyrr og nú eru gerð eftirminnileg skil í þessu
viðamesta ritverki sem gefið hefur verið út um golf á Íslandi.