Víkurfréttir - 27.01.2011, Síða 10
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 4. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR10
Synti með
mörgæsum og selum
mannlífið
Draumaferðin
„Pabbi hans bauð honum í
þessa ferð en þetta var alltaf
draumaferðin hans og hann
ákvað að láta verða af því
núna,“ sagði Þóra Birgitta
Garðarsdóttir, móðir Matth-
íasar. „Matti neitaði boðinu og
hafði lítinn áhuga á ferðinni.
Ég greip þá í taumana og sagði
honum að taka sér bara smá
frí frá skólanum og drífa sig
í þessa ferð því svona tilboð
kæmi aðeins einu sinni á lífs-
leiðinni.“
Matthías stundaði nám við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja en
ákvað að taka sér frí frá skól-
anum vegna ferðarinnar og
sér ekki eftir því. Við náðum
í Matthías á Suðurskautsland-
inu nú í vikunni þar sem hann
dvelur í stóru skipi og skoðar
þessa náttúruperlu.
„Þetta er æðislegt hérna. Ísjak-
ar fljótandi alls staðar, selir og
mörgæsir út um allt, alveg eins
og maður sér fyrir sér þegar
maður hugsar um Suðurskaut-
ið,“ sagði Matthías en hann
er búinn að taka yfir 3.000
myndir og telur að yfir 1.000
af þeim séu bara af mörgæs-
um. „Við sofum í skipinu sem
við komum með en það getur
verið dálítið erfitt að sofna því
öldurnar eiga það til að vera
5-7 metra háar sem gerir þetta
að smá áskorun.“
Sumar á suðurskautinu
Nú er sumar á suðurpólnum
og veður mjög gott miðað við
hvernig það getur verið þarna
en vindurinn á það til að
skella í 200 metra á sekúndu
yfir vetrartímann. „Veðrið er
bara ágætt hérna en þetta er
bara svipað og heima á Íslandi.
Vindurinn hefur farið mest
upp í 27 metra á sekúndu og
alveg niður í logn en hitastigið
rokkar frá -3° og upp í svona
2°.
Sund með mörgæsum
Matthías fékk sér smá sund-
sprett einn daginn með mör-
gæsum og selum og sagði
þetta vera skemmtilegasta
sundsprett sem hann hefði
tekið. „Ég hef nú ekki gaman
af sundi en þetta var ótrúlegt
og fékk svo viðurkenningu
fyrir sundið sem ég skil ekki
alveg. Annars er lítið annað að
gera hérna en að borða og sofa,
fyrir utan auðvitað að skoða
allar náttúruperlurnar sem hér
eru.“ sagði Matthías.
Mörgæsunum slétt sama
Mörgæsir og selir eru kannski
ekki þessi venjulegu húsdýr
sem flestir alast upp við en
Matthías hefur verið um-
kringdur fleiri þúsundum af
þessum dýrum. „Mörgæs-
unum er bara slétt sama hvort
við séum þarna eða ekki og
þær eru mjög ljúfar,“ sagði
Matthías aðspurður hvort
ferðamenn væru ekkert að
angra dýrin. „Selirnir verða
aftur á móti mjög styggir ef
við komum nálægt kópunum
þeirra þannig að ég læt það
alveg eiga sig,“ sagði Matthías
að lokum.
siggi@vf.is
Ungur strákur úr Reykjnesbæ gerði sér lítið fyrir og fór í 27 daga ferð til Suðurskautslandsins ásamt erlendum
föður sínum, Michael Don. Matthías Þór Þóruson, sem er
aðeins 17 ára gamall, er staddur á Suðurskautslandinu þessa
dagana en hann er yngsti Íslendingurinn til að fara þangað.
Hann flaug til Englands þar sem pabbi hans býr en þaðan
fóru þeir feðgar saman til Brasilíu og svo til Argentínu. Þar
tóku þeir svo skip sem sigldi með þá til Suðurskautslandsins
en tóku allar eyjarnar í kring áður en áfangastaðnum var
náð. Loks komu þeir á Suðurskautslandið en þar er allt mor-
andi í mörgæsum og selum og landslag er meira augnayndi
en margan manninn grunar.
4 Matthías Þór Þ
óruson er staddu
r á Suður-
skautslandinu í m
ikilli ævintýrafer
ð: