Víkurfréttir - 02.01.2009, Side 14
14 AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 1. TÖLUBLAÐ I 30. ÁRGANGUR
Ál og samfélagið
Skúli Þ. Skúlason,
framkvæmdastjóri
starfsmannasviðs Norðuráls
Helguvík
Stendur ekki álengdar
Norðurál hefur frá upphafi haft þá sérstöðu að velja íslensku leiðina sem felst
í því að taka mið af íslensku aðstæðum við uppbyggingu fyrirtækisins og
gæta þess að það dafni í sátt við íslenskt samfélag. Norðurál hefur skipt vexti
fyrirtækisins í áfanga og brotið framkvæmdir niður í viðráðanlegar einingar
fyrir íslenskt efnahagslíf og fyrirtæki. Þessi stefna auðveldar innlendum aðilum
að taka að sér framkvæmdir og nota innlent vinnuafl. Fyrirtækið nýtir sér
íslenskt hugvit og mikil þjónusta er t.d. keypt af innlendum verkfræðistofum,
byggingaverktökum, flutningafyrirtækjum, ráðgjafastofum og bönkum.
Norðurál hefur skapað trausta atvinnu og átt verðugan þátt í að efla búsetu
í nærliggjandi í sveitarfélögum. Hundruð heimamanna hafa fengið fjölbreytt
og góð langtímastörf og búseta eflst í nærliggjandi sveitarfélögum. Þá hafa
þjónustugreinar blómstrað og sem dæmi má nefna að um eitt hundrað fyrirtæki
þjónusta að jafnaði rekstur Norðuráls á Grundartanga og annast þar ýmsar
framkvæmdir. Jafnframt hefur fyrirtækið stutt við íþrótta- og menningarlíf í
heimahéruðum.
Fjölbreytt flóra fyrirtækja í nágrannabyggðum þjónustar Norðurál á Grundar-
tanga, svo sem vél- og blikksmiður, rafverktakar, pípulagningafyrirtæki, bif-
reiðaverkstæði, vélaleigur, jarðvinnuverktakar, hugbúnaðarfyrirtæki, trésmiðjur,
hreingerningaþjónustur, saumastofur, rútufyrirtæki, hótel og veitingahús. Sami
háttur verður hafður á aðkeyptri þjónustu í hjá Norðuráli Helguvík.
Vissir þú að:
● Sé horft á föst störf, sumarafleysingar og afleidd störf, þá
eru störf í áliðnaði á Íslandi um 5.000 talsins á þessu ári.
● Enda þótt mestur hluti hráefna og tækja sé innfluttur,
verður talverður hluti af veltu álveranna eftir á Íslandi;
einkum í formi orkukaupa, skatta, launagreiðslna og
fjárfestinga.
● Það er stefna Norðuráls að starfsfólk komi sem mest
úr nágrannabyggðum.
Hauk ur Ingi Guðna son fyrr-
ver andi leik mað ur Kefla vík ur,
en nú síð ast hjá Fylki, skrif aði
und ir samn ing við sitt gamla
fé lag fyr ir jól
Við sama tæki færi skrif uðu
tveir ung ir leik menn und ir
samn inga við fé lag ið en það
voru þeir Magn ús Þór ir Matth-
í as son og Tómas Kjart ans son,
báð ir fædd ir 1990. Þá skrifaði
Ás dís Þor gils dótt ir, íþrótta-
kenn ari og einka þjálf ari und ir
samn ing við fé lag ið um að
taka að sér þrek þjálf un leik-
manna. Ás dís hef ur starf að
mik ið fyr ir kvennaknatt spyrn-
una og tók m.a. við þjálf un
kvenna liðs ins á miðju sl.
sumri.
Þor steinn Magn ús son, for-
mað ur knatt spyrnu deild ar og
Krist ján Guð munds son, þjálf-
ari Kefla vík ur voru að von um
ánægð ir með þessa samn inga
en Hauk ur Ingi er fjórði fyrr-
ver andi at vinnu mað ur inn úr
Kefla vík sem skrif ar und ir
samn ing við fé lag ið.
Hauk ur Ingi til Kefla vík ur
Guðmundur Steinarsson
knattspyrnumaður var
kjörinn íþróttamaður
Keflavíkur, íþrótta- og
ungmennafélags, í hófi
sl. mánudagskvöld.
- sjá nánar á vf.is
Næsta blað kemur út
fimmtudaginn 8. janúar