Víkurfréttir - 30.04.2009, Blaðsíða 3
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 30. APRÍL 2009 3STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
fram við og það er að koma
okkur upp úr efnahagslægð-
inni. Í því felst að skapa rekstr-
arumhverfi fyrir fyrirtæki og
leysa vanda heimilanna um
leið. Vinnan og velferðin eru
samofin. Það þarf að lækka
vexti, koma banka kerf inu
í gang og afnema gjaldeyris-
höft. Það verður að skapa hér
stöðugleika og liður í því er
að sækja um aðild að ESB og
upptaka evru í framhaldi af
samningum sem eru þjóðinni
hagstæðir“.
Það er ljóst að staða atvinnu-
mála á Suðurnesjum er hræði-
leg og um 1800 manns án
atvinnu? Ætlar þú að beita
þér sérstaklega í þessum mála-
flokki?
„Já það mun ég gera. Eins og
ég sagði hér áður er nauðsyn-
legt að skapa fyrirtækjum um-
hverfi til að geta starfað. Ég
mun einnig leggja áherslu á
samstarf ríkis, sveitarfélaga
og fyrirtækja til að skapa fjöl-
breytt atvinnutækifæri hvort
sem er við alþjóðaflugvöllinn, í
Helguvík eða á öðrum atvinnu-
svæðum sveitar fé laganna.
Virkja þarf mannauðinn og
hugmyndaauðgi okkar Suður-
nesjamanna í enn ríkari mæli“.
Málefni Helguvíkur og orku-
öf l un vegna Helgu vík ur
hefur verið mikið í umræð-
unni. Ætlar þú að hafa áhrif
í þessum málum í stjórnkerf-
inu?
„Ég lít svo á að málefni er
snúa að álversframkvæmdum
í Helguvík séu á grænni grein
hvað varðar aðkomu ríkis og
sveitarfélaga. Eins og Suður-
nesjamenn vita hef ég unnið
að því verkefni sem bæjarstjóri
í Garði. Þar hefur samstarf
sveitarfélaga, ríkis og Norður-
áls gengið vel“.
Áttu þér sérstakar óskir um
nefndir eða sérstaka mála-
flokka innan þingsins?
„Samstarf ríkis og sveitarfé-
laga er mér hugleikið og at-
vinnumálin auðvitað. Ég er
talnaglögg svo sá eiginleiki
gæti örugglega nýst vel við
fjárlagagerð. Menntamál eru
svo mín sérgrein þar sem ég er
með meistarapróf í uppeldis-
og menntunarfræðum og hef
starfað í mörg ár að stefnu-
mótun og stjórnun í mennta-
kerfinu“.
Auglýsingasíminn er 421 0000
- sókn er besta vörnin!