Víkurfréttir - 30.04.2009, Page 9
VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 30. APRÍL 2009 9STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Sími 892 8043 • lagseyla15@simnet.is
Góð Gæði ehf.
Smágröfuþjónusta
• Volvo FL 610 Vörubíll
• Bobcat A300 Hjólavél
• Bobcat 3,7 tonn Beltagrafa
Fleygur • Staurabor • Vökvaklemma • Gaffall
Snjótönn • Fræsarasög • Sópur • Tiltskófla
Frá því í haust hafa elstu börnin í leikskól-
anum Tjarnarseli í Reykjanesbæ verið að und-
irbúa sig fyrir komandi grunnskólagöngu.
Einn liðurinn í undirbúningnum eru gagn-
kvæmar heimsóknir elstu barna Tjarnarsels
og nemenda Myllubakkaskóla.
Í síðastliðinni viku hittust nemendur sjöunda
bekkjar ÍH elstu börnin í Tjarnarseli í þriðja
sinn á þessu skólaári. Sjöundu bekkingar höfðu
skipulagt tveggja tíma kennslustundir með að-
stoð kennara þeirra, Írisi Halldórsdóttur. Þau
leystu ýmis skemmtileg verkefni í sameiningu
og eitt þeirra var að nemendurnir teiknuðu
hvort annað, nemandi Tjarnarsels teiknaði nem-
anda í sjöunda bekk og öfugt. Myndirnar eru til
sýnis í skólunum. Allir skemmtu sér mjög vel
og þakka börn og kennarar Tjarnarsels kærlega
fyrir frábærar móttökur. Markmiðið með sam-
starfi þessa tveggja skólastiga er m.a. að tengja
þau saman, að skapa samfellu í námi og kennslu
barna/nemenda, og stuðla að vellíðan og öryggi
barna þegar þau fara milli skólastiga.
Skemmtilegt samstarf
elstu barna Tjarnarsels og 7. bekkinga ÍH í Myllubakkskóla