Víkurfréttir - 27.05.2010, Side 4
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0000VÍKURFRÉTTIR I 21. TÖLUBLAÐ I 31. ÁRGANGUR4
Úps...! er allt farið? X-B Framsókn
Ég vil með þessum skrifum mín-um þakka Jórunni Tómasdótt-
ur kærlega fyrir þá grein sem hún
birti á vef Víkurfrétta þann 6. maí
sl. undir fyrirsögninni „Im memori-
am“. Grein hennar um sparisjóð-
inn okkar Suðurnesjamanna snerti
hjartarætur mínar. Greinin fjallaði
m.a. um hlutverk sparisjóðsins og
minnti okkur á hve græðgi og sið-
spilling mannskepnunnar er var-
hugaverð.
Ég man vel þegar ég stofnaði mína
fyrstu bankabók hve mikla áherslu
afi minn og pabbi lögðu á það að
hana skyldi ég stofna í sparisjóðnum
í Njarðvík. Allt frá þeim degi hef ég
haldið tryggð við það útibú. Það er
nefnilega staðreynd sem Jórunn seg-
ir að „sparisjóðurinn var stolt íbúa
svæðisins og að hugmyndafræði hans
hverfðist um almannahag“.
Ég hafði oft á orði við hin ýmsu tæki-
færi að mér þætti vænt um sparisjóð-
inn. Margir ráku reyndar upp augu
við slíkar yfirlýsingar, ef til vill að
hluta vegna þeirrar hugmyndafræði
sem gert hefur okkur köld og tilfinn-
ingasnauð. En mér þótti vænt um
sparisjóðinn minn alveg eins og mér
þótti vænt um Hitaveitu Suðurnesja!
Þessi tvö fyrirtæki voru stolt okkar
Suðurnesjamanna en nú eru þau bæði
komin úr okkar eigu þótt ferlið og
aðdragandinn hafi ekki verið sá sami.
Eftir stendur að það mikla stolt sem
þessi fyrirtæki báru með sér er sært.
Það er eitt sem aldrei er hægt að setja
í formúlu, það er græðgi manna. Ein-
mitt þess vegna mun fullkomið frelsi
aldrei ganga upp. Einmitt þess vegna
þurfum við reglur og eftirlit með
stofnunum og stjórnendum stofnana
eins og sparisjóðsins, einmitt þess
vegna erum við komin á þann stað
sem við erum á í dag.
Hvað gekk eiginlega á inni í spari-
sjóðnum? Hverjir voru að lána hverj-
um hvað og hvaða veð voru að baki
þeim lánveitingum? Hvernig má það
vera að sparisjóðurinn hafi verið rek-
inn í þrot? Hvaða háttsemi var viðhöfð
í skjóli „frelsis“ og máttlauss eftirlits?
Almenningur hér á Suðurnesjum, fólk
sem hélt tryggð við sparisjóðinn, hlýt-
ur að eiga heimtingu á því að fá að vita
hvað gekk á í sparisjóðnum síðustu
árin. Orð götunnar er að vissir menn
hafi lánað pólitískum vinum sínum og
kunningjum háar fjárhæðir án veða.
Ég vil ekki trúa því að slíkt hafi átt
sér stað enda er hollt að trúa varlega
orðinu á götunni. En sparisjóðurinn
fór í þrot, það er staðreynd. Og margir
höfðu varað við þeirri vegferð sem
stjórnendur sparisjóðsins voru lagðir í
án þess að hlustað væri. Þess vegna er
það mjög mikilvægt að sparisjóðurinn
verði rannsakaður ofan í kjölinn. Allt
verður að koma upp á yfirborðið. Að-
eins í kjölfar slíkrar rannsóknar geta
þeir sem hlut eiga að máli og ekkert
gerðu rangt hreinsað mannorð sitt,
aðeins þá fyrst verður hægt að sækja
þá til saka sem brotið hafa lög, hafi lög
verið brotin á annað borð. Einungis að
ítarlegri og réttlátri rannsókn lokinni
er mögulegt að við sem höfum ætíð
haldið tryggð við sparisjóðinn getum
orðið sáttari við örlög hans - þótt við
verðum aldrei fullkomlega sátt.
Ég vona líkt og Jórunn að hægt verði
að vekja sparisjóðina upp aftur í ein-
hverri mynd með þeirrri frábæru hug-
myndafræði sem var til grundvallar
tilvist þeirra; sparisjóði sem styðja við
menningu, íþróttastarf, atvinnulíf,
sparnað fólks og hafa almennt hlut-
verki að gegna í öllu bæjarlífi á þeim
stað þar sem þeir eru starfræktir.
Það er líka einlæg von mín að Suður-
nesjamenn fari að vakna og láta til sín
taka hvort sem það er með greina-
skrifum eða almennri, málefnalegri
umræðu. Burt séð frá allri pólitík er
umfram allt mikilvægt að fólk sé gagn-
rýnið í hugsun varðandi málefni bæj-
arfélagsins okkar. Það er mjög sárt að
sjá eftir þessum tveimur fyrirtækjum,
þessu stolti okkar. En í ljósi þess að
við Suðurnesjamenn erum dugmikið
og ráðagott fólk veit ég að við eigum
eftir að vinna okkur upp úr þeim erf-
iðleikum sem við erum í núna. Þegar
sá dagur kemur verður vonandi vilji til
þess að vekja upp gamla góða andann
sem lá bak við stofnun Sparisjóðsins
og Hitaveitunnar. Draumsýn okkar
allra er einföld: hún snýst um réttlátt
samfélag með jöfnum rétti allra. Leið-
in að því að láta slíkan draum verða
að veruleika er vörðuð samfélagslegri
ábyrgð.
Að lokum vil ég þakka starfsfólkinu í
útibúinu í Njarðvík fyrir persónulega
og góða þjónustu í gegnum árin og
óska þeim velfarnaðar sem fluttir hafa
verið til í starfi.
Kristján Reykdal Sigurjónsson
Suðurnesjamaður.
Takk fyrir, Jórunn
Tómasdóttir
BRÉF TIL BLAÐSINS
Póstfangið er: vf@vf.is
Ég vona líkt og Jórunn að
hægt verði að vekja spari-
sjóðina upp aftur í einhverri
mynd með þeirrri frábæru hug-
myndafræði sem var til grundvallar
tilvist þeirra; sparisjóði sem styðja
við menningu, íþróttastarf, atvinnulíf,
sparnað fólks og hafa almennt hlut-
verki að gegna í öllu bæjarlífi á þeim
stað þar sem þeir eru starfræktir.
KrisTJán
reyKdal
sigurJónsson
auglýsing