Víkurfréttir - 30.08.2012, Side 6
FIMMTUDAGURINN 30. ÁGÚST 2012 • VÍKURFRÉTTIR6
Leiðari Víkurfrétta
Páll Ketilsson, ritstjóri
vf.is
Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 6. september 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða fusi@vf.is
Blik og fjör en líka skuggalegar staðreyndir
Stærsta hátíð ársins á Suðurnesjum, Ljósanótt, er
gengin í garð. Ljósanótt fer nú fram í þrettánda
skipti og er óhætt að segja að þróun hátíðarinnar
hefur verið afar jákvæð á þessum rúma áratug frá
því hún fór fyrst fram.
Ljósanótt er nokkurs konar sameiningartákn en á þessum
tímamótum síðla sumars sameina íbúar Reykjanesbæjar krafta
sína í menningu, listum, afþreyingu og góðri samveru. Síðasti
liðurinn er ekki síður mikilvægur því þessa helgi koma tugir
þúsunda til bæjarins og njóta fjölbreyttrar dagskrár. Fjöl-
skyldur sameinast, maður er jú manns gaman og ekki veitir af
að vekja athygli á mörgum gríðarlega jákvæðu sem er í gangi á
svæðinu. Eftir kreppu hefur félagsstarf og margs konar menn-
ing og listir vaxið fiskur um hrygg. Árlega eru nú stórar og
metnaðarfullar sýningar á borð við tónlistarupprifjunina „Með
blik í auga“ og rétt fyrir Ljósanótt óperusýning í Stapanum.
Þessar tvær sýningar eru mjög viðamiklar þar sem mikil vinna
og metnaður liggur að baki. Því er mikilvægt að við sækjum
þessa viðburði því ekki er hægt að ætlast til að það sé ókeypis á
svo stóra viðburði þar sem miklu er til kostað. Fjölmörg atriði
væri hægt að nefna sem á Ljósanæturdagana drífur en ljóst er
að það verður úr miklu að velja. Hápunkturinn þó eflaust hjá
flestum þegar ljósin á Keflavíkurbjargi verða tendruð eftir flug-
eldasýninguna.
Það er kannski ekki rétt að skyggja á Ljósanæturgleðina en
frétt í VF í dag um fjölda fólks sem hefur verið atvinnulaust
það lengi að það hefur misst bótaréttinn og „komið á bæinn“
er virkilegt áhyggjuefni. Það hefur nefnilega sýnt sig að ef fólk
er án atvinnu í lengri tíma er erfiðara að ná því í vinnu á nýjan
leik. Ástandið í atvinnumálum kemur einnig fram í aðsókn í
iðngreinar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Í blaðinu í dag lýsir
aðstoðarskólameistari áhyggjum skólayfirvalda í þeim efnum.
Ástæðan er m.a. sú að nemendur sem fara í iðnnám, hvort sem
það er húsasmíði, vélsmíði eða hárgreiðsla er í vandræðum
með að komast í starfsþjálfun sem er hluti af náminu. Þegar
við komumst almennilega upp úr kreppunni, sé ekki talað um
þegar álver fer í gang, hvernig mun ganga að ráða iðnmenntað
fólk sem mikil þörf er fyrir í slíkri starfsemi? Stór hópur fólks
hefur yfirgefið landið og farið til vinnu erlendis og allsendis
óljóst að það komi í störf þegar þau gefast. Og ef fátt iðn-
menntað fólk kemur á atvinnumarkaðinn á næstu árum stefnir
augljóslega í óefni. Það er deginum ljósara að hér þarf að gera
ráðstafanir og það fyrr en seinna. Annars er hættan á því að
hér þurfi að sækja iðnaðarmenn til annarra landa til að sinna
þessum störfum. Viljum við það?
Gleðilega Ljósanótt!
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is.
Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem
er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram
á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á
þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á
miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um
einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is.
Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat
ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu
blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir,
hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, sími 421 0002, eythor@vf.is
Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
Afgreiðsla og ritstjórn:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamaður:
Auglýsingadeild:
Umbrot og hönnun:
Auglýsingagerð:
Afgreiðsla:
Prentvinnsla:
Upplag:
Dreifing:
Dagleg stafræn útgáfa:
Nám og leikur haldast í hendur
›› FRÉTTIR ‹‹
Leikskólinn Hjallatún var opnaður form-lega þann 8. janúar árið 2001. Í leikskól-
anum eru að jafnaði um 88 börn og í kringum
23 starfsmenn. Á Hjallatúni er unnið með
Fjölgreindarkenningu Howards Gardner.
Kjarninn í kenningu hans er að hægt er að
meta mannlega möguleika og hæfileika út
frá breiðara viðmiði en áður hefur verið gert.
Hann flokkaði greind manna í 8 flokka: mál-
greind, rök- og stærðfræðigreind, rýmis-
greind, hreyfigreind, tónlistargreind, sjálfs-
þekkingar/tilfinningagreind, samskiptagreind
og umhverfisgreind. Tveir gangar eru í leik-
skólanum, heimastofurnar á hvorum gangi
vinna saman og mynda eina heild. Á Hjallat-
úni er unnið öflugt starf sem lýtur að þeim
börnum sem eru að hefja sitt síðasta ár í leik-
skólanum. Það að fara í skólahóp er viss upp-
lifun og jafnframt mikilvægt tímamótaskeið
hjá hverju fimm ára barni. Kennarar sem hafa
yfirumsjón með skólahópi hafa einsett sér að
gera síðasta árið í leikskólanum skemmtilegt,
krefjandi, lærdómsríkt og fullt af nýjum upp-
lifunum. Kennarar nota ákveðin námsefni
sem stuðst er við og leyfa sér að leika sér með
það og móta að hverjum hópi fyrir sig. Það
fer allt eftir því hvernig andinn í hópnum er
hvernig við nálgumst efniviðinn. Einkunnar-
orð Hjallatúns eru leikurinn, lýðræði og sam-
skipti. Börnin læra í gegnum leikinn, þau læra
að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum og
eru í leikskólanum á sínum forsendum.
Á Hjallatúni byrjar skólahópastarfið í lok ágúst.
Börnin upplifa sínu fyrstu skólahópatilfinningu
þegar setning Ljósanætur fer fram. Öll börn
á elstu deildum í leikskólum Reykjanesbæjar
taka þátt í setningunni. Þetta hefur skapað vissa
stemmningu þar sem æfð eru sérstök lög fyrir
setninguna og þau fá líka sinn lit af blöðrum
til að sleppa upp í himininn. Börnin finna fyrir
mikilli vinsemd á þessari setningu þar sem þau
hitta grunnskólanemendur á öllum aldri og
allir eru spenntir fyrir þessum frábæru fimm
ára börnum. Þátttaka barnanna á setningu
Ljósanætur er fyrsta skrefið í samvinnu milli
skólastiga á hverju skólaári.
Kennarar sem hafa yfirumsjón með skólahóp-
unum skipuleggja sig vel og gera það á starfs-
mannafundum, skipulagsdögum og í undirbún-
ingstímum. Mikilvægt er að vera vel undirbú-
inn, vera með fyrirfram ákveðna áætlun sem
höfð er til hliðsjónar sem inniheldur fjöldann
allan af skemmtilegu námsefni, námsefni eins
og Markviss málörvun, Ótrúleg eru ævintýrin,
Stig af Stigi sem fjallar um tilfinningar og að
setja sig í spor annarra. Stærðfræði, listsköpun
í öllu sínu veldi, vettvangsferðir, þar sem lögð er
áhersla á nánasta umhverfi, umferðarreglur og
hvernig við högum okkur í umferðinni. Einnig
er söngur og tónlist mikilvægur þáttur leik-
skólastarfsins. Rauði þráðurinn í gegnum allt
námsefni er leikurinn. Undanfarin fimm ár hafa
kennarar tvinnað saman allt námsefni: Ótrúleg
eru ævintýrin, Markvissa málörvun, stærðfræði
og fleira inn í ákveðna ævintýrakennslu. Fundin
er saga/ævintýri í byrjun vetrar sem er lesin
mörgum sinnum. Tekin eru út orð sem vekja
áhuga og spjallað um hvað þau merkja. Börnin fá
að leika sér með orðin með því að skrifa, teikna
og mála. Síðan er sagan sjálf skoðuð, hvernig
við getum sett söguna upp í leikrit, hvernig leik-
myndin gæti litið út, hvaða leikmuni við þurfum
og hvaða búninga við getum saumað okkur
í saumavél leikskólans. Við tvinnum söngva
sem við þekkjum og kunnum inn í söguna, við
lokum augum, hlustum á söguna og finnum út
hvaða hljóð og tónlist við heyrum þegar lesin
er sagan o.s.frv. Síðan má með sanni segja að
hápunkturinn sé þegar börnin velja sér hlutverk
og byrja að æfa hlutverkin sín í leikritinu. Þetta
ferli er einstaklega spennandi og er verulega
gaman að sjá hversu mikill lærdómur fer fram
í þessu ferli. Börnin eru spennt, spenntari og
spenntust þegar komið er að frumsýningardegi.
Gaman er að segja frá því að ákveðin hefð hefur
skapast á Hjallatúni í gegnum árin og hún er sú
að öllum elstu börnum í leikskólum Reykjanes-
bæjar er boðið á leiksýningu í leikskólanum.
Stemmningin í kringum leiksýninguna er mikil
og skemmtileg og bíða m.a. foreldrar og kenn-
arar í öðrum leikskólum spenntir eftir að vera
boðið á leiksýningu.
Leikskólinn Hjallatún á heimaskóla sem er
Holtaskóli og má segja að einstaklega gott sam-
starf sé þar á milli. Mikilvægt er að skipuleggja
gott samstarf því með þeirri samvinnu er stuðlað
að öryggi og vellíðan barnanna við flutning
á milli skólastiga og skapa samfellu í námi.
Kennarar á báðum skólastigum sjá um að brúa
bilið og skipuleggja heimsóknir á báða bóga.
Skipulagðir eru um það bil fimm dagar á haus-
tönn og einnig á vorönn en að sjálfsögðu er
okkur frjálst að hittast oftar. Skólarnir skiptast
á að heimsækja hvor annan og með því móti
myndast ákveðin vinatengsl leikskólabarnanna
við grunnskólabörnin og þegar kemur að því
að þau hefja grunnskólagöngu sína er gott að
þekkja andlit sem taka vel á móti þeim. Í þessum
skólaheimsóknum í Holtaskóla fá börnin m.a. að
hitta Jóhann Geirdal skólastjóra sem tekur vel á
móti þeim og sýnir þeim skólann. Þau fá að taka
þátt í kennslustundum með 1. bekk, fara í nestis-
tíma, fara á bókasafnið, í tölvutíma og stundum
fá þau að taka þátt í einum íþróttatíma. Fyrsti
bekkur Holtaskóla kemur einnig í heimsóknir á
Hjallatún og er það skemmtileg viðbót þar sem
stutt er liðið síðan þau sjálf stóðu í þeim sporum
sem leikskólabörnin standa í.
Með þessu góða samstarfi milli skólastiga og
metnaðarfullu starfi leikskólans teljum við að
nám og leikur haldist í hendur.
Kveðja, kennarar á Hjallatúni
Bifreið féll á
mann
Það óhapp átti sér stað í Grinda-vík að bifreið féll ofan á mann.
Atvikið átti sér stað með þeim
hætti að maðurinn hafði tjakkað
bílinn upp til að laga bensíntank
hans. Talið er að bíllinn hafði
lent á bringu mannsins. Þegar
lögreglan á Suðurnesjum kom á
vettvang var verið að flytja mann-
inn í sjúkrabifreið á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja. Meiðsli hans
voru talin minni háttar.
Fékk yfir sig
sjóðandi vatn
Karlmaður í Reykjanesbæ fékk yfir sig sjóðandi heitt vatn
þegar hann við vinnu sína í fyrir-
tæki í bænum. Hann brenndist á
höfði og höndum og var fluttur á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Lögreglunni á Suðurnesjum var
tjáð á vettvangi að maðurinn
hefði verið að skrúfa frá krana til
að hleypa þrýstingi á vél, þegar
sjóðandi heitt vatn fossaði upp úr
breiðu röri og lenti á honum með
fyrrgreindum afleiðingum.
Ljósanætursýn-
ing Ljósops
Ljósop verður með ljósmynda-sýningu í Svarta Pakkhús-
inu á Ljósanótt. Sýningin opnar
á fimmtudag klukkan 18.00 og
verður hún opin alla helgina. Á
sýningunni munu 13 áhugaljós-
myndarar sýna 40 ljósmyndir
og eru efnistök afar fjölbreytt.
Ljósop er félag áhugaljósmyndara
á Suðurnesjum og hefur verið
starfrækt síðan 2006. Í félaginu
eru yfir 25 virkir félagar og hitt-
ast þeir vikulega til að skiptast á
skoðunum og fræðast um hvað er
að gerast í ljósmyndun á hverjum
tíma. Hægt er að fræðast meira
um félagið á heimasíðu þess www.
ljosop.org