Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.08.2012, Page 14

Víkurfréttir - 30.08.2012, Page 14
FIMMTUDAGURINN 30. ÁGÚST 2012 • VÍKURFRÉTTIR14 4 tegundir af krapa-ís Vanilluís Jarðaberjaís Gamaldagsís Súkkulaðiís Gamaldagsís-súkkulaði tvistur Vanillu-jarðberja tvistur Nammi SHAKE STÆ RST I ÍSBA R Á SUÐ UR- NES JUM Eitthvað fyrir alla fjöl-skylduna FJÖLBREYTT TILBOÐ Á GRILLINU! KÓK MEÐ ÖLLUM TILBOÐUM Verið velkomin í glæsilegu ísbúðina okkar að Iðavöllum 14 Fjölskyldu- og menningarhátíðin Ljósanótt í Reykjanesbæ verður haldin í 13. skiptið í ár og hefst nk. fimmtudag 30. ágúst og stendur til sunnu- dagsins 2. september. Ljósanótt telst til einnar stærstu fjölskylduhátíðar landsins. Í fyrra sóttu um 30 þúsund manns hátíðina og búist er við svipuðum fjölda í ár. Lögð er áhersla á að fjölskyldur njóti daganna saman og til merkis um það munu um tvö þúsund grunn- og leikskólabörn hefja Ljósanótt á fmmtudagsmorgun við Myllubakkaskóla með því að sleppa mislitum blöðrum til himins. Þær eru tákn um fjölbreytileika samfélagsins og vonina sem býr í brjóstum íbúa um bjarta tíma. Á laugardagskvöldinu lýkur svo dagskrá dagsins með veglegri flugeldasýningu í boði HS Orku hf. Á sunnudeginum halda margvíslegir viðburðir og sýningar áfram. Á Ljósanótt að þessu sinni eru rúmlega 50 sýningar á myndlist og handverki og tæplega 60 tónlistarvið- burðir og uppákomur. Vel á 6. hundrað einstaklingar leggja sitt lóð á vogar- skálar til að skapa fjölbreytileika í upplifun á Ljósa- nótt. Landsbankinn er helsti styrktaraðili Ljósanætur en auk hans má nefna HS Orku sem styrkir flugeldasýninguna eins og í fyrra. Þótt Suðurnesjamenn hefðu gjarnan viljað kynna hið hressilega Suðurnesjaveður, sem lið í dagskrá, eru því miður líkur til að menn missi af Suðurnesjarokinu, því hægviðri er spáð og hlýindum, þótt e.t.v. kunni dropar að koma úr lofti þegar dregur nær helgi. Í tilefni af 13. Ljósanæturhátíðinni var opnaður nýr vefur sem Kosmos og Kaos hafa unnið. Á www. ljosanott.is er að finna allar upplýsingar um dagskrá, öryggisupplýsingar og margt fleira. ›› Ljósanótt í Reykjanesbæ haldin í 13. skiptið: ›› Ljósanætursýning Listasafnsins 2012: Sú venja hefur skapast á Ljósa-nótt undanfarin ár að heima- fólk hefur verið í aðalhlutverki á sýningu Listasafns Reykjanes- bæjar í Duushúsum. Í ár var ætl- unin að stíga skrefið til fulls og setja upp risastóra samsýningu listamanna af Suðurnesjum. Leitað var eftir verkum af öllum tegundum myndlistar, tvívíðum og þrívíðum verkum, málverkum, vatnslitamyndum, teikningum, ljósmyndum, skúlptúrum og í raun öllu því sem gat með góðu móti fallið undir víðustu skil- greiningu myndlistar. Skilyrðin fyrir þátttöku voru aðeins tvö; að listafólkið hefði náð 18 ára aldri og byggi á Suðurnesjum. Markmið sýningarinnar var fyrst og fremst að sýna hina miklu grósku myndlistar á svæðinu og vonast var eftir að breiddin yrði sem mest, við fengjum lærða og leika, atvinnumenn og áhugamenn á öllum aldri sem blandast myndu í sköpuninni á eftirminnilegan hátt. Ákveðið var að hleypa öllum að sem uppfylltu skilyrðin og vildu vera með og þaðan er heiti sýn- ingarinnar komið – við sýnum allt eða ekkert! Tæplega 60 manns voru tilbúnir að taka þátt í þessu ævin- týri undir stjórn sýningarstjórans Ingu Þóreyjar Jóhannsdóttur. Ekki er um að ræða almenna stefnubreytingu hjá Listasafni Reykjanesbæjar í sýningarhaldi heldur er hér gerð tilraun til að skoða myndlist án fordóma. Eitt er víst að á Ljósanætursýningu Listasafns Reykjanesbæjar 2012 kennir ýmissa grasa og margt má þar skemmtilegt sjá. Bestu þakkir til allra sem voru tilbúnir að taka þátt í þessari djörfu tilraun og þá ekki síst sýningarstjóranum sem tókst á hendur afar erfitt verk. Góða skemmtun Valgerður Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Ein stærsta fjöl- skylduhátíð landsins Allt eða ekkert!

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.