Víkurfréttir - 30.08.2012, Side 22
FIMMTUDAGURINN 30. ÁGÚST 2012 • VÍKURFRÉTTIR22
HS Orka hf
HS Orka
Ljósanótt er fjölskylduhátíð,
njótum hennar saman
Njótið vel !
hsorka.is
lýsir upp Ljósanótt
með flugeldasýningu
FATAMARKAÐUR
Fatamarkaður Fjölskylduhjálpar verður opinn
mmtudag, föstudag og laugardag frá kl. 14:00 til
18:00. Mikið af vönduðum og nýjum fatnaði. Góð föt á
góðu verði allt frá kr. 100,- íkin.
Komið og gramsið.
Sjón er sögu ríkari?
Allur ágóði rennur í matarsjóð
Kveðja konurnar
VELKOMIN Á
LJÓSANÓTT 2012
TIMBURME
NN MUNU
SPILA FYR
IR GESTI Á
LAUGARDA
GSKVÖLDI
Ð H
jónin Ólöf Elíasdóttir og
Arnar Sigurjónsson reka
gistihúsið Berg í Reykjanesbæ.
Eins og nafnið gefur til kynna þá
er gistihúsið staðsett á Berginu
með útsýni yfir smábátahöfnina.
Þau bjuggu áður í húsinu sem er
rétt um 700 fermetrar en ákváðu
að hella sér út í rekstur gisti-
húss. „Við vissum ekkert hvað við
vorum að fara út í þegar við byrj-
uðum. Við hugsuðum að kannski
kæmi bara enginn,“ segir Ólöf
og hlær. „Við slógum bara til og
ákváðum að prufa bara.“
Þau hjónin opnuðu í júní í fyrra og
það hefur verið meiri umferð í ár
heldur en í fyrra að þeirra mati. Það
var í raun nóg að gera í fyrra og í
raun kom það þeim á óvart hversu
vel gekk.
„Það hefur verið fullt hérna alveg
frá miðjum maí. Það hefur gengið
ofsalega vel og við höfum verið
mjög heppin með dóma sem við
höfum verið að fá. “ Á vefsíðunni
tripadvisor er Gistihúsið Berg að fá
gríðarlega góða umsögn og fær þar
frábæra einkunn frá gestum sem
þar hafa dvalið.
Þau segjast verða vör við það að
flestir þeirra gestir fari að skoða
Suðurnesin, enda hvetja þau fólk
eindregið til þess. „Fólki finnst
þetta vera rosalega flott svæði, og
í raun ekkert síðra en Gullfoss og
Geysir og annað sem er í boði. Fólk
er mjög hissa á þessu sem það sér
hérna því það veit í raun ekkert
Hjónin eru með hunda á staðnum og þeir segja gesti taka vel í það. Annar
hundanna ætti eflaust að vera landsmönnum kunnur en hann hefur gert
það gott í sjónvarpi. Hvutti sá heitir Tómas og ferðaðist með Andra Frey
Viðarssyni á flandri um landið
Ferðamenn eru hissa
á fegurð svæðisins
um þetta svæði þegar það kemur
hingað. Það heldur oft á tíðum að
flugvöllurinn sé í Reykjavík,“ segir
Arnar. „Þeir sem eru að stoppa
hérna og skoða sig um eru frekar
hissa. Það kemur fólki á óvart hvað
það er mikið í boði hérna. Það veit
yfirleitt ekki neitt um þetta svæði
áður en það lendir hérna.“
„Þetta er svo lítið og allt þarf að
styðja hvert annað. Það kannski
vantar það að allir séu að berjast
saman. Það vantar upp á afþreyingu
hérna en allt annað er til staðar,“
bætir Ólöf við.
Skessan í hellinum er sívinsæl
meðal ferðamanna að þeirra sögn
og þá sérstaklega hjá yngri kyn-
slóðinni. Þau telja þó að opnunar-
tíminn mætti vera lengri þar. „Þar
er opið frá 10 - 17 en þá eru flestir
ferðamenn á flakki.“
Aðstaðan ekki nógu
góð við Leifsstöð
Flestir gististaðir hérna á svæðinu
eru að bjóða gestum sínum upp á
þá þjónustu að keyra þá til og frá
flugstöðinni og nýlega var skipulagi
leigubíla og rútum breytt við Leifs-
stöð. „Þar var ekki gert ráð fyrir
okkur. Alls staðar sem við erum að
leggja og sækja okkar gesti þá erum
við ólögleg eða á bannsvæði. Það er
þó verið að vinna í þessu og finna
lausn á þessu, því einhvers staðar
þurfum við að vera.“
›› Ferðasumarið á Suðurnesjum: