Víkurfréttir - 30.08.2012, Síða 38
FIMMTUDAGURINN 30. ÁGÚST 2012 • VÍKURFRÉTTIR38
Að undanförnu hafa borist ábendingar um rottur í
byggðinni í Grindavík. Frá þessu
segir í tilkynningu frá sviðs-
stjóra umhverfis- og skipulags-
sviðs Grindavíkurbæjar. Heil-
brigðiseftirlitið er búið að setja
niður eitur (fóðurstöðvar) víðs
vegar í bænum miðað við þær
ábendingar sem inn hafa komið
og var m.a. eitrað í síðustu viku.
Íbúi í Grindavík sem ræddi við
Víkurfréttir nýverið sagðist hafa
veitt tvær stórar rottur við hest-
húsabyggðina í Grindavík í lið-
inni viku. Þá veiddi annar íbúi
í bænum mink við Marargötu í
Grindavík.
„Ástæður þess að rotturnar eru
sýnilegri en áður geta verið margar.
Sumarið er búið að vera ótrúlega
hlýtt og gott. Þá geta framkvæmdir
við höfnina hafa orðið til þess að
koma hreyfingu á skepnurnar,“
segir Ingvar Þ. Gunnlaugsson sviðs-
stjóri skipulags- og umhverfissviðs
í tilkynningu frá bæjarfélaginu.
„Jarðvegstippur bæjarins ber þess
merki að vera notaður sem rusla-
tunna og hefur umgengni verið
afar slæleg og ástandið það slæmt
að íbúar eru að henda öllu rusli í
stað einungis garða- og jarðvegsúr-
gangs.
Undirritaður brýnir fyrir fólki að
ganga betur um og henda einungis
garðaúrgangi og jarðvegsefnum á
tippinn.
Verum börnum okkar góð fyrir-
mynd og göngum betur um okkar
umhverfi,“ segir Ingvar Þ. Gunn-
laugsson í tilkynningunni.
2 Fimmtudagurinn 14. apríl 2011VÍKURFRÉTTIR
SMÁAUGLÝSINGAR – 421 0000
NÚ GETUR ÞÚ SENT VÍKURFRÉTTUM SMÁAUGLÝSINGAR Á VEFNUM VF.IS
HEILSA
GSA fundir
Átt þú í vanda með mat og telur
að þú gætir verið haldin/n mat-
arfíkn og/eða átröskun? Fundir hjá
GSA samtökunum (sjá gsa.is) eru
alla fimmtudaga kl 20:30, í Lundi
Suðurgötu 15. Nýliðafundir eru
fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði
kl:19:45 á sama stað. Allir velkomn-
ir og við tökum vel á móti þér.
GEFINS
Kettlingar fást gefins
1. fress og 1. læða fæddir 20. maí.
Uppl. í síma 659 0663.
ÝMISLEGT
Ljósberinn skermagerð
Opið hús á Ljósanótt. Geri upp
gamla skerma og bý til skerma eft-
ir pöntunum fyrir einstaklinga og
einnig fyrirtæki. Tilboð á eldri lager
af skermum á Ljósanótt. Ljósberinn
Vatnsnesvegi 8 s. 867 9126.
Forvarnir með næringu
STAPAFELL
Hafnargötu 50, Keflavík
NÝTT
Opið alla daga
fram á kvöld
TIL LEIGU
4ra herb. íbúð v/ Faxabraut.
Laus strax. Uppl. í síma 892 5329.
4ra herb. parhús í Innri-Njarðvík
með bílskúr, laust 1. október (lang-
tímaleiga). Leiga 140 þús. Uppl. s.
856 5448.
Einstaklingsíbúð!
Ca. 45m2 íbúð fyrir reyklausan
einstakling. Trygging. Laus strax.
690 8390 eftir kl. 18.
Til leigu 80m2 íbúð í Njarðvík.
Upplýsingar í síma 897 8333.
ÓSKAST
Óska eftir múrara eða manni
vönum múrviðgerðum. Uppl. í
síma 899 3761.
Óska eftir að kaupa ísskáp m/frysti,
vel með förnum og ekki hærri en
160-180 cm. Uppl. í síma 692 2926.
Óska eftir 3-4 herb. íbúð á leigu
sem fyrst í Reykjanesbæ.Skilvirkum
greiðslum og góðri umgengni heit-
ið. Uppl. í síma 696 4236.
3 herb íbúð óskast strax til leigu í
Keflavík, Njardvík eða Garði í 1-2
ár, greiðslugeta allt að 85 þúsund,
góð reglusemi og umgengni. Uppl.
421 3283 /616 8556 /869 7881.
Rólegt par, með meðmæli, óskar
eftir íbúð í Njarðvík eða Vogum.
Upplýsingar í síma 773 1987.
Óska eftir skiptum á 102m2,
4ra herb. íbúð v/ Faxabraut fyrir
minni íbúð. Uppl. í síma 892 5329.
AFMÆLI
Gullbrúðkaup
Elsku fallegu mamma og pabbi
til hamingju með gullbrúðkaups-
áfangann ykkar þann 2. september.
Eigið yndislegan dag.
Kveðja, ykkar börn og fjölskyldur
TIL SÖLU
Til sölu 120m2 fokhelt raðhús
í Njarðvíkum söluaðili lánar 20
prósent af söluverði Upplýsingar í
síma 899 3761.
Sérhæð í Keflavík, efri hæð
Myllubakkaskólahverfi.
Til sölu um 70 fm. 3ja herb. efri
hæð í tvíbýlishúsi við Ásabraut í
Keflavík. Hús klætt með
Steni klæðningu, hús í góðu standi.
Sameiginlegt þvottahús á neðri
hæð. Ásett verð 13.900.000 lítil
útborgun. Sími: 691 2361
Píanó til sölu
Sören Jensen píanó, ca.
80 ára gamalt, uppgert 1999,
með f í labeinsnótum, frábær
hljómgæði, píanóstöll fylgir, verð-
hugmynd 250.000. Þarfnast still-
ingar. Uppl. 692 1527.
ÞJÓNUSTA
L e i g j u m ú t h j ó l h ý s i y f i r
Ljósanæturhelgina – geta ver-
ið í miðbænum eða fyrir framan
heimahús. Gistiheimilið Njarðvík
– bíla- og hjólhýsaleiga www.gisti-
heimilid.is s: 421-6053 / 691-6407.
Vagnageymslur í vetur
hjá Alex ferðaþjónustunni, kr.
7500,- lengdarmeterinn tímabilið.
Uppl. alex@alex.is eða 421 2800 á
skrifstofutíma.
Sý n i ng í Bí ó s a l Duushúsa, opnuð
30. ágúst á Ljósanótt
2 0 1 2 . S a m s t a r f s -
verkefni Byggðasafns
Reykjanesbæjar, Lista-
safns Reykjanesbæjar
og vina og vanda-
manna Helga.
Helgi S. Jónsson stóð
í f y l k i n g a r b r j ó s t i
ótrúlega margra félaga
og málefna sem hann sinnti af
miklum dugnaði og trúmennsku.
Helgi var oft í fararbroddi, kveikti
eldinn en fól hann svo öðrum er
nýjar hugmyndir kölluðu hann
til annarra verka. Hann var fjöl-
hæfur listamaður, leikari, listmál-
ari, myndskeri, vel ritfær og mjög
mælskur. Hvað sem hann tók sér
fyrir hendur vildi hann deila með
öðrum og honum var einkar lagið
að skapa jákvæða stemningu. Sá
félagsskapur sem næst hjarta hans
stóð var skátafélagið en hann var
einn af stofnendum Heiðabúa. Eins
og sönnum skáta sæmdi vildi hann
leggja lið góðum málum og annar
ríkur strengur í félagsskapnum var
náttúran: í öræfafegurð fjallanna
og kyrrð fann hann sig
á sérstakan hátt heima,
segir sr. Björn Jónsson
um Helga.
Helgi S. Jónsson flutt-
ist til Keflavíkur 25 ára
gamall með dívaninn
sinn og bókakassa í
farteskinu. Hann fædd-
ist í Hattardal á Vest-
fjörðum en fluttist til
Reykjavíkur tíu ára
gamall. Hann hafði tekið virkan
þátt í róttækum þjóðernisflokki
sem barðist við kommúnista undir
hakakrossfánum rétt áður en hann
flutti til Keflavíkur.
Helgi fann heimili sitt hér suðurfrá
eins og hann sagði í viðtali sem
Guðleifur Sigurjónsson tók við
hann árið 1970: „Frá því að ég kom
hingað til Keflavíkur þann sæta
dag, hef ég ekki farið neitt alvarlega
héðan, rétt skroppið svona upp á
öræfin, inn í Reykjavík, eða svo.“
Helgi giftist Þórunni Ólafsdóttur
árið 1940 og áttu þau saman eina
dóttur: Guðrúnu Sigríði, heimili
þeirra hjóna var hér alla tíð. Helgi
lést árið 1982, 72 ára að aldri.
Sýningin stendur út september.
›› Ný sýning í bíósal Duus-húsa:
›› Skessuhellir og Landnámsdýragarður:
Tónlistarsyrpa
í Duushúsum
Að venju verður standandi tón l i s t a r d a g s k r á a l l a n
laugardaginn í Duushúsum. Nýir
tónleikar hefjast á hálftíma fresti
og eru til skiptis í Bátasal og Bíó-
sal.
14:30 Bíósalur:
Kvennakór Suðurnesja
15:00 Bátasalur:
Söngsveitin Víkingarnir
15:30 Bíósalur:
Karlakór Keflavíkur
16:30 Bíósalur:
Sönghópurinn Orfeus
17:00 Bátasalur:
Sönghópur Suðurnesja
Allir velkomnir!
Eldhuginn Helgi S. Jónsson
›› FRÉTTIR ‹‹
Íslandsmet í
hópgaldri!
Núna í fyrsta skipti á Íslandi á að setja Íslandsmet í hóp-
galdri á Ljósanótt 2012. Töfra-
bragðanámskeið Einars Mikaels
hefur slegið öll aðsóknarmet víðs
vegar um landið og það var hús-
fyllir í bæði skiptin þegar það var
haldið í Reykjanesbæ. Núna á að
slá Íslandsmet í hópgaldri þar sem
stefnt er að því að yfir 200 krakkar
framkvæmi einn galdur öll á sama
tíma. Þau fá einnig að læra nýja
galdra og sjá vídeó með bestu
sjónhverfingamönnum heims.
Þetta hefur aldrei verið gert áður
á Íslandi og fá allir krakkarnir
viðurkenningarskjal fyrir þátttök-
una í þessum sögulega áfanga.
Frítt er á námskeiðið
Staðsetning:
Íþróttaakademían
kl: 11:00 - 12:30 á sunnudaginn.
Aldur:
8-15 ára. Allir velkomnir á
meðan húsrúm leyfir.
Leiðbeinandi:
Einar Mikael töframaður
Margt er í boði fyrir börnin á Ljósanótt eins og undan-
farin ár. Skessan í hellinum sem
flutti til okkar á Ljósanótt 2008
verður með opinn hellinn sinn
alla dagana frá kl. 10.00-17.00 og
tekur á móti gestum. Hún, ásamt
aðstoðarfólki sínu frá Júdódeild
UMFN býður börnunum í
lummur á laugardeginum frá kl.
15.00 til 17.00 eða svo lengi sem
birgðir endast.
Landnámsdýragarðurinn mun
loka eftir Ljósanæturhelgina og
eru því síðustu forvöð fyrir gesti
og gangandi að heilsa upp á dýrin.
Á laugardagsmorgninum verða
hestar leiddir undir börnum í garð-
inum frá kl.10.00 -12.00 og ekki er
að efa að það verður upplifun fyrir
margan ungan hestamanninn.
Víkingaheimar verða opnir sam-
kvæmt venju og tilvalið að líta þar
við enda margar spennandi sýn-
ingar í boði í húsinu. Sérstaklega
má minna á goðheimasýninguna
sem opnaði í vor en þar er gestur-
inn leiddur í gegnum þennan forna
hugmyndaheim og goð og goð-
heimar birtast ljóslifandi á mynd-
rænan og nýstárlegan hátt þar sem
myndlist, frásögn og tónlist fléttast
saman í eina heild. Bæði börn og
fullorðnir hafa lýst mikilli ánægju
með þessa sýningu og upplagt að
nota tækifærið þessa helgi.
Krakkarnir njóta
sín á Ljósanótt
Rottur og minkur
herja á Grindvíkinga