Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.08.2012, Síða 40

Víkurfréttir - 30.08.2012, Síða 40
Kraftur að handan Á á r u m á ð u r þótt i svaka- l e g a s p e n n an d i að fara í andaglas í heimapartíum. Við táningarnir settumst saman í hring og einhverra hluta vegna kunnu stelpurnar þetta miklu betur en við strákarnir. Þær fóru yfirleitt með einhverja þulu í glasið áður en það var lagt á stafa- borðið. Allir settu puttann sinn á botninn á glasinu og fyrr en varði flugu spurningarnar í loftið. Glasið snerist í nokkra hringi áður en það staðnæmdist á fyrsta staf. Við horfðum dolfallin á áttulaga ferðalagið á meðan svörin birtust frá framliðnum sálum. Trúgirnin allsráðandi á þessum aldri og aldrei hugnaðist mér að skólasysturnar hefðu einhver áhrif á niðurstöð- urnar. Vísifingur þeirra virtust hreinir og tærir eins og samviskan ein. Undanfarna mánuði hef ég horft á þætti í sjónvarpinu, þar sem fylgst er með slíkum öflum. Yfir- náttúrlegum hreyfingum, hljóðum og væringum. Gremst hversu lítið ég hef orðið var við eitthvað þessu líkt. Bara aldrei, ef ég á að vera hreinskilinn. Frúin hafði þó á orði við mig, þegar við hófum búskap, að mér fylgdi sérkennilegur maður með hatt. Með sveran vindling í munni. Minnti um margt á Al Ca- pone. Sat einhverju sinni á rúm- stokknum hjá mér þegar ég hafði lagst til hvílu eftir magnað helgar- teiti. Hann fylgdi mér oftast undir þannig kringumstæðum. Aldrei varð ég var við neitt og fann ekki fyrir neinu. Þangað til í vikunni. Hjartað tók eitt aukaslag. Ég hafði gaman af því að bjóða í þrítugsafmælið mitt. Undir- búningurinn töluverður og allir mínir bestu vinir og vandamenn mættu prúðbúnir til veislu. Níu mánaða undirbúningur við það að hætta að reykja var loks kominn á leiðarenda og nú skyldi ákvörðunin staðfest. Hafði lofað börnunum mínum að gefa þeim bindindið í afmælisgjöf. Eilíft reykbindindi. Búinn að reykja hálfa ævina, frá fimmtán ára til þrítugs. Komið nóg. Gestirnir streymdu í hús og gjaf- irnar hrönnuðust upp á borðinu. Veglegar að vanda og eigulegar til framtíðar. Ein mynd í ramma stóð þó upp úr og varð mér hugleikin. Hefur hangið uppi æ síðan. Eins og minnisvarði um þrekvirkið á bak við ákvörðunina, að halda haus í bindindinu. Kúrði mig í sófann og barðist um bestu pullurnar við hundana, sem ásækja hvíluna á síðkvöldum. Gegnt mér heyrist skyndilega há- vær smellur í vegg og fyrr en varði dúar þrekvirkismyndin eins og rekald á rúmsjó. Voru þetta skila- boð að handan? Ég fann kraftinn frá kauða. vf.is Fimmtudagurinn 30. ágúst 2012 • 34. tölublað • 33. árgangur auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001 FIMMTUDAGSVALS VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00 Tímapantanir í síma 426 8540 Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00 Frjáls mæting Ljósanótt í máli og myndum ...www.vf.is

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.