Víkurfréttir - 18.04.2013, Blaðsíða 4
fimmtudagurinn 18. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR4
Páll Ketilssonvf.is
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Jón Júlíus Karlsson, jjk@vf.is, GSM 849 0154
Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
afgreiðsla og ritstjórn:
ritstjóri og ábm.:
fréttastjóri:
blaðamenn:
auglýsingadeild:
umbrot og hönnun:
auglýsingagerð:
afgreiðsla:
Prentvinnsla:
uPPlag:
dreifing:
dagleg stafræn Útgáfa:
RITSTJÓRNARBRÉF
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir
kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka
smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á
þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá
færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á
vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent-
aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það
birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Gróskumikið líf
Á lokaspretti kosningabaráttu er vel
við hæfi að nota þetta pláss til að vekja
athygli á skemmtilegum hlutum hér á
Suðurnesjum. Fjöllistamaðurinn Guð-
mundur Rúnar Lúðvíksson er einn af
fjölmörgum einstaklingum sem láta fátt
stoppa sig í því að gera skemmtilegar
hugmyndir að veruleika eins og sjá má á
forsíðu Víkurfrétta í dag. Takist honum
ætlunarverk sitt að fá tugi þúsunda bréfa
frá útlendingum sem sækja Ísland heim
og búa til slatta af peningum út úr því verkefni hlýtur hann
að fá nýsköpunar- og viðskiptaverðlaun á næsta ári. Hug-
mynd Guðmundar verður vonandi innblástur til fleiri aðila
sem vilja nýta sér vinsældir Íslands
meðal útlendinga sem streyma til
landsins. Virkilega skemmtileg
hugmynd hjá Guðmundi en hann
hefur átt margar í gegnum tíðina.
Við höfum áður sagt frá grósku í
menningu og listum og íþróttum
á Suðurnesjum og verðum seint
þreytt á því. Slökkviliðsminjasafn í
Njarðvíkum er annað skemmtilegt
dæmi og gott innlegg í fjölbreytni í afþreyingu á svæðinu.
Þarna komu margir slökkviliðsmenn saman og lögðu fram
mikla sjálfboðavinnu í marga mánuði við uppsetningu á
sýningunni. Einn þeirra lagði ellefu hundruð klukkustundir
í uppgerð fyrsta slökkvibílsins í Keflavík. Sögu Brunavarna
Suðurnesja er gerð góð skil með fjölda greina úr blöðum,
m.a. úr Víkurfréttum sem hafa fylgst vel með starfi slökkvi-
liðsmanna í áratugi.
Á næstu dögum verða á Suðurnesjum margir tónleikar, m.a.
með Valdimar og lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar,
danssýningar og opinn dagur á mest vaxandi svæði lands-
ins, Ásbrú, svo dæmi séu tekin. Leikfélag Keflavíkur er með
frábæra sýningu í gangi og körfuboltastúlkur Keflavíkur
eru komnar í úrslit Domino's
deildarinnar. Sem sagt; margt
skemmtilegt í gangi.
Þó mörgum leiðist pólitík þá er
hún hluti af samfélaginu okkar.
Tökum vel á móti heimsóknum
pólitíkusa og vöndum svo valið á
þeim þegar við förum í kjörklef-
ann eftir rúma viku.
Aukið áhrifavald nemenda
í Grunnskóla Grindavíkur
Grunnskóli Grindavíkur starfar undir merkjum Uppbyggingarstefnunnar og í þeirri stefnu er
talað um að ein af þörfunum er þörfin fyrir áhrifa-
vald. Við nemendur höfum í vetur fengið aukin
tækifæri til áhrifa en komið var á fót nemendafull-
trúaráði sem skipað er nemendum úr 2. – 10. bekk.
Ráðið valdi sér það skemmtilega nafn Stuðboltarnir
og fundað er undir styrkri stjórn námsráðgjafa
skólans Guðrúnar Ingu Bragadóttur.
Hver bekkur hefur sína fulltrúa sem gegna því hlut-
verki að fara með mál inn á fundina sem tekin hafa
verið fyrir á bekkjarfundum. Allir bekkir hafa því
tækifæri til að koma á framfæri málum sem nem-
endum eru hugleikin og gefst þeim því kostur á að taka
þátt í ákvarðanatökum og bæta þannig skólabraginn.
Nemendafulltrúaráðið fékk kynningu á könnun á
líðan og kom með tillögur um aðgerðir í kjölfar þess.
Ráðið kom einnig með hugmyndir að viðfangsefnum
fyrir Saman í sátt daginn en sá dagur er haldinn til að
efla samkennd og vináttu milli nemenda. Allir bekkir
eiga sína vinabekki þar sem eldri og yngri bekkir
mynda vinatengsl. Eftir áramót var haldinn sérstakur
vinabekkjadagur þar sem tengslin voru styrkt.
Í því skyni að bæta gangamenningu skólans átti nem-
endaráð góðan fund með skólastjórnendum. Í fram-
haldi af þeim fundi voru keypt tvö borðtennisborð sem
staðsett eru í matsal skólans, fótboltaspil sem er við
unglingaganginn ásamt fleiri skemmtilegum spilum.
Þessi kaup hafa gert mikla lukku og hafa orðið til þess
að gera gangamenninguna skemmtilegri.
Samskipti milli félagsmiðstöðvar og nemendaráðs
skólans hafa verið með ágætum þetta skólaár. Fyrir
tilstilli sviðsstjóra frístunda- og menningarsviðs
Grindavíkurbæjar, Kristins Reimarssonar, gafst undir-
ritaðri tækifæri á að fara á fund Katrínar Jakobsdóttur,
Mennta- og menningarmálaráðherra, um starfsemi
grunnskóla og félagsmiðstöðva, var það mjög fróð-
legur og skemmtilegur fundur þar sem við fengum að
segja frá okkar skóla og heyra frá öðrum.
Í mars tilnefndi Frístunda- og menningarnefnd bæjar-
ins undirritaða ásamt Kötlu Marín Þormarsdóttur til að
fara á ráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði á Egilsstöðum.
Hlustað var á fyrirlestra og tekið þátt í vinnustofum. Í
lok ráðstefnunnar var send áskorun til stjórnvalda að
leitað yrði meira til ungmenna og tekið tillit til þeirra
skoðana á málefnum samfélagsins, sérstaklega þeim
sem varða ungmennin sjálf. Aukið áhrifavald í Grunn-
skólanum í Grindavík styður einmitt þessa áskorun því
hlusta þarf á nemendur og hafa þá með í ráðum þegar
til ákvarðana kemur.
Framundan eru þemadagar skólans þar sem boðið
verður upp á mikið uppbrot á skólastarfinu og val
verður um fjölbreytt viðfangsefni. Við nemendur
hlökkum til vorsins þar sem jafnan er lögð áhersla
á aukna útikennslu s.s. ratleiki í tungumálum, um-
hverfismennt, lengri og styttri skólaferðir og fleira
skemmtilegt. Við nemendur sem erum að kveðja
skólann getum litið til baka með hlýjar hugsanir í
garð skólans okkar og sannfæringu um það að þeir
nemendur sem halda áfram nýti sér þau tækifæri sem
bjóðast með auknu lýðræði.
Margrét Rut Reynisdóttir
Formaður nemendaráðs Grunnskóla Grindavíkur
Nei ESB - Já Ísland - Sjálfbær þróun - X við J
Höfn, Skaftafell, Klaustur, Vík, Vestmannaeyjar, Hvolsvöllur, Hella, Flúðir, Reykholt,
Laugarvatn, Sólheimar, Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri, Þorlákshöfn, Hveragerði,
Vogar, Grindavík, Njarðvík, Keflavík, Garður, Sandgerði
18. apríl, Suðurnes
Vitinn í Sandgerði í hádeginu, rennum við í Duus kaffi í Keflavík
milli 14:00 og 15:00, tökum gesti og gangandi tali við Nettó í Njarðvík
milli kl. 15:00 og 16:00. Hittingur í kaffihúsinu Bryggjunni í Grindavík
kl. 17:00. Á opnum fundi í Andrews leikhúsinu í Ásbrú kl. 20:00.
24. apríl, Suðurnes
Miðbær Keflavíkur frá kl. 14:00 - 15:00. Garður kl. 16:00 - 17:00,
Vogar á Vatnsleysuströnd 18:00 - 19:00.
6. sýning
föstudaginn 19. apríl
7. sýning
laugardaginn 20.apríl
Sýningarnar hefjast kl. 20:00
Sýnt er í Frumleikhúsinu og hefjast sýningar kl.20.00
Miðapantanir í síma 421 2540. Miðasalan er opin frá kl.19.00
Miðaverð kr. 2.500,-
Miðapantanir í síma 4212540
ATH! SÝNINGUM FER FÆKKANDI