Bæjarins besta


Bæjarins besta - 02.08.2007, Blaðsíða 5

Bæjarins besta - 02.08.2007, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2007 5 Höfða mál gegn umhverfisráðherra Landeigendur, Náttúru- verndarsamtök Íslands og Fuglaverndarfélag Íslands hafa ákveðið að höfða mál gegn umhverfisráðherra þar sem látið verður á það reyna hvort fyrrverandi umhverfis- ráðherra hafi brotið lög er hún féllst á vegalagningu Vest- fjarðavegar 60 í gegnum Teigsskóg. Í úrskurði sínum frá 5. janúar s.l. féllst ráðherra á þann kost vegalagningar frá Þórisstöðum til Krakár sem stefnendur og flestir þeir sem komið hafa að málinu eru sammála um að hafi í för með gríðarleg óafturkræf umhverf- isspjöll í nær ósnortnu um- hverfi. Í fréttatilkynningu frá stefnendum kemur fram að málavextir eru þeir að eftir áratugalanga baráttu var ákveð- ið að fara í endurbætur Vest- fjarðavegar um sunnanverðra Vestfirði. „Í matsskýrslu Vegagerðar- innar voru lagðar fram þrjár mögulegar leiðir við lagningu annars áfanga Vestfjarðavegar milli Þórisstaða í Þorskafirði og Krakár á Skálanesi. Skipu- lagsstofnun lagðist í úrskurði sínum gegn þeim kosti sem gerir ráð fyrir veglagningu um land Grafar, Teigsskóg og Hallsteinsnes með þverun Djúpafjarðar og Gufufjarðar vegna umhverfisáhrifa, en taldi leiðina sem fylgir núver- andi vegi yfir Hjallaháls með verulegum endurbótum þar og nýjum vegi frá Djúpafirði og yfir Ódrjúgsháls og Gufufjörð innanverðan heppilegustu leiðina. Í samanburðinum væru báðar leiðir ásættanlegar með tilliti til umferðaröryggis og vegtækni. Leiðin yfir Hjalla- háls væri hins vegar mun ódýrari enda þótt leiðin um Teigsskóg væri nokkuð styttri þegar litið væri til vegarins í heild. Ráðherra umhverfismála felldi úr gildi úrskurð Skipu- lagsstofnunar og féllst á að fara með veginn um Teigs- skóg enda þótt megin hluti leiðarinnar fari í gengum verndarsvæði. Þannig er vest- urströnd Þorskafjarðar, fjörur, fitjar og sjávartjarnir í Djúpa- firði á náttúruminjaskrá. Það sama á við um skóglendið á norðurströnd Þorskafjarðar, Teigsskóg. Þá njóta allar eyjar og fjörur á framkvæmdasvæð- inu verndar laga nr. 54/1995 um vernd Breiðafjarðar og sjávarfitjar og leirur falla undir náttúruverndarlög nr. 44/1999 sem vistkerfi sem skuli njóta sérstakrar verndar. Hlíðin sem myndar Teigs- skóg er víðast vaxin náttúru- legum birkiskógi milli fjalls og fjöru og myndar ásamt fjör- unni landslagsheild sem er einstök fyrir það hversu lítt áberandi mannvirki og áhrif nýtingar eru þar. Skógurinn nýtur sérstöðu á Vestfjörðum og landinu í heild. Náttúru- stofa Vestfjarða of fleiri hefur varað við því að áhrifa fram- kvæmdarinnar muni gæta í öllum skóginum enda sé hann víðast aðeins 200-500 m breiður og því muni vegstæði um hann endilangan hafa veruleg áhrif á það sem eftir stendur. Að mati vistfræðinga verður ekki komið við mót- vægisaðgerðum, enda er nýr skógur ekki sambærilegur við þann skóg sem eytt er, hvorki hvað varðar gerð eða arfleifð en talið er að birkiskógurinn sé allt frá landnámsöld. Þá má nefna fjölda ókannaðra forn- minja, einkum á Grónesi og Hallsteinsnesshlíð. Veglagning um Teigskóg með þverun Djúpafjarðar mun leggja arnarsetrin rómuðu í verulega hættu en þau njóta verndar laga um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum nr. 64/1994. Þau hafa átt ríkan þátt í að viðhalda arnarstofn- inum á Breiðafirði. Ónefnd eru áhrif framkvæmdarinnar á aðra atvinnuvegi héraðsins svo sem á þangnámið í Reyk- hólasveit og uppbyggingu ferðamennsku. Stefnendur taka undir ályktun aðalfundar Landverndar frá 5. maí 2007 þar sem mælt er með því að jarðgöng undir Hjallahóls verði í forgangi í stað vegar út um Teigsskóg og þverunar fjarðarmynna í Djúpafirði og Gufufirði,” að því er segir í fréttatilkynningu. Sumarlokun Hraðfrysti- hússins – Gunnvarar er hafin. Mörg undanfarin ár hefur fyr- irtækinu verið lokað í kringum verslunarmannahelgi. Er þá tækifærið notað til að dytta að bæði húsum og skipum fyrir- tækisins. Sverrir Pétursson, útgerð- arstjóri HG, segir að verið sé að mála togarann Pál Pálsson sem liggur í Ísafjarðarhöfn auk annarra tilfallandi verk- efna. Frystitogari Júlíus Geir- mundsson fór á veiðar í síð- ustu viku eftir að hafa verið í slipp í Reykjavík í nokkrar vikur. – smari@bb.is Sumarlokun HG Séð yfir Þorskafjörð.

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.