Bæjarins besta - 02.08.2007, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 2007 19
Sælkeri vikunnar er Kristín Ósk Egilsdóttir á Suðureyri
Horfur á föstudag: Hvöss austanátt með
rigningu, en þurru norðaustantil. Fremur milt í
veðri. Horfur á laugardag: Suðaustlæg átt og
vætusamt, einkum sunnanlands. Milt í veðri.
Horfur á sunnudag: Norðlæg eða breytileg átt
og áfram vætusamt. Kólnandi veður.
Helgarveðrið
Kjúklingasalat og
kókosbollu-jummí
Sælkeri vikunnar býður upp
á dýrindis kjúklingasalat og
segir Kristín að í raun megi
setja út í það hvaða grænmeti
og ávexti sem er, allt eftir því
hvað til er í ísskápnum. Eftir-
réttinn kallar Kristín Kókos-
bollu-jummí og óhætt er að
segja að hér sé á ferð kaloríu-
bomba sem afar fáir geta stað-
ist.
Kjúklingasalat
2 kjúklingabringur
1 poki af blönduðu salati
eftir smekk
1 paprika
1 rauðlaukur
1 búnt vorlaukar
1 box kirsuberjatómatar
1/2 gúrka
1 mangó eða ferskur ananas
1 pera
Parmesan
Feta ostur
Ólífuolía og hvítt balsam-
edik
Steikið kjúklingabringurnar
á pönnu eða grillið. Kryddið
eftir smekk, með salti og pipar,
og jafnvel einhverju sterku.
Skerið í strimla og leyfið
kjúklingnum að kólna smá.
Hellið salatinu í skál og skerið
allt grænmetið og blandið
saman. Loks er kjúklingnum
bætt út í. Mjög gott er að rífa
parmesan yfir eða setja Feta
ost. Fyrir þá sem vilja er hægt
að hella smá olíu og ediki yfir
þegar salatið er borið fram.
Kókosbollu-jummí
1 stór poki Nóakropp
1 botn púðursykur-marens
3-4 kókosbollur
2 öskjur jarðaber
2 pelar rjómi
Setjið botnfylli af Nóa-
kroppi í skál eða form. Þeytið
rjómann og hyljið Nóa kropp-
ið með helmingnum. Myljið
marens botninn og setjið ofan
á. Kókosbollurnar koma næst.
Dreifið úr þeim með gaffli.
Skolið jarðaberin og skerið í
litla bita og dreifið yfir. Setjið
að lokum hinn helminginn af
þeytta rjómanum yfir allt sam-
an. Geymið í kæli í nokkrar
klukkustundir áður en borið
er fram. Skreytið eftir smekk
t.d með kiwi, Nóakroppi eða
berjum.
Ég skora á Kristbjörgu
Unni Sigurvinsdóttur á Suður-
eyri að verða næsti sælkeri
vikunnar.
Þrjár hressar stelpur héldu tombólu á Ísafirði fyrir
skömmu og söfnuðu yfir tvö þúsund krónum. Þær Natalía
Ösp Ómarsdóttir, Emma Rúnarsdóttir ákváðu að láta
peningana renna til Rauða krossins þar sem þær sögðust
vita að peningarnir yrðu notaðir til að hjálpa bágstöddum
börnum úti í heimi. Það tók þær átta daga að safna upp-
hæðinni. Þeim til aðstoðar var Júlíana Lind Skaftadóttir.
Ragnheiður og Sigurður sigruðu
Sigurður H. Hafsteinsson og Anna Ragnheiður Grétarsdóttir sigruðu á golfmóti Endurskoðunar Vestfjarða
sem fram fór á Syðridalsvelli á sunnudag. Tæplega 90 kylfingar mættu til leiks og er það mesti fjöldi sem
nokkurn tímann hefur tekið þátt í golfmóti hjá Golfklúbbi Bolungarvíkur. Sigurður lék á 73 höggum eða
einu höggi yfir pari vallarins. Í kvennaflokki án forgjafar stóð Anna Ragnheiður Grétarsdóttir uppi sem
sigurvegari en hún lék á 80 höggum. Í unglingaflokki án forgjafar sigraði Ernir Steinn Arnarsson sem lék
holurnar 18 á 76 höggum. Orri Örn Árnason bar sigur úr býtum í karlaflokki með forgjöf en hann lék á
64 höggum nettó og Hjördís Bjarnadóttir sigraði í kvennaflokki með forgjöf og lék hún á 67 höggum nettó.
Sumarvinnan mín!
Kristín Gréta Bjarnadóttir
er ein af starfsstúlkum sjopp-
unnar Hamraborgar á Ísafirði.
Kristín er 15 ára gömul og var
að klára 9. bekk. Hún segist
ekki vera farin að hugsa um
hvað hún gerir eftir grunn-
skólann, en gerir ráð fyrir að
fara í Menntaskólann á Ísa-
firði. Þetta er fyrsta sumarið
sem hún vinnur í Hamraborg.
Kristín segir vinnuna eðlilega
aðallega felast í að afgreiða
viðskiptavini sjoppunnar, en
auk þess sér starfsfólkið t.d.
um að baka pítsurnar vinsælu.
–Hvernig finnst þér vinnan
í Hamraborg?
„Mér finnst hún mjög
skemmtileg, hér er góður
vinnuandi.“
–Hvað vinna margir í
Hamraborg?
„Ég er ekki alveg viss, við
erum nokkuð mörg, aðallega
samt stelpur á mínum aldri.“
–Hefurðu áður unnið við
afgreiðslustörf?
„Nei, aldrei áður. Eina
sumarvinnan sem ég hef áður
haft var í bæjarvinnunni.“
–Eru ísviðskiptin ekki í
blóma, nú þegar sólin hefur
leikið við Vestfirðinga?
„Jú, ég hef afgreitt marga
ísa í sumar. Fólk fær sér mikið
af þesum hefðbundna ís með
dýfu, en svo er bragðarefurinn
líka vinsæll.“
Sumarvinnan mín!
Þó að Kristján Sigmundur
Einarsson sé titlaður spámað-
ur í símaskránni er það ekki
eina vinnan hans því í sumar
hefur hann unnið við hellu-
lagningu hjá verktakafyrir-
tækinu Áseli á Ísafirði. Krist-
ján kann vel við sig í hellu-
lagningunum og hann segir
samstarfsfólk sitt vera
skemmtilegt. Á veturna er
Kristján í Menntaskólanum á
Ísafirði og mun hann hefja
sitt þriðja námsár þar í haust.
Einhverjir ættu líka að kannast
við Kristján úr tónlistarlífi
Ísafjarðar en hann hefur meðal
annars spilað á gítar með
hljómsveitinni Appollo.
„Þetta er þriðja sumarið sem
ég vinn við hellulagningar hjá
Áseli. Ég kann mjög vel við
mig í þessu starfi.“
–Er þetta ekki erfið vinna?
„Jú, stundum er þetta erfitt,
en yfirleitt er þetta bara
skemmtilegt.“
–Ertu kominn með sterka
bakvöðva eftir alla vinnuna?
„Ætli ég sé ekki frekar orð-
inn bakveikur,“ segir Kristján
glottandi.
–Hvar hafið þið verið að
helluleggja í sumar?
„Við höfum aðallega verið
að vinna við að klára planið
við Edinborgarhúsið, svokall-
að Edinborgartorg. Lítið ann-
að hefur komist að.“
–Getur þú hugsað þér að
vinna hjá Áseli aftur næsta
sumar?
„Já, ég get vel hugsað mér
það. Kaupið er gott og yfir-
maður minn ákaflega sann-
gjarn maður,“ segir Kristján
að lokum um leið og hann
stillir sér upp fyrir myndatöku
með yfirmanni sínum og sam-
starfsstúlku.
Kristján (lengst til vinstri) ásamt yfirmanni sínum og samstarfsstúlku.