Bæjarins besta - 10.01.2008, Side 2
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 20082
Þorrablót Bolvíkinga haldið í Árbæ
Bolvíkingar blóta þorra í íþróttahúsinu Árbæ í ár þar sem endurbætur standa yfir á félagsheim-
ilinu Víkurbæ. Íþróttahúsið er eina húsið í bænum sem getur hýst skemmtun af þessari stærð-
argráðu þegar félagsheimilið er í lamasessi. Hið hefðbundna þorrablót í Bolungarvík er ætíð
haldið á fyrsta laugardegi í þorra sem í ár ber upp á 26. janúar. Þorrablótið í Bolungarvík
hefur verið haldið nær óslitið frá árinu 1944 og hefð er fyrir því að konur bjóði bónda sínum
til blóts þetta eina kvöld á árinu. Konur sjá um allan undirbúning og skemmtiatriði eru á heims-
mælikvarða og boðið er upp á góðlátlegt grín og glens sem kitlar hláturtaugar þorrablótsgesta.
Sýslumaðurinn
á Ísafirði
Áhugavert og
krefjandi starf
Sýslumaðurinn á Ísafirði auglýsir laust
starf skrifstofumanns við embættið. Um er
að ræða tímabundna stöðu til sex mánaða
með möguleika á framlengingu. Starfið er
krefjandi en jafnframt mjög áhugavert. Verk-
svið verður víðtækt, t.a.m. móttaka skjala
til þinglýsinga, afgreiðsla ýmissa leyfa og
almenn afgreiðsla, svo eitthvað sé nefnt.
Miðað er við að ráða í stöðuna sem fyrst.
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi
fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og SFR.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín
Völundardóttir, sýslumaður á Ísafirði. Um-
sóknir með upplýsingum um menntun og
starfsferil sendist sýslumanninum á Ísafirði,
Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði fyrir 22. janúar
2008.
Öllum umsóknum verður svarað þegar
ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin,
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Kristín Völundardóttir.
„Eru að skjóta sjálfan sig í fótinn“
Intercargo Coldstores A/S
er hluthafi í Seabait í Súðavík
og á 15% í fyrirtækinu, en
eins og greint hefur verið frá
var beitufyrirtækinu gert að
greiða Intercargo Coldstores
skuld sem nemur fjórum millj-
ónum króna fyrir Héraðsdómi
Vestfjarða á dögunum. Þá
segir Júlíana Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Seabait að sér-
staklega hafi verið samið um
að umrædd skuld skyldi greidd
með skuldajöfnuði vegna
pokabeitusölu árið 2006 en á
þeim tíma var hún fjármála-
stjóri hjá Intercargo Coldstor-
es. Að hennar sögn skuldar
Intercargo Coldstores enn fyr-
ir pokabeitu sem það keypti
af Seabait. „Þar sem þeir eiga
hlut í Seabait, sem er með
útistandandi kröfu á Inter-
cargo Coldstores fyrir skuld
vegna pokabeitu, eru þeir svo-
lítið að skjóta sjálfan sig í fót-
inn með því að draga okkur
fyrir dóm vegna pappírssöl-
unnar“, segir Júlíana.
Málsatvik eru þau að á fyrri
hluta árs 2006 keypti Seabait
pappírsrúllur af Intercargo
Coldstores til að nota við
pokabeituframleiðslu sína. Á
sama ári seldi félagið danska
fyrirtækinu mikið magn poka-
beitu og hafi söluverð beitunn-
ar numið samtals 4.726.440
krónum. Byggði Seabait vörn
sína fyrir héraðsdómi á því að
samkomulag hafi orðið milli
aðila um skuldajöfnuð vegna
viðskipta þeirra, það er að
reikningar Intercargo Cold-
stores kæmu upp á móti reikn-
ingum beitufyrirtækisins vegna
pokabeitunnar. Seabait skuldi
því Intercargo ekkert, þvert á
móti skuldi fyrirtækið Seabait
umtalsverða fjármuni vegna
kaupa þess á pokabeitunni.
Beitufyrirtækið Seabait hef-
ur á undanförnum árum þróað
nýja aðferð við framleiðslu á
beitu, með það að markmiði
að beitan yrði úr sem allra
ódýrustu hráefni sem kæmi í
stað beitu úr fiski sem hæfur
er til manneldis. Rekstur
beituverksmiðjunnar hefur þó
átt á brattann að sækja í
gegnum tíðina og hefur verið
endurskipulagður.
Eru aðstandendur verk-
smiðjunnar sannfærðir um að
nú séu bjartari tímar framund-
an. Markmið fyrirtækisins er
að verða leiðandi á sviði beitu-
framleiðslu með útvíkkunar-
möguleikum í aðrar iðngrein-
ar.
– thelma@bb.is
Ríkisstjórnin hefur ákveðið
að veita 160 milljónum króna
til eflingar ferðaþjónustu á
þeim svæðum sem verða fyrir
aflasamdrætti vegna skerðing-
ar á veiðiheimildum.
Auglýst er eftir umsóknum
um stuðning við verkefni til
atvinnusköpunar í ferðaþjón-
ustu á ofangreindum svæðum.
Umsækjendur geta verið sveit-
arfélög, einstaklingar og fyrir-
tæki og er hámarksstyrkur til
hvers verkefnis átta milljónir
kr. Verkefnin verði unnin á
árunum 2008-2009 og verður
styrkurinn greiddur í tvennu
lagi, helmingur hvort ár.
Seinni greiðslan er háð árang-
ursmælingu í samræmi við
ákvæði í umsókn, en hver um-
sækjandi gerir tillögu að ár-
angursmælikvarða fyrir við-
komandi verkefni.
Við afgreiðslu umsókna
verður sérstaklega litið til
langtímaáhrifa verkefna á skö-
pun nýrra starfa á svæðunum
Leiðrétting Náttúrustofu
Vestfjarða til fjárlaganefndar
Alþingis var tekin til greina. Í
fyrstu umræðu um fjárlög
þessa árs var gert ráð fyrir að
náttúrustofurnar á Neskaup-
stað, Stykkishólmi, Sauðár-
króki, í Vestmannaeyjum,
Sandgerði og Húsavík fái allar
8 milljónir króna til tímabund-
ið framlag til rannsóknar-
verkefna. Náttúrustofa Vest-
fjarða er eina stofan sem var
þar ekki nefnd. Þorleifur Ei-
ríksson, forstöðumaður Nátt-
úrustofu Vestfjarða, segir að
þarna hafi verið gerð mistök.
Í tillögum Vestfjarðanefndar-
innar var gert ráð fyrir útibúi
Náttúrustofunnar á Patreks-
firði og framlag Náttúrustof-
unnar var eyrnamerkt útibú-
inu. „Það var nú ekki meining-
in með Vestfjarðaskýrslunni
að skera niður hjá Náttúru-
stofunni og en þetta voru bara
mistök sem fjárlaganefnd leið-
rétti“, segir Þorleifur.
Náttúrustofan fær átta millj-
ónir króna til sérverkefna eins
og aðrar náttúrustofur auk
annarra átta sem fara í nýtt
útibú á Patreksfirði. Að auki
er grunnframlag ríkisins níu
milljónir króna. Fyrir skömmu
auglýsti stofan eftir líffræð-
ingum og landfræðingum til
starfa og segir Þorleifur að
verið sé að vinna úr umsókn-
um. – smari@bb.is Náttúrustofa Vestfjarða er til húsa í Bolungarvík.
Fjárframlög Náttúrustof-
unnar ekki skorin niður
og hversu hratt störfin geta
orðið til. Ekki er um að ræða
styrki til menntunar eða rann-
sókna. Umsóknum skal skila
á sérstökum umsóknareyðu-
blöðum, sem hægt er að nálg-
ast á vef Ferðamálastofu.
– smari@bb.is
Hornbjarg.
Mótvægisaðgerðir
til ferðaþjónustu
Þennan dag árið1940 bjargaði togarinn Hafsteinn 62
manna áhöfn af þýska flutningaskipinu Bahia Blanca, sem
sökk út af Látrabjargi. Sumir óttuðust að þetta væru her-
menn sem ættu að gera uppreisn um leið og þýskur inn-
rásarher kæmi til landsins.
Dagurinn í dag
10. janúar 2008 –10. dagur ársins